Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 88
!
Í dag kemur út rit Halldórs
Guðmundssonar bók-
menntafræðings, Skáldalíf
– ofvitinn í Suðursveit og
skáldið á Skriðuklaustri,
um þá Gunnar Gunnars-
son og Þórberg Þórðarson.
Rannsóknarverk Halldórs
er um fimm hundruð síður,
ríkulega myndskreytt með
skrám mynda, heimilda og
nafnaskrá.
Í ritinu fjallar Halldór um þessa
tvo jöfra íslenskrar sagnaritunar
á síðustu öld og gerir upp hlut
þeirra, æviferils þeirra í skáld-
skapnum og hvernig báðir læstust
inni í stjórnmálaátökum sinnar
aldar.
Skammt er síðan Halldór sendi
frá sér viðamikið rit um Halldór
Laxness, rétt eins Hannes Hólm-
steinn Gissurarson. Hlaut hann
Bókmenntaverðlaun fyrir í flokki
fræða. Það var við vinnslu þess
verks sem hugmyndin um tveggja-
stjörnu rit um þá Þórberg og
Gunnar kviknaði. Formið kom
mörgum spánskt fyrir sjónir en
Halldór sækir það í ævaforn rit
Plútarks sem setti saman slík rit
um samanburð eða hliðstæður
mikilmenna úr grískri og róm-
verskri sögu.
Halldór fer ekki launkofa með
að hann stendur í rannsóknum
sínum á herðum fyrri manna sem
unnið hafa úttektir á ferli þeirra
Gunnars og Þórbergs: Sveinn
Skorri Höskuldsson hafði unnið
lengi að rannsóknum á Gunnari
Gunnarssyni, Þór Whitehead
rakti tengsl hans í
Þýskalandi fyrir stríð-
ið 1939 til 1945. Rann-
sóknir Helga M. Sig-
urðssonar og fleiri.
Ýmsir þræðir
liggja því að þessu
mikla verki, bæði
úr útgefnum gögnum og öðrum
sem geymd eru í söfnum, þar á
meðal eru persónuleg gögn þeirra
skáldbræðra.
Margt kemur á óvart í bók Hall-
dórs. Hér er að finna lýsingar á
árunum sem þeir báðir hleypa
heimdraganum og búa við alls-
leysi og nánast hungur fjarri
heimaslóðum, skútulífi Þórbergs
og fyrstu árum Gunnars í Dan-
mörku.
Hér er tæpt á persónulegum
málum þeirra: ástarsambandi Þór-
bergs veturinn 1917 til 1918
við unga stúlku sem fátt
hefur verið vitað um,
þótt faldar vísanir í það
samband finnist í Bréfi
til Láru, Eddu og Ofvit-
anum. Nú er hún nafn-
greind, Finnlaug Einars-
dóttir úr Flatey. Vel
kann að vera að
samband þeirra
hafi borið ávöxt
og segir Hall-
dór frá því í
verkinu.
Áður var
vitað um dóttur Þórbergs úr sam-
bandi hans við Sólu, en bréfaskipti
þeirra Þórbergs voru efni bókar á
sinni tíð, Bréf til Sólu. Sem kunn-
ugt er áttu þau Sóla dóttur sem
var alla tíð sniðgengin.
Persónulegir hagir Gunnars
Gunnarssonar skýrast enn frekar
en áður í ritverki Halldórs: hann
lenti í löngu ástarsambandi við
Ruth Lange, eiginkonu Tom Kristi-
ansen, og er í Skáldalífi rakið í
fyrsta sinn hvern hug Ruth bar til
þessa sambands með ívitnunum í
áður óbirt bréf hennar.
Meginverkefni rannsóknar Hall-
dórs eru hin stjórnmálalegu
afskipti þessara tveggja höfunda
sem báðir stigu nærri þeim félög-
um Hitler og Stalín. Þannig snert-
ir Halldór bæði á einkasviði þeirra
og hinu opinbera. Þar er í fyrsta
sinn rakið hvernig pólitíkin kom
inn í líf þeirra og hvernig hugur
þeirra þróaðist í tvær gagnstæðar
áttir og staðnaði í raun á tímabili.
Rannsókn Halldórs og samantekt
verður að telja með stærstu bók-
menntasögulegum tíðindum þessa
árs.
Aðfangadagur tungunnar
Sögufélagið með
stórvirki í bígerð
Sögufélagið er enn í fullu fjöri. Hélt
nýlega aðalfund sinn og er með
ýmislegt á prjónunum: hjá félaginu
er komið út fjórða ritið í ritröðinni
Smárit Sögufélags. Bókin ber titil-
inn Barnauppeldisins heilaga
skylda. Barnavernd á fyrri hluta 19.
aldar og er eftir Hildi Biering sagn-
fræðing. Og fleira er í pípunum sem
tíðindum sætir. Meðal verkefna
sem nú er unnið að á vegum félags-
ins eru Acta yfirréttarins og extra-
lögþinganna. Um er að ræða sam-
starfsverkefni Sögufélags og
Þjóðskjalasafns Íslands og sér
Björk Ingimundardóttir um útgáf-
una.
Þá hefur félagið hafið undirbún-
ing að útgáfu ritsins Æviskrár
íslenskra kvenna, en þar verða ævi-
skrár um 500 kvenna frá upphafi
byggðar á Íslandi fram til ársins
2000 skráðar af ýmsum fræðimönn-
um. Einnig er í undirbúningi bók
um innreið nútímans á Íslandi á 19.
og 20. öld frá mörgum sjónarhorn-
um. Meðal markmiða er að gera
nútímanum skil með aðgengilegum
hætti fyrir allt áhugafólk um
nútímasögu. Ritstjórar verða Guð-
mundur Hálfdanarson og Páll
Björnsson.
Á næsta ári er væntanlegt fjórða
bindið í ritröðinni Rit Sögufélags,
en þar er á ferðinni endurskoðuð
þýðing á Brevis Commentarius de
Islandia eftir Arngrím Jónsson hinn
lærða, riti sem olli byltingu í hug-
myndum hins menntaða heims um
Ísland og eyjarskeggjana. Loks má
nefna bók um alla konunga Íslands
frá 1264 til 1944 sem vonast er til að
komi út 2008.
Sögufélagið er mikilvægur
félagsskapur: félagið heldur úti
skrifstofu í þremur sambyggðum
húsum í Fischersundi þar sem áður
var rekstur tengdur gamla bakarí-
inu. Þar ræður Ragnheiður Þorláks-
dóttir ríkjum. Félagið heldur úti
vefsíðu: www.sogufelag.is, og tíma-
rit þeirra, Saga, er fagnaðarefni
hverjum þeim sem hefur áhuga á
sögu lands og þjóðar. Er nýtt hefti
væntanlegt á næstunni. Stjórn skipa
nú Anna Agnarsdóttir forseti, Már
Jónsson ritari og Kristrún Halla
Helgadóttir gjaldkeri. Meðstjórn-
endur eru Illugi Gunnarsson og
Ragnheiður Kristjánsdóttir.
kl. 19.35 /00.15
Mínútumyndir í tilefni af 40 ára
afmæli Félags kvikmyndagerðar-
manna.
Í kvöld eru það myndir Róberts
Douglas, Karlmenn eru ekki kerling-
ar, og Helga Sverrissonar, S, sem eru
í Kastljósi Ríkisútvarpsins. Bent er
á seinni sýningu Kastljóssins og svo
má sjá þær á vefnum: ruv.is