Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 13
Hollendingar ganga
að kjörborðinu í dag til að kjósa
nýtt þing, en skoðanakannanir
benda til að mjög mjótt verði á
mununum milli flokkafylkinga
vinstra og hægra megin við miðju.
Því er því spáð að stjórnarmyndun
geti tekið langan tíma.
Samkvæmt síðustu skoðana-
könnunum sem gerðar voru fyrir
kjördag hefur Verkamannaflokk-
urinn, undir forystu Wouters Bos,
unnið upp að mestu fylgisforskot
kristilegra demókrata, sem lúta
forystu Jans Peter Balkenende
forsætisráðherra. Þetta veldur því
að stjórnmálaskýrendum þykir
sennilegt að eftir kosningar verði
erfitt að mynda starfhæfa meiri-
hlutastjórn nema með samstarfi
þessara tveggja, en nýlegt for-
dæmi fyrir slíku stjórnarmynstri
er „stóra samsteypa“ jafnaðar-
manna og kristilegra demókrata í
Þýskalandi.
„Það er almennt álitið að stjórn-
armyndun verði erfið og dragist á
langinn; hún gæti auðveldlega
tekið tvo til þrjá mánuði,“ hefur
AP eftir Jos de Beus, stjórnmála-
fræðingi við Amsterdam-háskóla.
Þótt innflytjendamál hafi ekki
verið áberandi í yfirborði kosn-
ingabaráttunnar er afstaðan til
þeirra enn eitt heitasta málið í hol-
lenskum stjórnmálum. Meðal þess
sem helst skilur þá Bos og Balken-
enden að er hvernig á að taka á
þeim málum framvegis og hvern-
ig staðið skuli að aðlögun einnar
milljónar múslima sem í landinu
búa.
Mjótt á munum
milli fylkinga
Hópbílar hf. í Hafnar-
firði hlutu umhverfisverðlaun
Ferðamálastofu fyrir árið 2006.
Alls bárust átján tilnefningar til
umhverfisverðlaunanna í ár.
Í rökstuðningi með ákvörðun-
inni segir að Hópbílar hafi frá
árinu 2001 einsett sér að vera í
fararbroddi í umhverfismálum og
árið 2004 fékk fyrirtækið umhverf-
isstefnu sína vottaða samkvæmt
alþjóðlega umhverfisstaðlinum
ISO 14001.
Umhverfisstefnan hefur síðan
verið yfirfarin og uppfærð árlega.
Hópbílar hlutu verðlaunin í ár
Sveinn H.
Skúlason, forstjóri Hrafnistu,
segir að það sé ekki heilbrigðis-
ráðherra að kenna að bygging
hjúkrunarheimila hafi dregist í
borginni. Hann minnir á að
borgin hafi úthlutað lóð undir
hjúkrunarheimili við Sogamýri og
lóðarhafinn síðan ekki reynst
hafa fjárhagslegt bolmagn til
framkvæmdanna.
„Ríkið hefur lagt tugi milljóna
króna í hönnun og undirbúning á
hjúkrunarheimili í Mörkinni,“
segir Sveinn og telur að það sé
„ávísun á enn eina töfina“ ef farið
verður að hræra í því máli.
„Sóltún getur bara boðið í
reksturinn eins og aðrir, það er
ekki verið að loka þá af frá einu
eða neinu,“ segir hann.
Sóltún getur líka boðið