Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 10

Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 10
 Stórauknar for- varnir, aukin þjónusta við foreldra unglinga í vímuefnavanda svo og unglinga sem ekki þurfa að fara inn á Vog til að ná bata er meðal þeirra sóknarfæra sem ný göngu- deild SÁÁ að Efstaleiti 7 gefur kost á, að sögn Þórarins Tyrfings- sonar yfirlæknis á Vogi. Nýja göngudeildin verður opnuð með pompi og prakt næst- komandi laugardag og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. „Þetta er langþráð markmið sem við erum að ná,“ segir Þórar- inn. „Með tilkomu þessa nýja hús- næðis komum við skrifstofuhaldi og göngudeildarstarfi undir eitt þak, en þetta hefur lengst af verið rekið í tveimur húsum. Við þrengd- um að vísu að meðan verið var að byggja nýju göngudeildina, þegar við færðum skrifstofuna úr Ármúla í Síðumúla þar sem við höfum verið með göngudeildar- þjónustu.“ Þórarinn segir göngudeildar- þáttinn í starfsemi SÁÁ oft gleym- ast. Gríðarlega mikil þjónusta hafi verið veitt í Síðumúla, sem sé búin að sprengja húsnæðið utan af sér og verði nú flutt í Efstaleitið. Þar megi nefna margvíslega þjónustu við aðstandendur bæði hvað varð- ar ráðgjöf, upplýsingagjöf og með- ferð. Um sé að ræða þjónustu fyrir maka, foreldra og börn alkahólista, sem hafi verið veitt síðan 1977. „Þá hefur verið veitt viðamikil þjónusta fyrir þá sem ekki hafa þurft að fara inn á Vog, bæði með viðtölum og greiningu,“ útskýrir Þórarinn. „Með því hefur verið hægt að hjálpa þeim á göngudeild. Þetta á einkum við um yngsta ald- urshópinn, 14-18 ára, og foreldra viðkomandi. Þá býður göngudeild- in upp á afar mikinn skipulagðan stuðning við fólk eftir meðferð, en hann varir í ár. Loks sækja þeir göngudeild sem verið hafa frá vímuefnum í ákveðinn tíma, en er boðið upp á upprifjunarnám- skeið.“ Fjöldamargir hafa nýtt sér þessa þjónustu, því samtals hafa verið um 15.000 heimsóknir á göngudeild SÁÁ á ári hverju. „Með tilkomu nýja húsnæðisins getum við aukið við starfsemina,“ heldur Þórarinn áfram. „Þetta nýja húsnæði gefur okkur algjörlega ný sóknarfæri. Við getum fjölgað starfsfólki ef við fáum styrk til þess. Þar verður miklu betri aðstaða til þess að vera með stuðn- ing og félagslega uppbyggingu í kringum og eftir meðferðina á Vogi. Við erum afar ánægðir.“ Forvarnir verða auknar á nýrri göngudeild SÁÁ Ný göngudeild SÁÁ, sem opnuð verður á allra næstu dögum í Efstaleiti, mun gefa möguleika á stórauk- inni þjónustu. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að langþráðu markmiði sé náð. Á nýju deild- inni verður öll aðstaða betri en á eldri deildinni sem var til húsa í Síðumúla. Starfsfólki verður fjölgað. Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Norðausturkjör- dæmi. Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður, Kristján Þór Júlí- usson, bæjarstjóri á Akureyri og Þorvaldur Ingvarsson, læknir á Akureyri, vilja öll leiða listann í kosningunum í vor. Ólöf Norðdal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, gefur kost á sér í annað sætið, Kristinn Pétursson, framkvæmda- stjóri á Bakkafirði og Sigríður Ingvarsdóttir varaþingmaður stefna á 2.