Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 87
George W. Bush, forseti Bandaríkj-
anna, gaf út yfirlýsingu eftir að
fréttamaðurinn Ed Bradley dó þar
sem hann heiðraði hann með því að
segja hann „einn færasta blaða-
mann okkar tíma“. Bradley lést á
fimmtudag eftir harða baráttu við
hvítblæði.
Fleiri þekkt nöfn hafa tjáð sig
um dauða Bradley, þar á meðal
Walter Cronkite, fyrrum frétta-
maður CBS. „Bradley var grimmur
í viðtölum og lagði hart að sér til að
fá viðtöl,“ sagði hann. „Um leið og
viðtalinu var lokið, eftir að viðmæl-
andinn hafði fengið mikla útreið
hjá honum, skildu þeir sem vinir.
Hann var þannig náungi.“
Bradley, sem var mikill djass-
áhugamaður, gekk árið 1971 til liðs
við CBS-sjónvarpsstöðina og tíu
árum síðar komst hann inn í 60 mín-
útur, þar sem hann átti eftir að hafa
mikil áhrif.
Bradley
heiðraður
Uppselt er á tónleika til minningar
um John Lennon sem verða haldn-
ir í Háskólabíói hinn 1. desember.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur
verið ákveðið að halda tvenna tón-
leika til viðbótar dagana 2. og 3.
desember.
Að sögn Sigurðar Kaiser, skipu-
leggjanda tónleikanna, kom eftir-
spurnin skemmtilega á óvart. Bætti
hann því við að allir tónlistarmenn-
irnir hefðu verið tilbúnir í að spila
aftur og því hafi eftirleikurinn
verið auðveldur.
Á tónleikunum verða flutt lög
eftir Lennon sem hafa verið sér-
staklega útsett fyrir sinfóníuhljóm-
sveit og rokkhljómsveit af þessu
tilefni. Miðasala fer fram á midi.is
og er miðaverð 6.500 krónur.
Bætt við
tónleikum
Tónlistarkonan Ragnheiður Grön-
dal hefur gefið út sína fjórðu sóló-
plötu, sem nefnist Þjóðlög. Platan
hefur að geyma íslensk þjóðlög í
hennar eigin útsetningum. Við
þær naut hún einnig aðstoðar
þeirra Hauks Gröndal og Huga
Guðmundssonar.
„Hugmyndin um að gera plötu
með íslenskum þjóðlögum fæddist
þegar við systkinin vorum að túra
í Norður-Noregi. Þar vorum við að
gera tilraunir með þessi lög og það
var svo gaman að við ákváðum að
gera plötu og taka hana upp í Búlg-
aríu,“ segir Ragnheiður, sem
stundar tónlistarnám í New York
um þessar mundir. „Ferlið var
mjög strembið en ævintýralegt og
við komum víða við, m.a. í Búlgar-
íu, Noregi og Kaupmannahöfn. Við
vorum með mjög ákveðnar hug-
myndir um hverju við vildum ná
fram og það getur oft verið erfitt.
Það fólk sem við fengum til að
spila á plötunni býr allt yfir mjög
miklu næmi fyrir músík og fyrir
okkur var það eina leiðin til þess
að platan myndi gera sig því þessi
gömlu þjóðlög eru svo viðkvæm,“
segir hún.
Á meðal laga á plötunni eru
Sofðu unga ástin mín, Vísur Vatns-
enda- Rósu og Allt eins og blómstr-
ið eina, í fallegum útgáfum. Þjóð-
lög er önnur plata Ragnheiðar hjá
12 tónum en á undan kom After
The Rain sem fékk mjög góðar
viðtökur í fyrra með lögum og
textum eftir Ragnheiði.
Ævintýralegt ferli hjá Ragnheiði Gröndal
Breski tónlistarmaðurinn Robbie
Williams hefur gefið út DVD-
mynddiskinn And Through It All
sem hefur að geyma tónleikaupp-
tökur frá árunum 1997 til 2006.
Á disknum, sem er tvöfaldur,
eru m.a. upptökur frá fyrstu tón-
leikum hans í París, frá Live 8 og
frá síðustu tónleikaferð hans,
Close Encounters, sem vakti mikla
hrifningu. Yfir fimmtíu lög eru á
disknum sem spanna allan feril
Robbie, þar á meðal Feel, Angels,
No Regrets, Let Me Entertain You,
Come Undone og nýjasta smá-
skífulagið Rudebox. Er það ein-
mitt að finna á samnefndri plötu
hans sem kom út í síðasta mánuði.
Robbie á
tónleikum
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Linda Þorvaldsdóttir málari:
„Einfaldlega besta málningin
sem ég hef notað.“
Ýrist lítið
Að ýrast = að slettast úr rúllunni.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík
Núpur byggingarvöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
KÓPAL Glitra
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
A
L
34
75
3
1
0/
20
06