Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 24
Stjórnmálaþátttakaá að snúast um þrjá
hluti. Áhrif eða völd,
að efla stuðning við
stefnu eða skoðanir,
stærð eða fylgi. Til
þess að stjórnmálaafl
nái árangri þurfa
þessir þrír hlutir að
vera í jafnvægi og vaxa í takt.
Það er vont ef áhrif verða
umfram fylgi eða viðteknar
skoðanir, það er vont ef stefna
eða skoðanir eru viðteknar en
hreyfingin hefur hvorki fylgi né
völd.
Okkar hreyfing er á tímamót-
um. Hún á möguleika á að öðlast
völd í takt við skoðanir, öðlast
fylgi og stærð í takt við áherslur.
Sífellt fleiri eru okkur sammála
um að samfélaginu þurfi að
breyta, spyrna þurfi við óásætt-
anlegum normum eins og að nátt-
úran skuli seld hæstbjóðanda, að
það sé samfélaginu eðlilegt að
fólk hafi tíu til tuttuguföld mán-
aðarlaun á við undirmenn sína,
að það sé samfélaginu eðlilegt að
erlent verkafólk hafi lakari kjör
en annað fólk.
Okkar skoðunum hefur vaxið
fiskur um hrygg.
Okkar skoðunum
hefur aukist fylgi.
Fylgismönnum okkar
hefur fjölgað. Við
þurfum að axla þá
ábyrgð sem fyrir
okkur verður lögð
þegar til kastanna
kemur. Við erum mót-
andi afl á íslensk
stjórnmál, á íslenskt
þjóðfélag og íslenska
framtíð.
Við þurfum að leggjast öll á
eitt til þess að takast ætlunar-
verk okkar, að breyta þjóðfélag-
inu. Við þurfum að breyta því
svo að framtíð afkomenda okkar
og afkomenda þeirra verði björt
og farsæl. Við þurfum að skila
áfram, ekki bara náttúru sem
afkomendur okkar fá að njóta,
heldur líka samfélagi, sem við
erum stolt af.
Til þess að okkur takist ætlun-
arverk okkar verðum við samt
að standa saman og stefna til
framtíðar. Framtíðar með vinstri
græn áhrif, í takt við viðteknar
vinstri grænar skoðanir, í takt
við aukið vinstri grænt fylgi.
Höfundur gefur kost á sér í 2.
sæti í forvali VG á höfuðborgar-
svæðinu
Saman sækjum
við fram!
Ífarvatninu eru mikl-ar breytingar í vest-
urbæ Kópavogs og mun
þeirra sjá stað á kom-
andi misserum. Nú
þegar hefur verið sam-
þykkt íbúabyggð á
Kópavogstúni og í nýju
bryggjuhverfi á norð-
anverðu nesinu. Auk
þess eru í bígerð veru-
legar breytingar á vestanverðu
Kársnesi þar sem núverandi
skipulag mun víkja fyrir þéttari
byggð. Síðast en ekki síst eru uppi
áform um tæplega 5 ha. landfyll-
ingu vestur af Kársnesi með fyrir-
huguðu athafnasvæði og stærri
kaupskipahöfn.
Þegar svo veigamiklar breyt-
ingar liggja fyrir á svæði þar sem
fyrir er gróin byggð er mikilvægt
að móta rammaskipulag fyrir allt
svæðið og þannig sjá fyrir það
skipulag sem er í mótun í sam-
hengi við það sem fyrir er. Það
þarf að huga að þáttum eins og
skólamálum, dagvistarmálum og
nærþjónustu við íbúa svæðisins
þegar það liggur fyrir
að íbúafjöldi á tiltölu-
lega afmörkuðu svæði
muni hátt í tvöfaldast á
komandi árum.
Þessar fyrirhuguðu
breytingar á Kársnes-
inu munu hafa veruleg
áhrif á samgöngur og
þjónustu alla í vestur-
bæ Kópavogs þar sem
lýðfræðileg uppbygg-
ing hverfisins mun taka
miklum breytingum.
Slíkar breytingar ætti
að móta í góðri sátt og samvinnu
við íbúa vesturbæjar Kópavogs.
