Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 91
Við erum kannski ekki að tala um
„Loksins, loksins“ ritdóm. En
lætur nærri. Ævar Örn Jósepsson
hefur verið í hraðri og öruggri
þróun sem reyfarahöfundur. Og
hann slær ekkert af. Ný glæpa-
saga hans, „Sá yðar sem syndlaus
er“ er hans besta hingað til. Og
telst reyndar til bestu glæpasagna
sem íslenskur höfundur hefur sent
frá sér.
Ævar Örn spinnur margslunginn
vef í „Sá yðar sem syndlaus er“. Af
miklu öryggi og yfirsýn. Í byrjun
bókar, sem tekur til páska 2005, er
fórnarlambið kynnt til sögunnar.
Alkóhólistinn og auminginn Ólaf-
ur Áki Bárðarson er meðlimur í
sértrúarsöfnuðinum Sannleikur-
inn þar sem Meistari Magnús
hefur sauðina á valdi sínu. Með
fulltingi bróður síns Ara sem er
sjónvarpsstjóri á Alfa. Þá er stokk-
ið fram í tíma, rúmt ár líður þá er
lík Ólafs finnst. Lögum samkvæmt
koma ýmsir til greina sem morð-
ingjar: Glæpahyski, vafasamir
meðlimir sértrúarsafnaðarins og
brotin fjölskylda Ólafs. Við þetta
þarf svo lögreglugengið, sem
Ævar Örn hefur verið að teikna
upp í fyrri bókum sínum (Skíta-
djobbi, Svörtum englum og Blóð-
bergi), að eiga: Stefán, Árni, Katr-
ín að ógleymdum hinum
harðskeytta Guðna sem höfundur
hlífir hvergi frekar en fyrri dag-
inn.
Þegar bókinni svo lýkur er
innri tími október 2006. Með
öðrum orðum staðsetur Ævar Örn
sögu sína eins nálægt núinu og
unnt er.
Helsti styrkur Ævars Arnar
sem höfundar felst einkum í því
að hann kann að notfæra sér frétt-
ir líðandi stundar til að auka á trú-
verðugleika sögunnar: Hlerunar-
mál, málefni Litla-Hrauns, dóp frá
Litháen … og þannig má áfram
telja. Þessi mál koma eðlilega við
sögu en ekki þannig að þeim sé
troðið kauðslega inn í söguna. Og
íkon eins og Bubbi og Bó eru nefnd
sem partur af leikmyndinni en
höfundur fer hvergi yfir línuna
þannig að tala megi um lykilróm-
an þó svo að kunnuglegir séu
ýmsir drættir til dæmis sé litið til
leiðtoga sértrúarsafnaðarins og að
sjónvarpsstöðin heiti Alfa en ekki
Ómega.
Ævar Örn er öllum hnútum
kunnugur þegar glæpasagnaform-
ið er annars vegar og gramsar í
vopnabúrinu eins og hentar. En
sver sig þó einkum í hina skandin-
avísku glæpasagnahefð þar sem
lögreglugengið er venjulegt fólk
sem á við sinn hversdagslega
vanda að etja. Ekki síst í þessari
bók. Kjöt á beinin eru ýmis samfé-
lagsleg málefni sem í deiglunni
eru svo sem einsemd og firring í
nútímasamfélagi og brotakennd
og innihaldslaus sambönd fólks.
Verður þetta til að dýpa söguna og
gefa henni aukið vægi.
Í ljósi þeirrar lofrullu sem hér
hefur verið framsett mætti ætla
að bókin sé gallalaus. Ekki er það
alveg. Meistaraleg glæpasaga er
sú þar sem allir lausir endar eru
hnýttir á sannfærandi hátt, með
afhjúpandi hætti og jafnvel óvænt-
um. Ævar Örn hefur reyndar alla
þræði í hendi sér og hnýtir þá svo
sem samviskusamlega. En, án
þess að hér sé sagt of mikið, fær
lesandinn á tilfinninguna að hann
sleppi of ódýrt frá því – rembi-
hnútar en ekki pelastikk. Sem
kostar Ævar eina stjörnu.
Í ritdómi um Blóðberg, síðustu
bók Ævars Arnar Jósepssonar,
sem birtist í DV, var því haldið
fram að höfundur gerði tilkall til
krúnunnar þeirrar sem Arnaldur
Indriðason hefur borið sem kon-
ungur hins íslenska krimma. Ekki
verður betur séð en Ævar Örn
hrifsi hana nú til sín með „Sá yðar
sem syndlaus er“. Nýverið fréttist
að Ævar Örn hefði söðlað um, hætt
hjá Eddu og gengið til liðs við Upp-
heima sem er lítið forlag á Skag-
anum. Það hlýtur að vera umhugs-
unarefni þeim Eddu-mönnum í
ljósi þess hversu opnum örmum
lesendur hafa tekið íslenska
krimmanum.
Ævar Örn hrifsar til sín krúnuna
Markmið sjóðsins er að styðja við bakið á
menningar- og listalífi, auk þess að hlúa að
mannréttinda- og líknarmálum.
Það verður m.a. gert með framlögum til stofn-
ana, samtaka og félaga á Íslandi, sem hafa
framangreind málefni sem aðaltilgang sinn.
Formaður stjórnar sjóðsins er Jóhannes Jónsson, en aðrir stjórnarmenn
eru Hreinn Loftsson og Ingibjörg S. Pálmadóttir.
Ritari stjórnar sjóðsins er Soffía Lárusdóttir.
Áhugasamir aðilar sem uppfylla ofangreind skilyrði
eru hvattir til að senda inn umsókn ásamt stuttri
greinargerð.
Samanlögð lengd umsóknar og greinargerðar skal
takmarkast við eina vélritaða síðu (A4).
Umsóknum skal skilað fyrir 15. desember n.k. til:
Styrktarsjóður Baugs Group hf.,
b.t. Soffíu Lárusdóttur,
Túngötu 6, 101 Reykjavík
eða á netfangið styrktarsjodur@baugurgroup.com.
Úthlutun fer fram í janúar.
STYRKTARSJÓÐUR BAUGS GROUP HF.
AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI ÚR SJÓÐNUM
hz
et
a
eh
f
Þriðja úthlutun
MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA!
SAGA UM GRÆNMETI
STÓRAR
HUGMYNDIR
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA VTV Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru bíómiðar, tölvuleikir
DVD myndir og margt fleira
V
in
n
in
g
ar
v
er
ða
a
fh
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í
SM
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.