Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 92
Rokksýningin Rocky Horr-
or hefur verið vinsæl hjá
bæði áhugaleikhópum og
atvinnuleikhúsum. Ekki fær
þó hver sem er að bregða
sér í hlutverk Frank- N-Fur-
ter. Sigurður Kaiser setur
verkið upp eftir áramót.
Menntaskólinn á Ísafirði fær ekki
að setja upp rokksöngleikinn
Rocky Horror á sólrisuhátíðinni í
lok febrúar. Þetta
upplýsir Oddur
Elíasson hjá
leikfélaginu en
sýningarrétt-
urinn er í eigu
Sigurðar
Kaiser og Loft-
kastalans. „Við
setjum bara upp
einhverja aðra
sýningu, það næst alveg,“ segir
Oddur og reiknaði með að einhver
uppfærsla yrði fljótlega valin.
„Þetta er mikið vandamál,“
segir Sigurður Kaiser hjá Loft-
kastalanum en að hans sögn er
þetta ekki í fyrsta skipti sem þeir
stöðva uppsetningu á Rocky Hor-
ror Picture Show hjá áhugamanna-
leikfélagi. Í apríl frétti Sigurður
af því að leikfélag Menntaskólans
í Kópavogi hefði unnið baki brotnu
við að setja þessa sýningu upp og
neyddist hann til að stöðva sýning-
una tveimur dögum fyrir frum-
sýningu. „Auðvitað var það erfitt
fyrir mann eins og mig sem hefur
starfað náið með leikfélögum
menntaskólans að stöðva sýning-
una svona skömmu fyrir stóra
daginn en við eigum sýningarrétt-
inn og verðum að vernda hann,“
útskýrir Sigurður og bætir því við
að það sé erfitt fyrir hann per-
sónulega að horfa framhjá áhuga
áhugamannaleikfélaganna vegna
persónulegra tengsla við höfund
verksins, Richard O‘Brien. „Ég
mæli með því að áhugamannaleik-
félögin og leikfélögin í mennta-
skólum kynni sér hvar sýningar-
rétturinn er en þær upplýsingar
er hægt að nálgast hjá Bandalagi
íslenskra leikfélaga,“ segir Sig-
urður.
Loftkastalinn hyggst sjálfur
setja upp Rocky Horror eftir ára-
mót í nýju leikhúsrými sem ber
nafnið Verið og rúmar í kringum
sex hundruð manns. Samkvæmt
Sigurði mun Gunnar
Helgason leikstýra
verkinu en Rocky
Horror var fyrsta
verkið sem sett var
upp í Loftkastalanum
árið 1995, þá með Helga Björns-
son í hlutverki Frank-N-Furter.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun Björgvin Franz setja
sig í stellingar og klæðast korsel-
ettunni víðfrægu sem dr. Frank en
auk þess hefur Felix Bergsson
verið ráðinn í annað af aðalhlut-
verkunum.
Michael Jackson er búinn að auka
gæsluna í kringum sig til muna
eftir að klæðskiptingur frá Ástral-
íu byrjaði að senda honum yfir 100
bréf á dag. Jackson er með fjóra
lífverði sem fylgja honum hvert
fótmál og klæðist skotheldu vesti
á hverjum degi.
Klæðskiptingurinn ber nafnið
Melanie og kemur meðal annars
fram í bréfunum að hann vilji gift-
ast Jackson og að leiðir þeirra eigi
eftir að liggja saman einhvern
daginn. „Michael lifir í ótta og á
erfitt með svefn vegna þessa enda
Melanie orðin mjög ýtin og ógn-
andi í bréfaskriftum sínum,“ segir
talsmaður söngvarans við breska
blaðið Daily Star.
Jackson er þekktur fyrir að
vera dulbúinn þegar hann fer
meðal almennings og um daginn
vakti hann athygli fyrir að hafa
klæðst kvenmannsfötum þegar
hann var göngu í St.Tropez.
Lifir í ótta
Menntaskólinn við Sund hefur
haldið í þá hefð að halda hið svo-
kallaða 85-þemaball á hverju ári.
Þetta ball er meðal þeirra vinsæl-
ustu hjá menntaskólanemum enda
bæði lögin og tískan hin skemmti-
legasta á þessum áratug.
Nemendur skólans voru klædd
samkvæmt tískustraumum níunda
áratugarins alla vikuna til að hita
upp fyrir ballið og skemmtilegt er
að sjá hversu litríkur og fyndinn
þessi fatnaður er samanber tísk-
una í dag. Ljósmyndari Frétta-
blaðsins brá sér aftur um nokkur
ár í Menntaskólanum í Sund og
fangaði steminguna á filmu.
Túperað hár og krumpugallar
AA
SENDU S
MS
JA BOF Á
1900
OG ÞÚ G
ÆTIR UN
NIÐ!
VINNING
AR ERU:
GSM SÍM
AR
007 DVD
SAFNIÐ
BÍÓMIÐA
R
DVD MY
NDIR OG
MARGT
FLEIRA! 9
hver vinnur!
1.
vinningur!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.