Fulltrúar Samfylkingarinnar í
bæjarstjórn Kópavogs hafa ítrek-
að bent á að áður en einstaka reitir
eru skipulagðir á Kársnesinu er
mikilvægt að kynna fyrir bæjar-
búum nýtt rammaskipulag vestur-
bæjarins þar sem allar fyrirhug-
aðar breytingar koma fram.
Einungis þannig geta bæjarbúar
metið áhrifin til lengri tíma.
Í ágúst sl. lögðu fulltrúar Sam-
fylkingarinnar til að þá þegar færi
fram ítarleg kynning á framtíðar-
skipulagi Kársness. Þar til þeirri
kynningu væri lokið yrði deili-
skipulagi einstakra reita frestað.
En þrátt fyrir að sú tillaga hafi
verið samþykkt hefur nú, þremur
mánuðum seinna, ekkert bólað á
þeirri kynningu.
Samfylkingin hefur skýra
stefnu í skipulagsmálum í vestur-
bæ Kópavogs. Við viljum þétta
byggð í góðri sátt við íbúa, við vilj-
um endurbyggja hafnarsvæðið
þannig að þar verði skemmtileg
blanda af íbúabyggð, atvinnu-
svæði og smábátahöfn. Við viljum
leggja innflutningshöfnina niður
enda fer hún ekki saman við þá
vaxandi byggð sem fyrirhugað er
að rísi á nesinu.
Það er mikilvægt að hlúa að
blómlegri byggð í bæ sem er í stöð-
ugum vexti. Ábyrgð bæjaryfir-
valda er mikil því það er okkar að
tryggja að svo verði í sátt og sam-
vinnu við íbúa bæjarins. Við ætlum
ekki að láta okkar eftir liggja og
því mun Samfylkingin í Kópavogi
halda fund miðvikudaginn 22. nóv-
ember kl. 20.00 í sal Samfylkingar-
innar að Hamraborg 11 og kynna
þær skipulagsbreytingar sem
framundan eru á Kársnesinu.
Þangað eru allir velkomnir.
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í bæjarstjórn Kópavogs
Breyttur vesturbær í Kópavogi
Ég starfa sem búðar-maður í Landmanna-
laugum á sumrin. Stað-
urinn er fjölsóttur.
Óhjákvæmilega raskast
viðkvæm náttúran vegna
þess fjölda sem um hana
fer. Ég, landvörður og
fleiri sem vita hvers
virði það er að halda
svæðinu sem ósnortnustu, reynum
að leiðbeina fólki til að koma í veg
fyrir óþörf náttúruspjöll. Stundum
tölum við við ökumenn torfæru-
tækja, svo þeir fari ekki að spilla
yfirborði jarðar með utanvega-
akstri. Stundum tölum við við jarð-
fræðinema með hamra, svo þeir
fari ekki að spilla yfirborði jarðar
með sýnatökum. Ferðamenn mega
ekki einu sinni taka með sér steina,
því með því móti eru þeir að raska
yfirborði svæðisins.
Það er yfirborðið sem augað sér,
sem myndavélarnar nema og sem
birtist á póstkortum og í
auglýsingum um Ísland.
Þessar myndir eru mjög
oft af Landmannalauga-
svæðinu, sem í seinni
tíð er orðið frekar vítt
hugtak og teygir sig
m.a. til Hrafntinnu-
skers.
Hvað eigum við, sem
svæðið viljum vernda,
nú að segja við jarð-
fræðinemana og hina
túristana? Kannski ættu
þeir bara að fara til Reykjavíkur.
Þeir gætu sótt sýnishornið sitt eða
minjamolann sinn þangað. Þeir
finna það utan á Þjóðleikhúsinu.
Þar er annað yfirborð sem þjóðinni
er kært og ekki má skemma. En
Þjóðleikhúsið er ekki notað eins
mikið í landkynningu eins og svæð-
ið sem sá því fyrir klæðningu sinni,
svo skaðinn er varla eins mikill,
eða hvað. Auðvitað er þetta bull. Þó
að Þjóðleikhúsið sé mörg hundruð
tonn að þyngd, þá væri það
skemmdarverk að kroppa af því
klæðninguna, þó hún sé falleg.
