Fréttablaðið - 22.11.2006, Síða 56

Fréttablaðið - 22.11.2006, Síða 56
 { norðurland } 12 Akademían heldur til í húsakynn- um Háskólans á Akureyri við Þórunnarstræti sem áður gegndi hlutverki húsmæðraskólans. Með- limir eru nú þegar um 40 talsins en sex félagar eru með vinnuaðstöðu. „Starfsemin er tvíþætt. Við rekum vinnuaðstöðu og samfélag fyrir fræðimenn og -konur. En einn- ig sinnum við hagsmunum félags- manna og miðlum þeirra fræðum,“ segir Valgerður H. Bjarnadóttir, hússtýra og stjórnarmeðlimur Aka- demíunnar. Stofnendur Akademí- unnar höfðu um nokkurt skeið stefnt að því að koma á fót félags- skap að fyrirmynd Reykjavíkur- Akademíunnar. „Við vorum búin að ræða þörfina fyrir vinnuaðstöðu og hvetjandi samfélag fræðifólks fyrir norðan. En góðir hlutir gerast hægt og þegar við fengum aðstöðu í Húsmæðraskólanum var ekki eftir neinu að bíða,“ segir Valgerður brosandi. Markmiðið er fyrst og fremst að skapa aðstöðu og sam- félag. „Við leggjum áherslu á að skapa vinnufrið, en tökum einnig á móti gestum. Á dagskránni er að hafa opið hús ásamt málþingum og fyrirlestrum“ segir Valgerður. Meðal fyrirlestra sem farið hafa fram í Akademíunni í haust má nefna fyrirlestur Viðars Hreins- sonar, framkvæmdastjóra Reykja- víkurAkademíunnar um Handrit- in í sauðalitunum, umfjöllun um Charcot með Friðriki Rafnssyni og nú síðast áhugaverðan fyrirlest- ur Atla Harðarsonar um Hjóna- bönd samkynhneigðra. Sá fyrir- lestur var haldinn í samvinnu við Áhugahóp um heimspeki. „Sumir eru að rannsaka og grúska með- fram annarri vinnu á meðan aðrir eru þarna í fullu starfi og fást við margvísleg viðfangsefni,“ segir Valgerður og nefnir sögu hjúkrun- ar og rannsóknir á garðrækt. Sjálf situr hún meðal annars við þýð- ingar á fornljóðum og verkefni um menningar- og trúarsögu kvenna. Stjórnina skipa Jón Hjaltason for- maður, Kristín Kjartansdóttir ritari, Valgerður H. Bjarnadóttir gjaldkeri, Margrét Guðmundsdóttir og Páll Björnsson, varamenn í stjórn. Allir sem stunda fræðastörf eða einhvers konar grúsk geta orðið meðlimir í Akademíunni. Félagsgjald er 1500 kr. á ári en mánaðarleiga fyrir skrifborð og alla aðstöðu er 12.000 kr. AkureyrarAkademían stefnir að því að verða virkur þátttakandi í þjóðfélags-umræðunni á Íslandi og stuðla að fræðilegri umræðu um allt frá Miðaldamenningu og ræktun kartöflunnar til kynjaðr- ar heimspeki og eðlis stjarnanna. Stefnt er að frjósömu samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna og önnur fræðasetur hérlendis og erlendis. Sími AkureyrarAkademíunnar er 461 4006, netfang er akademia@internet. is og fyrst um sinn mun heimasíða ReykjavíkurAkademíunnar miðla upplýsingum um systurstofnunina norðan heiða. rh@frettabladid.is Fræðasetur norðan heiða með öflugt starf AkureyrarAkademían eða Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi var stofnað fyrir um hálfu ári síðan. Mikil gróska er í starfi fræði- manna norðan heiða og því full þörf á góðri vinnuaðstöðu. Starfsemin hefur farið vel af stað með öflugu menningarstarfi. Jón Ingi Cæsarsson, formaður Skipulagsnefndar Akureyrarbæj- ar er einn þeirra sem hefur talað fyrir lengingu vallarins. „Það þarf að koma þessu máli inn á samgönguáætlun. Það sem hefur fyrst og fremst vantað er að fá vitræn svör frá yfirvöldum,“ segir Jón Ingi Cæsarsson, formaður Skipulagsnefndar Akureyrarbæj- ar. „Við höfum séð hvernig minni flugvellir í Evrópu hafa tekið upp millilandaflug og það hefur verið vítamínsprauta fyrir þau byggðarlög.“ Áætlað hafði verið að fara í framkvæmdir til að bæta bílastæði og aðstöðu á vellinum, en þær voru teknar út af samgönguáætlun á síðasta ári. „Deiliskipulag svæðisins er á lokastigi og fyrir liggur að KEA og Akureyrarbær eru til í að koma að verkefninu með láni til ríkisins. Það er þverpólitísk sam- staða hér í bæ um nauðsyn þess- arar framkvæmdar og þetta er mál sem skiptir Norðurland allt miklu máli,“ segir Jón Ingi. „Það er okkar von að ferðaskrifstofur og erlend flugfélög velji Akureyri sem áfangastað í sínum áætlunum en það gerist ekki við núverandi aðstæður. Við erum hér mið- svæðis á Norðurlandi og stutt í náttúruperlur allt í kring. Þegar Vaðlaheiðargöng verða komin mun hlutverk flugvallarins aukast enn frekar. Lenging flugvallarins nauð- synleg fyrir millilandaflug Mikið hefur verið rætt um að lengja þurfi Akureyrarflugvöll og bæta aðstöðuna á flugvallarsvæðinu. Ljóst er að þörf er á framkvæmdum til að völlurinn nýtist að fullu sem millilandaflugvöllur. „Við erum með skóla í Faxafeni 10 í Reykjavík og þar erum við með fimm kennslustofur og svo erum við með tvær kennslustofur hér á Akureyri,“ segir Lára Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skólans, sem er með skrifstofu sína á Akur- eyri. „Við kennum ýmiss konar námskeið í skólanum, bæði fyrir byrjendur og lengra komna og aðsóknin hefur verið mjög góð hér á Akureyri. Þá erum við með sér- stök námskeið fyrir eldri borgara en þau hafa mjög gaman af því að ná tökum á tækninni. Þá erum við að kenna ýmis sérhæfð námskeið, til dæmis í vinnslu stafrænna mynda með photoshop og upp- setningu efnis í umbrotsforritum.“ Lára segir að fyrirtækjum sem er stjórnað milli landshluta fjölgi stöðugt. „Ég tel að í framtíðinni muni aukast að fólk verði óbundið af staðsetningu þegar sótt er um störf. Hægt er að nota netið mun meira en gert er nú til að auka frelsi til búsetu,“ segir Lára. „Þetta er að mínu mati vænlegra en að flytja fyrirtæki og stofnanir í heilu lagi milli landshluta. Með þessu móti getur fólk ráðið hvaðan það vill vinna.“ - öhö Netið gefur aukið frelsi til búsetu Tölvuskólinn Þekking er eitt þeirra fyrirtækja sem starfa bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.