Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 94
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
65 þúsund gestir
ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA
FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA?
MEÐ ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI I
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA ER HAFIN Á MIDI.IS
ATH: EINNIG ER HÆGT AÐ VERSLA MIÐA Í FORSÖLU Í KVIKMYNDAHÚSUNUM
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 6, 8, og 10
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
FEARLESS kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL. TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ kl. 4 og 6
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 4, 8 og 10
BORAT kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 6
BORAT kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
Tom Cruise hefur sett allt
á annan endann á Ítalíu en
leikarinn er nú kominn til
Rómar og undirbýr brúð-
kaup sitt og leikkonunnar
Katie Holmes.
Ítalska þjóðin stendur á öndinni
yfir komu Cruise og hafa fjölmiðl-
ar hreiðrað um sig fyrir framan
Hotel Hassler í miðborg Rómar
þar sem Cruise er sagður gista
ásamt tíu aðstoðarmönnum sínum,
móður og þremur börnum en frá
þessu greinir fréttavefur BBC.
Hótelstjórnendur vildu hins vegar
ekki staðfesta að Cruise væri gest-
ur þeirra og lýstu því meðal ann-
ars yfir við AP-fréttastofuna að
Cruise gisti ekki á hótelinu. Sú
yfirlýsing kom ekki að sök því
hundruð æstra aðdáenda söfnuð-
ust fyrir framan anddyri hótelsins
og biðu spenntir eftir því að fá að
berja goðið augum. Þeim var þó
vörnuð innkoma því lögreglan í borginni hélt þeim í skefjum á
meðan lífverðir Cruise pössuðu
upp á límósínu kappans.
Samkvæmt erlendum frétta-
veitum er líklegt að giftingin fari
fram í Odescalchi-kastalanum við
Bracciano-vatnið en þetta er bygg-
ing frá miðri fimmtándu öldinni
og þykir einstaklega glæsilegur,
með stóra garða og rúmar í kring-
um fjórtán hundruð gesti. Bæjar-
yfirvöld hafa ekki viljað staðfesta
eitt né neitt hvað brúðkaupið varð-
ar og sagði bæjarstjóri Bracciano,
Patrizia Riccioni, að þeim hefði
einungis borist beiðni um að rýma
torgið fyrir framan kastalann ein-
hvern tímann í næstu viku.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um samband Katie Holmes og
Tom Cruise en þeir voru ófáir sem
héldu að þetta væri bara mark-
aðsbrella. Cruise þótti síðan missa
tökin á tilveru sinni, lét eins og
óður maður í spjallþætti Opruh
Winfrey og fyrr á þessu ári rifti
Paramount-kvikmyndaverið
samningi sínum við hann. Holmes
og Cruise trúlofuðu sig í París um
miðjan júní og eiga saman eitt
barn, dótturina Suri, sem fæddist
í apríl.
Hljómsveitin Rass og plötusnúð-
urinn Dj@mundo koma fram á
afmælistónleikum Sykurmolanna
í Laugardalshöll á föstudaginn.
Þegar hafði verið tilkynnt um upp-
hitun Múm.
Dj@mundo hefur verið einn
áhrifamesti plötusnúður landsins
undanfarna tvo áratugi. Hann
hefur haldið sig frá sviðsljósinu
að mestu, en látið að sér kveða í
ráðgjafarstarfi fyrir aðra íslenska
plötusnúða varðandi tónlistarval.
Enn eru til miðar á tónleikana.
Miðasala fer fram í verslunum
Skífunnar í Kringlunni og Smára-
lind, BT á Akureyri, Selfossi og
Egilsstöðum og á midi.is. Miða-
verð er 5.000 krónur auk 350 króna
miðagjalds.
Rass bætist í
hópinn
Fótboltafrúin og fyrrum söngkon-
an Victoria Beckham er í mínus
þessa dagana yfir að hafa óvart
misst út sér við papparazzi-ljós-
myndara á Heathrow-flugvelli að
sonur hennar Romeo þjáist af
flogaveiki. Beckham-hjónin hafa
leynt þessu fyrir fjölmiðlum í
nokkra mánuði og er Victoria með
mikið samviskubit yfir að hafa
látið þetta út úr sér. Hún var
hrædd um að flassið í myndavél-
um ljósmyndaranna hefði vond
áhrif á Romeo og því sagði hún
þeim frá þessu svo ljósmyndar-
arnir myndu hætta að mynda fjöl-
skylduna. David og Victoria Beck-
ham eiga þrjá syni og Romeo er
næstelstur þeirra.
Beckham-
hjónin í mínus
Ólíkt flestum meðbræðrum sínum
hefur grábjörninn Búi aldrei þurft
að komast af upp á eigin spýtur í
óbyggðunum. Hann býr í góðu
yfirlæti í bílskúrnum hjá skógar-
verðinum Betu, sem er smám
saman að siða hann til og og venja
hann við sín náttúrulegu heim-
kynni áður en hún sleppir honum
lausum. Hjörturinn og ólátabelg-
urinn Elli kemur Búa hins vegar í
klandur, sem gerir að verkum að
búferlaflutningunum er flýtt.
Félagarnir eru fluttir til fjalla í
þann mund sem veiðitímabilið
hefst og þurfa að hafa sig alla við
til að komast undan skotglöðum
sveitavörgum með blóðbragð í
munninum.
Skemmst er frá því að segja að
Skógarstríð bætir engu við teikni-
myndaflóru undanfarinna ára.
Flestar teiknimyndir síðari ára
eiga það sameiginlegt að hverfast
um þrautargöngu tveggja ólíkra
félaga – annar oftar en ekki lura-
legur og skapstyggur en hinn
gáskafullur æringi, samanber
myndir á borð við Shrek, Skrímsli
ehf. og Ísöld.
Helsti galli Skógarstríðs er að
hún hverfur hvergi frá formúl-
unni, persónur Búa og Ella eru
trénaðar klisjur sem hafa sést
margoft á stuttum tíma. Sagan er
fyrirsjáanleg, grínið ófágað og
framvindan gisin. Ekki hjálpaði til
að íslensku þýðingunni var veru-
lega ábótavant, mikið um beinþýð-
ingar á orðum sem hljómuðu ank-
annalega á íslensku („Frjóstu!“ í
staðinn fyrir „(Stattu) kyrr!“) og
orðalag á köflum undarlegt og
óþjált („Þú ert tekinn höndum“).
Ekki beinlínis til þess fallið að
skerpa á málvitund krakkanna.
Yngstu áhorfendurnir fá ef til
vill eitthvað fyrir sinn snúð (það
er dýr sem geta talað og detta á
rassinn) en á heildina litið hefur
Skógarstríð ekkert fram yfir
Morgunsjónvarp barnanna að
færa. Þegar börn gera sér ferð í
bíó eiga þau heimtingu á einhverju
betra.
Heimskur er heimaalinn björn