Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 6

Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 6
Hefurðu séð Mýrina? Styður þú West Ham í ensku knattspyrnunni? Aðalmeðferð var í gær í máli Guðjóns St. Marteins- sonar héraðsdómara gegn íslenska ríkinu. Guðjón höfðaði mál fyrr á þessu ári þegar Alþingi hafði með lagasetningu að frumkvæði ríkis- stjórnarinnar fellt úr gildi ákvörð- un Kjaradóms um launahækkun til handa æðstu embættismönnum og kjörnum fulltrúum þjóðarinn- ar. Gestur Jónsson hrl. segir að málið sé merkilegt fyrir þær sakir að starfandi héraðsdómari hafi viljað láta á það reyna hvort það stæðist sem gerðist fyrr á árinu þegar Alþingi tók ákvörðun Kjara- dóms úr sambandi. Niðurstaðan getur varðað hag allra dómara í landinu og viku þeir því sæti allir sem einn. Björn Bjarnason dóms- málaráðherra skipaði Þórð S. Gunnarsson, forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík, sem dóm- ara í málinu og valdi hann með sér tvo meðdómendur, Ragnhildi Helgadóttur, kennara við laga- deild HR, og Róbert Spanó, kenn- ara við lagadeild Háskóla Íslands. „Þetta mál varðar grundvallar- atriði í stjórnskipuninni,“ segir Gestur. „Það varðar meðal annars valdmörkin milli löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds og reynir á sjónarmið um sjálf- stæði dómara gagnvart löggjafar- valdinu, jafnræði dómara gagn- vart öðrum sem taka laun og sjónarmið um vernd eignarrétt- inda. Þetta eru allt atriði sem tengjast mannréttindum eða stjórnarskrá.“ Deila um grundvallaratriði „Ég held að það verði að gera kröfu um fimm eða tíu ára stöðvun allra virkjunarfram- kvæmda. Ég held að það eigi ekk- ert að bíða til 2010 heldur byrja strax og stoppa,“ sagði Árni Finns- son, formaður Náttúruverndar- samtaka Íslands, á fundi hjá Sam- tökum iðnaðarins í gær. Umræðuefni fundarins var sú spurning hvort mögulegt væri á grundvelli nýrrar skýrslu auð- lindanefndar að ná sátt milli nátt- úruverndarsinna og þeirra sem hafa að leiðarljósi hefðbundna nýtingu auðlinda í jörðu og vatns- afls. „Spurningin er sú hversu mikil inngrip við getum sætt okkur við og hvað af íslenskri nátttúru er okkur heilagt þegar kemur að fram- kvæmdum sem breyta svipmóti þess landsvæðis sem okkur er kært,“ sagði Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og benti á að í samanburði við hatrömm átök um vatnsaflsvirkjanir hefðu aðrar framkvæmdir, eins og vega- og hafnargerð, sem einnig breyttu ásýnd landsins, verið lítið umdeild- ar. Jónína sagðist telja að skipta ætti landinu upp í belti. „Mann- virkjabelti annars vegar og hins vegar heildir náttúruverndarsvæða er sú aðferðafræði sem við eigum að vinna eftir,“ sagði ráðherrann og ítrekaði nauðsyn þess að sættir næðust með þjóðinni í þessum efnum: „Á orkusviðinu, rétt eins og þegar kemur að stórbrotinni nátt- úru landsins, eigum við mikla mögu- leika og við eigum að vera í farar- broddi. En til þess að svo megi verða verðum við öll að vera sam- stíga og það er verkefni okkar stjórnmálamanna að byggja brýr á milli ólíkra hagsmuna og á milli ólíkra skoðana. Aðeins með því verklagi er hægt að segja að sátt sé í sjónmáli.“ Árni Finnsson benti á að niður- stöður auðlindanefndarinnar hefðu verið þær að Alþingi samþykki ekki seinna en árið 2010 lög eða þings- ályktun um verndun og nýtingu orkuauðlinda. Enn væri gert ráð fyrir að virkjað yrði fram til ársins 2010 því sem næmi næstum tveimur Kárahnjúkavirkjunum. Þá fyrst er ætlunin að hefjast handa við að búa til langtíma verndunar- og nýtingar- áætlun. Það væri óásættanlegt: „Þetta er náttúrulega eins og frekar lélegur bílasali. Það er verið að selja frekar ryðgaða kerru.