Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 44
MARKAÐURINN
Í tengslum við aukin útgjöld íslenskra
fyrirtækja til málefna á borð við íþrótta-,
velferðar-, lista- og menningarmál heyrist
æ oftar talað um samfélagslega ábyrgð
fyrirtækja. Eftir vel sótta ráðstefnu sem
Háskólinn í Reykjavík stóð fyrir í sam-
starfi við KOM almannatengsl í síðustu
viku hefur umræðan enn glæðst. Af máli
allra þeirra sem fram komu þar mátti
skilja að nú gæti breyttra viðhorfa um
hlutverk fyrirtækja í samfélaginu. Þau
álíti það í æ ríkari mæli skyldu sína að vera
góðir þjóðfélagsþegnar og leggja góðum
málefnum lið og bæta þannig
það samfélag sem þau starfa í.
Undanfarnar vikur hafa margir
tekið þátt í þessari umræðu.
Þeirra á meðal er Björgólfur
Guðmundsson, formaður banka-
ráðs Landsbankans. Í grein
sem birtist í Morgunblaðinu
fyrr í þessum mánuði kallaði
hann ábyrgð fyrirtækja gagn-
vart samfélaginu sjálfsábyrgð.
Á sama hátt og samfélaginu
nýtist vel að atvinnulíf eflist
og styrkist sé það atvinnulífi til
framdráttar að þjóðlíf blómstri
í traustu og öruggu samfélagi.
Þetta viðhorf virðist vera að ná
meiri fótfestu hér á landi.
MARGVÍSLEGAR SKILGREININGAR
Hugtakið „samfélagsleg
ábyrgð fyrirtækja“ hefur
verið skilgreint á ýmsa
vegu. Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur skil-
greint hana sem „þær skuld-
bindingar sem fyrirtæki kýs að
taka á sig gagnvart starfsfólki,
umhverfi eða viðskiptavinum
umfram það sem kveðið er á
um í kjarasamningum, lögum
eða reglugerðum.“ Í könnun
sem unnin var á vegum kennslu-
og lýðheilsudeildar Háskólans
í Reykjavík á dögunum, sem
nánar er sagt frá hér á opn-
unni, voru stjórnendur fyrir-
tækja meðal annars fengnir til
að greina frá því hvaða skilning
þeir leggja í hugtakið. Skilgreiningarnar
sem komu frá þeim voru margvíslegar.
Flestir nefndu ábyrgð fyrirtækja gagnvart
samfélaginu í heild sinni, sem talist getur
til nánasta umhverfisins. Á eftir sam-
félaginu var starfsmannastefnan oftast
nefnd, sem talið er benda til þess að það
sé að festast í sessi að stjórnendur álíti
það samfélagslega jákvætt að vera með
skilgreinda starfsmannastefnu. Styrkir til
félagasamtaka voru oftast nefndir þar á
eftir, þá umhverfismál og síðast viðskipta-
vinir fyrirtækja.
GÖMUL SANNINDI OG NÝ
Eins og Þorsteinn Pálsson, ritstjóri
Fréttablaðsins, benti á í ávarpi sínu á ráð-
stefnunni eru það
ekki ný sannindi að
styrkir einstaklinga og fyr-
irtækja við samfélagsleg málefni geti haft
22. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR10
Ú T T E K T
Oddgeir Einarsson, lögmað-
ur og fyrrum stjórnarmað-
ur í Frjálshyggjufélaginu,
er einn þeirra sem telja
hlutverk fyrirtækja vera
að vinna eingöngu að mark-
miðum eigenda þeirra, hvort
sem þau snúast um hagnað
eða annað. „Ef bakari stofnar
um sig bakarí og fer að selja
brauðið sitt á markaði tekur
hann ákveðna fjárhagslega
áhættu. Ef áhættan gengur
upp skapar bakarinn störf,
býður samborgurum sínum
upp á viðbótarvalkost í vöru-
úrvali, stuðlar að virkari
samkeppni, auk þess sem
hann þarf að kaupa vélar og
korn sem eflir aðra atvinnu-
starfsemi. Ríkið hagnast á
þessu öllu í gegnum skatt-
greiðslur. Ég get ekki skilið
hvaða ábyrgð þessi bakari
ber umfram aðra sem ekki
taka þessa áhættu, enda
hefur hann nú þegar lagt
mun meira til samfélagsins
en margur annar.“
Oddgeir telur hvata þeirra
fyrirtækja sem gefi sig út
fyrir að vera samfélagslega
ábyrg ekki siðferðisleg-
an heldur fyrst og fremst
rekstrarlegan og miði að því
að skila auknum hagnaði.
„Skilgreini maður góðverk
held ég að það þýði að láta
eitthvað gott af sér leiða,
burt séð frá því hvort maður
fái eitthvað út úr því sjálfur
eða ekki. Þeir sem eru að
styrkja líknarmál og gæta
þess að auglýsa það eru fyrst
og fremst að gera það fyrir
sjálfa sig. Þessi fyrirtæki
eru ekki að gera neitt annað
en að kaupa sér ímynd. Það
er sennilega alls ekki óskyn-
samleg leið að styrkja góð
málefni til þess. En um leið
og stjórnendur fyrirtækja
styrkja góðgerðarmál án þess
að nokkur viti af því eru þeir
annaðhvort að færa peninga
frá eigendunum, með því að
taka frá þeim hagnað, starfs-
fólki sínu, með því að borga
þeim lægri laun en mögulegt
væri, eða neytendum með
hærra vöruverði. Þannig
geta stjórnendur fyrirtækja
farið út fyrir hlutverk sitt,
sem er að stuðla að auknum
hagnaði, nema eigendurnir
ákveði annað.“
Fyrirtæki geta ekki borið ábyrgð
Æ fleiri fyrirtæki setja
sér skýr markmið
um að stuðla að
jákvæðri upp-
byggingu sam-
félagsins.
Hólmfríður
Helga
Sigurðardóttir
skoðaði hugmyndina um
samfélagslega ábyrgð
fyrirtækja sem,
af hvaða hvöt-
um sem hún
sprettur, skiptir
sköpum fyrir
margs konar starfsemi í
landinu.
Hugtakið „sam-
félagsleg ábyrgð
fyrirtækja“ hefur
verið skilgreint
á ýmsa vegu.
Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins
hefur skilgreint
hana sem „þær
skuldbindingar sem
fyrirtæki kýs að
taka á sig gagnvart
starfsfólki, umhverfi
eða viðskiptavinum
umfram það sem
kveðið er á um í
kjarasamningum,
lögum eða reglu-
gerðum.“
Ábyrgð eða auglýsing?