Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 17

Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 17
 Tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á tæplega fimmtugan mann á heimili hans í júní. Sýslumaður- inn á Akranesi gaf út ákæruna. Árásarmaðurinn sparkaði og sló ítrekað í höfuð, bak og fætur mannsins, felldi hann til jarðar og hélt áfram að sparka í hann liggjandi. Fórnarlambið brotnaði á vinstri lærlegg, hlaut glóðar- auga á báðum augum og mar og yfirborðsáverka í andliti, útlimum og á baki. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar auk þess sem fórnarlambið fer fram á skaðabætur. Réðist á mann og fótbraut Sextíu fuglum var lógað í Húsdýragarðinum í Laugardal í fyrradag. Ástæðan fyrir því er sú að afbrigði af fuglaflensu fannst í fjórum hænum af tíu sem tekin voru sýni úr í garðinum nú í haust. Að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis var gripið til þessa ráðs til að útiloka frekari smithættu. Fuglarnir sem var lógað eru umræddar tíu hænur, fasanar, dúfur, endur, gæsir og ein álft. Erni og tveimur fálkum var þyrmt því ekki er talið líklegt að þeir hafi smitast. Halldór segir að fólk sem hefur heimsótt garðinn að undanförnu þurfi ekki að hafa neinar áhyggj- ur af smiti. Sextíu fuglum var lógað Strokufanginn sem gaf sig fram á Litla-Hrauni á fimmtudaginn var með fjörutíu grömm af amfetamíni og steratöflur í endaþarminum. Fíkniefnin fundust við röntgen- myndatöku eftir að manninum hafði verið stungið aftur inn í fangelsið. Um eftirmiðdaginn á föstudag- inn fundust fíkniefni á tveimur konum sem voru gestir á Litla- Hrauni, en fíkniefnahundur hafði runnið á lyktina. Við röntgen- myndatöku fannst amfetamín auk læknataflna innvortis í annarri þeirra að sögn lögreglunnar á Selfossi. Faldi fíkniefni í endaþarmi Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, sem nú gegnir formennskunni í Evrópusam- bandinu, varaði Tyrki við því á mánudag að þeir yrðu að taka sig verulega á í deilunni um Kýpur, vilji þeir afstýra því að aðildar- viðræður þeirra stöðvist alveg. Vanhanen minnti Tyrklands- stjórn á að ESB hefði gefið henni frest til 6. desember til að samþykkja málamiðlun. Abdullah Gül, utanríkisráð- herra Tyrklands, sagði fráleitt að setja slíka fresti þegar um jafn snúið deilumál er að ræða og Kýpurdeiluna og því muni Tyrkir sinna þeim í engu. Hvetur Tyrki til að gefa eftir Fimmtudagur 23. nóvember 9.00 Skráning og afhending þinggagna 9.30 Þingsetning Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu. Ávarp Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. „Umferðarljósið“, verðlaunagripur Umferðarráðs veittur í sjöunda sinn þeim aðila, einstaklingi, samtökum eða stofnun, sem unnið hefur sérstaklega árangursríkt og/eða eftirtektar- vert starf á sviði umferðaröryggismála. Tónlist – Lögreglukórinn Stjórnandi Guðlaugur Viktorsson Einsöngur Eiríkur Hreinn Helgason Stutt hlé 10.30 Umferðaröryggisáætlun til 2016 Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgöngu- ráðuneytinu og formaður Umferðaröryggisráðs. 10.45 Nýskipan lögreglumála – þáttur lögreglu í auknu umferðaröryggi Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. 11.00 Rannum – Rannsóknarráð umferðaröryggismála Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, formaður. Fyrirspurnir og umræður 11.40 Léttur málsverður Öruggari vegir, götur og umhverfi vega 12.45 Umferðaröryggi vegakerfa Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar. 13.00 Hringtorg – mismunandi útfærslur á Íslandi Erna Hreinsdóttir verkefnastjóri, Vegagerðinni og Bryndís Friðriksdóttir verkfræðingur, Línuhönnun. 13.15 „EuroRAP“ (European Road Assessment Program) á Íslandi Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður FÍB. 13.30 Nýjungar í vegriðsmálum og öryggisbúnaði vega í Evrópu Bernd Wolfgang Wink, stjórnarmaður í European Uninon Road Federation. Fyrirspurnir og umræður Forvarnir, löggæsla 14.30 Sjálfvirkt hraðaeftirlit á Íslandi Hjálmar Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Ríkislögreglustjóraembættinu. 14.45 Hraðastjórnun á vegum (Speed Management) Rögnvaldur Jónsson, fyrrv. framkvæmdastjóri, Vegagerðinni. 15.00 Umferðarfræðsla í skólum Ásta Egilsdóttir, kennari í Grundaskóla á Akranesi og Kristín Björg Þorsteinsdóttir, fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu. Fyrirspurnir og umræður – kaffihlé Öruggari ökutæki – öruggari ökumenn – ungir ökumenn 15.45 Árekstrar í alvarlegum bílslysum og árekstravarnir Sævar Helgi Lárusson, sérfræðingur í tæknimálum ökutækja, Umferðarstofu. 16.00 Hraðakstur – ungir ökumenn – viðhorf, lífsstíll, ábyrgð. Nauðsyn fræðslu um orsakir og afleiðingar alvarlegra umferðarslysa Ásdís J. Rafnar hrl., formaður rannsóknarnefndar umferðarslysa. 16.15 Ökuréttindi – aldur, þroski, reynsla og hæfni Holger Torp, sérfræðingur ökunáms, Umferðarstofu. Fyrirspurnir og umræður Þingfundi frestað Föstudagur 24. nóvember Áfengi, lyf, þreyta, slysarannsóknir 9.00 Umferðaróhöpp og meiðsli eldri ökumanna Guðmundur Freyr Úlfarsson, aðstoðarprófessor í byggingarverkfræði við Washington–háskóla í St. Louis. (Verkefni styrkt af Rannum 2005). 9.15 Fíkniefnaskimun – áhrifarík greiningaraðferð gegn fíkniefnaakstri Jón Sigfússon, forstöðumaður Rannsókna og greiningar, Háskólanum í Reykjavík. 9.30 Syfja og akstur Gunnar Guðmundsson Dr. Med., lungnalæknir. Fyrirspurnir og umræður Kaffihlé Umferðaröryggi í alþjóðlegu samhengi 10.15 Ísland og umheimurinn; þróun alþjóðlegs samstarfs í umferðaröryggismálum Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu og varaformaður Umferðarráðs. 10.30 Umferðaröryggi í Evrópu – staðan í dag og leiðir til úrbóta Dr. Günter Breyer, aðstoðarvegamálastjóri Austurríkis Fyrirspurnir og umræður 11.30 Pallborðsumræður Fulltrúar skiptast í umræðuhópa samkvæmt dagskrárliðum þingsins. 12.15 Hádegisverður 13.00 Umræðuhópar hefja störf 14.45 Fulltrúar umræðuhópa gera í stuttu máli grein fyrir starfi þeirra Almennar fyrirspurnir og umræður – ályktanir þingsins 15.45 Þingslit – formaður Umferðarráðs Móttaka í boði samgönguráðherra Umferðarþing er öllum opið. Þátttökugjald með veitingum er 12.500 kr. Skráning er á heimasíðu Umferðarstofu, www.us.is, til 22. nóvember. Þar er að finna nánari upplýsingar um þingið. Einnig í síma 580 2000. UMFERÐARÞING 2006 Hótel Loftleiðum 23. og 24. nóvember 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.