-3. sæti og Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsa- vík, gefur kost á sér til þingsætis, eins og hann orðar það. Steinþór Þorsteinsson háskóla- nemi sækist eftir þriðja sæti og Björn Jónasson innheimtustjóri eftir fjórða sætinu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo menn kjörna í kjördæminu í síð- ustu kosningum. Halldór Blöndal, sem fór fyrir listanum, lætur af þingmennsku í vor og Tómas Ingi Olrich, sem var í öðru sæti, varð sendiherra í París þegar skammt var liðið á kjörtímabilið. Arnbjörg tók sæti hans á þingi. Prófkjörið fer fram á laugar- dag og verður kosið á tuttugu stöð- um. Í tíu fjölmennustu byggðar- lögunum stendur kjörfundur frá 9-18 en skemur annars staðar. Utankjörfundur verður í Grímsey í dag. Rétt til þátttöku hafa flokks- bundnir Sjálfstæðismenn og þeir sem hafa undirritað inntökubeiðni í flokkinn fyrir lok kjörfundar. Sjö vilja núverandi þingsæti Á umræðuvef live2cruz-klúbbsins er nú boðinn til sölu ýmiss konar lögreglubún- aður. Meðal þess sem hægt er að kaupa eru handjárn, forgangsljósa- búnaður og sírenur. Sá sem selur búnaðinn segir meðal annars um handjárnin sem hann býður að þau séu „sama gerð og löggan notar hér heima, lykillinn virkar af þeim líka ef þið lendið einhverntímann í vandræðum. Eitt sett af handjárn- um og tveir lyklar. Verð, 15.000.“ Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn staðfesti að þetta væri sami búnaður og lögreglan notast við. Hann segir ekki ólöglegt að selja slíkan búnað, en að það geti verið ólöglegt að kaupa hann. „Það getur ekki hver sem er keypt þetta. Það mega einungis ákveðnir aðilar kaupa þennan búnað. Það má eng- inn nota blikkandi blá ljós nema lögreglan, björgunarsveitir og aðrir þeir sem eru í forgangsakstri. Handjárn má hins vegar enginn nota nema lögregla. Þannig að þetta gæti aldrei nýst neinum öðrum.“ Geir Jón segir að hörð viðurlög séu við því að nota búnaðinn og að það komi alltaf upp annað veifið að lögregla geri svona búnað upptæk- an. „Menn hafa þá oft verið að kaupa þetta erlendis og við höfum gert þetta upptækt við komuna til landsins. Það eru þá handjárn og annað slíkt. En þetta er afar fátítt. Ef menn eru svo að nota þessi bláu ljós eða annað á ökutæki þá er það tekið af þeim eins og skot.“ Menntaráð hefur stofnað starfshóp um málefni barna af erlendum uppruna í grunnskólum Reykjavíkur. Starfshópurinn á að skoða rannsóknir á stöðu innflytjenda og gengi þeirra í skólum og gera tillögur um úrbætur í þjónustu. Menntaráð hefur ákveðið að efna til málþings um íslensku- kennslu og hefur sviðsstjóra menntasviðs verið falið það verkefni. Ætlunin er að ræða núverandi stöðu og framtíðar- skipulag íslenskukennslu fyrir útlendinga og kostnaðar- og verkaskiptingu ríkis, sveitarfé- laga og atvinnulífs. Málþing um íslenskukennslu John Kerry segir misheppnaðan brandara sinn um hermenn í Írak fyrr í mánuðnum ekki vera hindrun sækist hann eftir því að verða forsetafram- bjóðandi demókrata á nýjan leik. Hillary Clinton, fyrrverandi forsetafrú, og Barack Obama, öldungadeildarþingmaður frá Illinois, eru einnig talin líklegir frambjóðendur. Repúblikaninn John McCain segir flokksbróður sinn Rudy Giuliani vera „ameríska hetju“ vegna viðbragða hans við árásunum 11. september í borgarstjóratíð hans í New York. Hinn sjötugi McCain segist hins vegar vera betra forsetaefni. „Ég er eldri en mold og með fleiri ör en Frankenstein, en hef lært ýmislegt gegnum tíðina,“ segir McCain. Brandari hindr- ar ekki Kerry
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.