Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 104
júlí árið 1991 birtist bréf með
fyrirsögninni „Stöðvið karlrembu-
heilaþvottinn“ í Velvakanda. Þar
sagði m.a.: „Ég bý nálægt miðbæn-
um og er bíllaus. Ég get því ekki
farið langt án þess að götuvitar
með sínum grænu og rauðu körl-
um verði á vegi mínum. ... Lítil
börn í umferðarfræðslu læra að
græni karlinn segi að þau megi
ganga yfir götuna en rauði karlinn
segi að það megi ekki. Með þessu
er börnum kennt að karlar hafi
allan rétt til að ráða. Réttinn til að
segja já eða nei (og hér er ég ekki
bara að tala um umferðina). ...
Þessu yrði mjög auðvelt að breyta.
Ég býst við að karlinn sé einungis
gat á spjaldi með ljósi á bak við og
því væri auðvelt að skera út
mjaðmir, barm eða kvenlegt hár
og föt á nokkrum götuvitum.“
bréfið skrifaði Geirhild-
ur Elín Reynisdóttir. Bréfið henn-
ar vakti nokkra athygli og ég man
að dagskrárgerðarmenn Rásar 2
lögðu nokkuð á sig til að reyna að
hafa upp á henni. Engin reyndist
samt skráð með þessu nafni í
Þjóðskrá. Ástæðan fyrir því var
einföld. Bréfið var skrifað af litla
bróður mínum sem þá var 15
ára.
síðan hefur Geirhildur Elín
Reynisdóttir lifað í minningu
okkar systkina og því fannst okkur
feikigaman að sjá hugmynd henn-
ar ganga aftur í tillögu sem Sam-
fylkingarkonan Bryndís Ísfold
Hlöðversdóttir lagði fyrir borgar-
ráð á dögunum um að sett yrðu
upp gönguljós í Reykjavík þar sem
ljósið sýni konu í stað karls. Á
Spáni er þegar byrjað að kven-
væða umferðarmerkin því borist
hafa fréttir að í einni borginni þar
í landi sjáist nú konur í pilsi með
tíkarspena á merkjunum.
að Geirhildur Elín hafi fyrst
komið fram með þessa hugmynd í
upphafi 10. áratugarins er hún
algjörlega í anda krúttkynslóðar-
innar. Þess vegna hefur mér alltaf
þótt líklegt að ráðamenn tækju
henni fagnandi eins og mörgu öðru
sem komið hefur úr þeirri átt. Til-
laga Bryndísar er aftur á móti ekki
aðeins gerð úr kandíflosi því hún
hefur líka pólitíska skírskotun.
Þetta er einn liðurinn í því að gera
konur sýnilegri og meira gildandi í
samfélaginu. Ég er heldur ekki frá
því að græni karlinn yrði dauðfeg-
inn að geta nú loks deilt ábyrgð-
inni með öðrum. Hann virðist allt-
af hvort eð er engan áhuga hafa á
starfi sínu, alltaf einhvern veginn
á leiðinni burt.
Konur í nýju
ljósi
www.toyota.is
RAV4 - með glæsilegum aukahlutapakka
RAV4 boðar breyttar áherslur í lífi þínu. Ríkulega búinn staðalbúnaði
dregur hann þig út á vegina og þú upplifir nýtt land á nýjum bíl.
Alveg nýr heimur
RAV4 sameinar kosti borgarbílsins og fjölhæfni og kraft jeppans. Hvort
sem menn eru að sinna erindum sínum í bænum eða utan hans þá er
RAV4 bíllinn sem fer alla leið.
Nú bjóðum við RAV4 með veglegum aukahlutapakka, vetrardekkjum,
dráttarbeisli, mottu í skott og filmum í rúður, að verðmæti 214.000 kr.
Verð frá 2.880.000. kr.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Allt sem þú ætlaðir að gera í fyrra
gerirðu tvisvar í vetur
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
O
Y
3
49
74
1
1/
06
Aukahlutapakki að verðmæti 214.000 kr.
Dráttarbeisli
Gólfmotta í skottVetrardekk
Skyggðar rúður
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alladaga
- Lifið heil
AUGL†SINGASÍMI
550 5000