Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 99
Michael Ballack, miðvall-
arleikmaður Chelsea, hefur viður-
kennt að hann finni fyrir álagi
eftir að hafa fengið litla hvíld und-
anfarin ár. Þessi þrítugi leikmaður
var fyrirliði Þjóðverja sem kom-
ust í undanúrslit á HM í sumar og
lék sinn fyrsta leik með Chelsea
mánuði síðar.
„Ég er ekki farinn að nota
varatankinn ennþá. En ég er alveg
á ystu nöf hvað varðar líkamlegt
álag. Það mun koma í ljós í vor
hvaða áhrif það hefur að hafa ekki
vetrarhlé,“ sagði Ballack í samtali
við þýska dagblaðið Frankfurter
Allgemeine Zeitung.
Ballack bætti því við að hann
yrði glaður ef hann fengi frí í
„auðveldari leikjunum“ eins og
hann orðaði það, til að vera í góðu
ástandi í lok tímabilsins.
Ballack segist vera ánægður
með að hafa farið til Chelsea og
yfirgefið sitt gamla félag Bayern
München.
„Lífið gekk vel hjá mér í
München en ég gaf það vísvitandi
upp á bátinn af því að ég vildi
sanna mig. Umhverfið er allt öðru-
vísi núna, liðið er öðruvísi og
væntingarnar eru aðrar. Hjá Chel-
sea eru allir leikmennirnir í hæsta
gæðaflokki,“ sagði Ballack sem
leikur sinn 75. landsleik fyrir
Þjóðverja í kvöld.
Líkamlegt álag alltof mikið
David Beckham hefur
útilokað að hann muni snúa aftur
til Manchester United eins og
enskir fjölmiðlar gerðu að því
skóna um helgina.
Var sagt að Beckham væri
tilbúinn að taka á sig stóra
launalækkun og sættast við Alex
Ferguson, stjóra liðsins.
„Ég naut margra frábærra ára
hjá Manchester United en
þessum kafla í lífi mínu er lokið.
Ég sakna margra vina minna í
Manchester eins og margra
annarra hluta þar. En ég hef snúið
mér að öðrum hlutum núna.“
Útilokar endur-
komu til United
Einn leikur fór fram í
Iceland Express-deild karla í
körfubolta í gær þegar Hamar/
Selfoss tók á móti Snæfelli í
Hveragerði. Leikurinn var
æsispennandi og fór í framleng-
ingu þar sem Snæfell hafði betur,
79-77.
Snæfellingar höfðu undirtökin
lengst af í gær en Hamar/Selfoss
komst eingöngu þrisvar sinnum
yfir í leiknum. Hamar/Selfoss
náði að jafna metin undir lokin og
komst í framlengingu. Hamar/
Selfoss var með boltann þegar 14
sekúndur voru eftir af leiknum og
tók þá leikhlé. Hamar/Selfoss átti
því síðustu sóknina í leiknum en
allt kom fyrir ekki og Snæfell
vann góðan útisigur í Hveragerði.
Snæfell vann í
framlengingu
Það var sannkallaður
Íslendingaslagur í Þýsku úrvals-
deildinni í gær þegar Alfreð
Gíslason og lærisveinar hans í
Gummersbach heimsóttu Lemgo.
Svo fór að Lemgo fór með sigur
af hólmi í leiknum 34-29.
Logi Geirsson skoraði sex
mörk fyrir lið Lemgo í leiknum
en Ásgeir Örn Hallgrímsson
komst ekki blað. Róbert Gunnars-
son skoraði fimm mörk í jafn
mörgum marktilraunum en
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
þrjú mörk í sex skotum fyrir
Gummersbach. Guðlaugur
Arnarsson lék í vörn Gummers-
bach en Sverre Andreas Jakobs-
son er meiddur og lék því ekki
með í gær.
Með sigrinum komst Lemgo
upp fyrir Gummersbach í efsta
sæti deildarinnar.
Lemgo lagði
Gummersbach
Stjarnan komst
auðveldlega í átta liða úrslit SS-
bikars karla í gær með sigri á
Þrótti úr Vogum, 44-12.
Fjöldi áhorfenda lagði leið sína
í Garðabæinn enda var Egill
„Gilzenegger“ Einarsson búinn að
lofa sannkölluðum stjörnufansi í
Þróttaraliðinu. Þessi fjöldi
áhorfenda varð fyrir miklum
vonbrigðum. Í ljós kom að lið
Egils var skipað lítt þekktum
einstaklingum, fyrir utan Örn
Arnarson sundkappa, og stjörn-
urnar víðs fjarri. „Vörusvik“
heyrðist í áhorfendum sem létu
Egil hafa það óþvegið fyrir fölsku
loforðin. Það vakti einnig athygli
að Egill komst ekki einu sinni í
byrjunarlið Þróttar.
Vörusvik í
Garðabæ