Þetta ætti sá mikli fræðimaður
og fjallagarpur, Ari Trausti Guð-
mundsson, að vita. Hann hefur ekki
svo óvíða gengið um yfirborð þessa
lands. Hann talar um að til séu svo
og svo mörg tonn af hrafntinnu,
svo að það skipti þá engu þó tekin
séu svo og svo fá tonn af henni, til
að skapa með henni annað yfir-
borð. Hlutfallið sem hann nefndi
var lágt, en ég dreg samt í efa að
hann væri reiðubúinn að fórna því
sama hlutfalli af sínu eigin yfir-
borði.
Ari Trausti er jarðfræðingur.
Hann veit um dýpt jarðarinnar og
að þar fyrirfinnst mikið grjót. Ég
er listamaður og ég veit að í listinni
fyrirfinnst mikil dýpt. Viðhafnar-
miklar umbúðir utan um listina eru
ekki til þess fallnar að leiða fólk á
vit dýpisins. Hrafntinnuklæðning
kemur leiklist ekkert við. Yfirborð
jarðar kemur hinsvegar jarðfræð-
ingum við og öllum öðrum sem
vilja njóta landsins.
Höfundur er verslunarmaður og
myndlistarmaður
Hrafntinna hér og þar
Það þarf ekki að horfa langt um öxl til þess
að sjá hversu miklar
breytingar hafa orðið á
atvinnuháttum okkar
Íslendinga á undanförn-
um 15 árum. Frumfram-
leiðslan skipar nú ekki
nærri því eins stóran
sess í hagkerfi landsins
og áður fyrr. Samkvæmt tölum frá
dr. Ágústi Einarssyni þá var hlut-
deild landbúnaðar til landsfram-
leiðslu 5% fyrir 25 árum en er nú
1,4% – að sama skapi var hlutdeild
sjávarfangs 16% árið 1980 en er nú
6,8%.
Það eru ekki lengur bara þrjár
stoðir undir atvinnulífi okkar
Íslendinga, þ.e. frumframleiðsla,
iðnaður og þjónusta, því fjórða
stoðin er farin að skipta verulegu
máli en hún felst í skapandi atvinnu-
greinum. Ég hef lagt fram á Alþingi
þingsályktunartillögu þess efnis að
skipaður verði starfshópur til að
taka saman upplýsingar um eðli og
umfang skapandi starfsgreina hér
á landi og móta tillögu að stefnu-
mörkun ríkisstjórnarinnar í þess-
um málaflokki.
Skapandi atvinna einkennist af
því að meginviðfangsefnið er að
skapa nýja þekkingu eða efni sem
hægt er að vernda með höfundar-
rétti eða einkaleyfi. Áhrif og árang-
ur slíkra starfsgreina felst ekki
hvað síst í samvinnu og samstarfi
fólks með ólíkan bakgrunn og
menntun. Til skapandi starfsgreina
teljast svo dæmi séu tekin menn-
ingartengd starfsemi hvers konar,
afþreyingariðnaður, s.s. tölvuleikir,
kvikmyndir og hverskonar uppák-
omur, hátækniiðnaður, hönnun,
handverk, þekkingarstarfsemi,
útgáfa á rituðu og rafrænu formi
og menningartengd ferðaþjónusta.
Það er nokkuð teygjanlegt hvað
telst til skapandi atvinnugreina en
eftir þeirri atvinnugreinaflokkun
sem að ofan er getið, teljast 25%
alls vinnuafls hér á landi vinna við
skapandi atvinnugreinar. Í Banda-
ríkjunum er þetta sama hlutfall
30% alls vinnuafls.