“ Auðlindaskýrsla ekki grundvöllur sáttar Formaður Náttúruverndarsamtaka Ísland segir nýja skýrslu auðlindanefndar varla grundvöll fyrir sáttum verndunarsinna og virkjunarsinna. Umhverfisráð- herra vill skipta landinu upp í mannvirkjabelti og náttúruverndarsvæði. Víglundur Þorsteins- son, framkvæmdastjóri BM- Vallár, hefur sett fram þá hugmynd að umráð yfir sameigin- legum orkuauðlindum lands- manna verði fengin sérstökum auðlindasjóði sem ávallt yrði í jafnri eigu íslenskra ríkisborgara á hverjum tíma sem síðan fengju greiddan arð í samræmi við hagnað félagins. Þetta kom fram í máli Víglundar á fundi Samtaka iðnaðarins í gær um mögulegar sættir náttúru- verndarsinna og þeirra sem vilja virkjun orkulinda. Víglundur sagði grundvöll allra sátta að einkaeignarréttur þeirra sem til dæmis eigi orkulindir verði að fullu virtur. Allir fái arð „Við höfum byrjað að und- irbúa matsáætlun. Matsáætlun er fyrsta skrefið í ferli mats á umhverf- isáhrifum. Við munum hafa hana til- búna í drögum í mars á næsta ári og verður þá hægt að hefja umhverfis- matsferlið, ef tekin verður ákvörð- un um að fara í það,“ sagði Gunnar Guðni Tómasson hjá HRV á fundi Alcoa á Akureyri í gær. Niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið vegna fyrsta áfanga í undirbúningi byggingu álvers á Bakka við Húsavík voru kynntar á fjölsóttum fundum á Akureyri og Húsavík í gær. Kom þar fram að ákveðið hefur verið að fara í annan áfanga undirbún- ingsvinnunnar. Gunnar Guðni sagði búið að leggja gróft mat á nokkra þætti umhverfisáhrifa af álveri á Bakka og að fyrstu vísbendingar bentu ekki til þess að áhrif á dýralíf yrðu mikil. „Bein áhrif verði á fuglalíf innan byggingarsvæðisins sjálfs en utan þess verði áhrif lítil,“ sagði hann. „Við ætlum okkur að halda áfram í annan áfanga og kanna nánar ýmis atriði, til dæmis hafn- armál, orkumál og arðsemi verk- efnisins,” segir Kristján Þ. Hall- dórsson, verkefnisstjóri Alcoa á Norðurlandi. Hann segir jákvæðni heimamanna skipta miklu máli fyrir verkefnið, en hins vegar sé nauðsynlegt að umræða um verk- efni af þessari stærð sé mikil og málefnaleg. Alcoa opnaði upplýsingamið- stöð á Húsavík í gær og er henni ætlað að þjónusta heimamenn og aðra þá sem þurfa að leita upplýs- inga vegna hugsanlegs álvers. Umhverfismat gæti hafist í vor Sænska lögreglan tilkynnti í gær að hún hefði fundið skammbyssu sem tengdist hinu óupplýsta morði á Olof Palme, þáverandi forsætisráð- herra, árið 1986. Of snemmt væri þó að segja með vissu hvort um sjálft morðvopnið væri að ræða. Kafarar fundu Smith & Wesson-byssu af hlaupvíddinni 0.357 í stöðuvatni í Mið-Svíþjóð, en ákveðið var að kafa þar eftir að dagblaði barst nafnlaus ábending um að þar væri byssuna að finna. Að sögn lögreglunnar er vopnið ein stærsta uppgötvunin sem gerð hefur verið í tveggja áratuga langri raunasögu rannsóknarinnar á morðinu. Á þessum langa tíma hefur lögreglan rannsakað hundruð skammbyssna af þessari gerð, sem notuð var við morðið þann 28. febrúar 986. Vopnið fundið Samkomulag hefur náðst um jarðhitaleit í Fljótshlíð milli Orkuveitu Reykjavíkur og Rangárþings eystra. Forsendur leitarinnar eru þó þær að sam- komulag náist við landeigendur á svæðinu. Samkvæmt tillögunum er stefnt að því að bora grunnar rannsókn- arholur víðs vegar um svæðið í leit að heitum vatnsæðum. Finnist heitt vatn í einhverjum mæli á það að nýtast til að efla rekstrar- öryggi hitaveitunnar á Hvolsvelli og að mæta ört vaxandi eftirspurn í Fljótshlíðinni, en veruleg uppbygging á sumarbústaðar- byggðum og ferðaþjónustu hefur átt sér þar stað á undanförnum árum. Bora í Fljótshlíð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.