Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 96
Skipulögðu fund með vitlausum Guðjóni
Sigurður Jónsson hefur
verið ráðinn aðalþjálfari sænska
úrvalsdeildarliðsins Djurgården.
Liðið varð tvöfaldur meistari í
fyrra en lenti í sjötta sæti í deild-
inni í ár. Með liðinu leika þeir Sölvi
Geir Ottesen og Kári Árnason sem
voru báðir keyptir frá Víkingi í
Reykjavík þegar Sigurður þjálfaði
meistaraflokk félagsins.
Fréttirnar koma íslenskum
knattspyrnuheimi talsvert á óvart
en síðan Sigurður hætti hjá
Grindavík, þegar tvær umferðir
voru eftir af úrvalsdeild karla í
sumar, hefur lítið til hans spurst.
Hann var orðaður við aðstoðar-
þjálfarastöðuna hjá ÍA sem og
þjálfarastarf hjá Djurgården, þó
ekki starf aðalþjálfarans.
Sigurður hóf sinn þjálfaraferil
hjá FH en fór þaðan til Víkings þar
sem hann féll með liðið úr úrvals-
deild karla en liðið vann sér aftur
sæti í deildinni haustið eftir undir
hans stjórn. Þegar hann var ráð-
inn til Grindavíkur fyrir ári stóð
til að hefja mikið uppbyggingar-
starf en árangurinn í sumar stóð
ekki undir væntingum. Fyrst hætti
Sigurður, svo féll liðið. Gunnlaug-
ur Hreinsson, formaður aðal-
stjórnar Grindavíkur, fór til að
mynda mikinn í pistli á heimasíðu
félagsins þar sem hann gagnrýndi
Sigurð og hans störf óspart. Hann
hefur síðan beðist afsökunar á
ummælum sínum en dró þau ekki
að fullu til baka. „Vonbrigði mín
með sumarið voru að sjálfsögðu
mikil, að svona skyldi fara hjá
gömlu átrúnaðargoði og að hann
skyldi labba frá borði þegar tveir
leikir voru eftir,“ sagði Gunnlaug-
ur í afsökunarbeiðninni sem birt-
ist á sömu heimasíðu.
„Okkur líst afar vel á Sigurð,“
sagði Jonas Riedel, fjölmiðlafull-
trúi Djurgården, við Fréttablaðið í
gær. Ekki náðist í Sigurð sjálfan
þar sem hann er staddur hér á
landi til að gangast undir smá-
vægilega aðgerð vegna sýkingar í
augnloki. „Undanfarnar vikur
höfum við verið að skoða nokkra
þjálfara og kanna hver væri best-
ur fyrir félagið. Ég held að þær
viðræður sem við áttum við Sig-
urð hafi verið mjög góðar og hann
virðist vera afar góður þjálfari.
Hann er einmitt sá þjálfari sem
félagið þarf á að halda nú,“ sagði
Riedel.
Sigurður lék sem atvinnumað-
ur í Svíþjóð og Englandi og þekkir
því heim atvinnumannafótbolta
vel. En sem þjálfari takmarkast
reynsla hans við íslenska knatt-
spyrnu. „Við teljum að Sigurður sé
reiðubúinn að taka næsta skref á
sínum ferli og erum þar að auki
með mjög reynda menn honum til
aðstoðar,“ sagði Riedel og vísaði
til þess að Tord Grip, fyrrum
aðstoðarmaður Sven-Göran Eriks-
son hjá enska landsliðinu, verður
ráðgjafi félagsins í knattspyrnu-
málum.
Meðþjálfari Sigurðar verður
Finninn Paul Lindholm sem hefur
þjálfað lið Djurgården skipað leik-
mönnum átján ára og yngri undan-
farin ár. Lindholm mun hafa
umsjón með þjálfun einstakra leik-
manna en Sigurður stýra sjálfu lið-
inu.
Birt er ítarlegt viðtal við Sigurð
á heimasíðu Djurgården þar sem
hann er spurður út í nýja starfið.
Meðal annars segir hann að starfið
uppfylli þær væntingar sem hann
geri til síns sjálfs sem þjálfara.
„Ég hef mikinn metnað sjálfur
og vil taka næsta skrefið á mínum
ferli,“ sagði Sigurður.
Sigurður Jónsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins Djurgården. Ráðningin kemur
mörgum á óvart en fulltrúi félagsins segir að Sigurður sé sá þjálfari sem henti Djurgården best nú.
Sölvi Geir Ottesen er
annar íslenskra leikmanna hjá
sænska úrvalsdeildarfélaginu
Djurgården. Hinn er Kári Árna-
son en báðir voru þeir keyptir frá
Víkingi árið 2004 þegar Sigurður
Jónsson var þjálfari félagsins.
Hann var í gær ráðinn aðalþjálfari
Djurgården og hittir hann því
fyrir gamla lærisveina sína.
„Þetta er alger draumur í dós
að fá Sigga til félagsins,“ sagði
Sölvi Geir við Fréttablaðið í gær.
„Ég þekki hann mjög vel og hann
hefur þjálfað mig áður. Vissulega
kom þetta okkur talsvert á óvart
enda held ég að í fyrstu hafi hann
búist við að taka að sér annars
konar þjálfunarstarf innan félags-
ins. En þeir sem stjórna félaginu
hafa örugglega fulla trú á honum
og ég hef líka fulla trú á því að
hann eigi eftir að standa sig mjög
vel.“
Sölvi segir að Sigurður megi
búast við allt öðru starfsumhverfi
en þekkist hjá íslenskum félögum.
„Hlutverk hans nú verður miklu
stærra og annað en hingað til. En
hann þekkir þetta líka sjálfur frá
sínum eigin dögum sem atvinnu-
maður.“
Hann býst þó ekki við því að fá
neina sérmeðferð hjá Sigurði.
„Siggi verður ekkert frábrugðinn
öðrum þjálfurum okkar nema að
því leyti að hann þekkir okkur
betur en okkar gömlu þjálfarar.
Hann er fyrst og fremst góður
þjálfari og fagmaður og mun ekki
velja okkur Kára í liðið bara af því
að við erum Íslendingar og þekkj-
um hann. Hann mun stilla upp sínu
besta liði hverju sinni.“
Leikmönnum var tilkynnt um
ráðningu Sigurðar á æfingu í gær.
Sigurður var sjálfur ekki við-
staddur þar sem hann er nú stadd-
ur hér á landi. Sölvi segir að leik-
menn hefðu spurt sig mikið út í
nýja þjálfarann. „Auðvitað er
gaman að fá hann til félagsins.
Hann er gamall þjálfari okkar og
góður vinur.“
Draumur í dós að fá Sigurð
Í gær var dregið í 16
liða úrslit í Meistaradeild Evrópu
í handbolta. Ólafur Stefánsson og
félagar hans í Ciudad Real mæta
danska liðinu GOG en Ciudad
Real eru ríkjandi Evrópumeistar-
ar. Ciudad Real vann alla sína
leiki í riðlinum og leika fyrri
leikinn á útivelli gegn GOG.
Íslendingaliðið Gummersbach
dróst gegn Medvedi frá Rússlandi
og leika fyrri leikinn á útivelli.
Gummersbach var með Fram í
riðli og komst upp úr þeim riðli
ásamt slóvenska liðinu Celje
Lasko.
Lærisveinar Viggós Sigurðs-
sonar í Flensburg mæta einmitt
Celje Lasko í 16 liða úrslitunum
og fyrri leikurinn fer fram í
Slóveníu.
Ciudad Real
mætir GOG