Mörg ríki hafa markað opinbera
stefnu í þessum málaflokki og fylgt
henni eftir því mönnum hefur orðið
ljóst mikilvægi þessarar starfsemi
sem atvinnu framtíðarinnar. Það
eru aðallega þrjú skilyrði sem
þurfa að vera fyrir hendi sem jarð-
vegur fyrir skapandi starfsemi en
það eru tækniþekking,
hæfni og þekking mann-
auðs og umburðarlyndi
gagnvart fjölbreytni
mannlífsins. Dæmi um
slíka starfsemi hér á
landi er framleiðsla
sjónvarpsþátta um Lata-
bæ í hátæknimyndveri
sem komið var upp í
Garðabæ, uppsetningar
Vesturports á sýningum
og landvinningar erlend-
is, og tölvuleikur CCP –
Eve online, en yfir 150 þúsund
áskrifendur eru nú að leiknum,víða
um heiminn. Ýmsar uppákomur
hafa náð fótfestu hérna og vakið
verðskuldaða athygli erlendis. Þar
er skemmst að minnast Food and
Fun matvælasýningarinnar og Air-
waves tónlistarhátíðarinnar. Slíkir
viðburðir ásamt mörgum öðrum
hafa skapa meiri atvinnu en fljótt á
litið virðist.
Í Kaupmannahöfn voru teknar
saman tölur um efnahagslegt gildi
skapandi greina fyrir borgina. Þar
voru 19 stórir atburðir teknir fyrir,
s.s. U2 tónleikar, fótboltaleikir og
allskonar uppákomur. Í ljós kom að
1.425 ársstörf sköpuðust vegna
atburðanna og tekjurnar voru tæp-
lega 173 milljónir evra.
Auk þessa má geta til dæmis að
um 100 heilsársstörf í Kaupmanna-
höfn eru eingöngu vegna fótbolta-
leikja svo dæmi sé tekið og Hróars-
kelduhátíðin er gott dæmi um
hvernig lítill bær getur verið mið-
stöð ákveðins atburðar og það haft
veruleg áhrif á efnahags- og
atvinnuástandið þar.
En það eru einnig minni staðir
og minni atburðir sem geta lagt lóð
á vogarskálarnar og nýtt sér þessa
nýju starfsgrein. Hér á landi höfum
við dæmi um skapandi atvinnu-
greinar sem hafa haft verulega
mikil áhrif á bæi eins og t.d. hvala-
skoðunarferðir frá Húsavík, Síld-
arminjasafnið og síldarhátíðina á
Siglufirði og stríðsminjasafnið í
Fjarðabyggð. Tækniþekking á
Íslandi er afar góð og auðvelt að
nýta hana hvar sem er ásamt því að
virkja hugmyndaauðgina og kraft-
inn sem víða býr í byggðum lands-
ins en með því getum við óhikað
tekið skrefið inn í atvinnuhætti
framtíðarinnar.
Höfundur er varaþingmaður í
Norðausturkjördæmi og sækist
eftir 2-3 sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í prófkjöri 25. nóvember
Skapandi starfsemi
Hjartasjúkdómar og of há blóðfita - Ein helsta meinsemd samtímans?
Udo Erasmus heldur fyrirlestur á
Grand hótel Reykjavík 28. nóvember
kl. 10:00 - 12:00 fyrir fagfólk
og kl.19:30 - 22:00 fyrir áhugafólk.
Aðgangur er ókeypis!
Þetta er fyrirlestur fyrir alla þá sem glíma
við of háa blóðfitu, þá sem er umhugað um
meltingarstarfsemi sína og alls áhuga- og
fagfólks um þessi málefni.
Nánari upplýsingar hjá Heilsu í síma 533 3232
eða heilsa@heilsa.is
Udo‘s Choice vörurnar fást í Heilsuhúsinu, Lyfju og flestum heilsubúðum
Udo Erasmus er alþjóðlegt nafn í umræðunni um Omega-3 fitusýrur, kólesteról,
meltingu og almennt heilbrigði. Hann er í hópi helstu næringarfræðinga heims og
keppast vísindamenn um að vitna í rannsóknir hans. Einna þekktastur er hann fyrir
framlag sitt og þróun á Omega fitusýrum. Hann hefur ritað fjölda greina og bóka
um þessi viðfangsefni. Þekktust er bókin: „Fats that Heal Fats that Kills“