Fréttablaðið - 22.11.2006, Qupperneq 63
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 2006
S K O Ð U N
Eigendur fyrirtækja og
starfsmenn hafa ýmis áhuga-
mál. Veiðiskapur hefur fylgt
Íslendingum lengi og alltaf eykst
sá fjöldi manna sem leggur stund
á skotveiðar í sínum frítíma. Í
vöxt fer að samstarfsmenn fari í
hópum til veiða og komi gírugir
á kaffistofuna daginn eftir með
góðar veiðisögur. Manni verður
þó um og ó að heyra sögur af
veiðiferðum skotveiðimanna þar
sem svo mikill fjöldi er saman
kominn á tiltölulega litlu svæði,
allir í sama tilganginum að skjóta
gæsir eða rjúpur. Fréttir herma
að menn hafi hreinlega flúið af
góðum veiðistöðum vegna þess
að skothríð er mikil, hún kemur
úr öllum áttum þannig að ekki
er mögulegt að átta sig á hvaðan
skotin koma og ástandið því stór-
hættulegt.
Á haustmánuðum hafa borist
tjónstilkynningar til Sjóvár sem
fá mig til að hafa áhyggjur af
því að menn sýni ekki ýtrustu
varkárni við meðferð skotvopna.
Áverkar geta verið alvarlegir og
því viljum við árétta að þeir sem
fá byssuleyfi taki alvarlega þær
leiðbeiningar sem koma fram á
námskeiðum sem haldin eru af
Umhverfisstofnun um sjálfsagð-
ar öryggisreglur.
Það segja mér fróðir menn
að þegar skotmaður gengur með
hlaðna byssu á veiðum skal allt-
af opna byssulásinn og afhlaða
byssuna þegar farið er yfir
t.d. skurði, klifrað upp kletta
eða klöngrast yfir urð og móa.
Gangi margir menn saman með
hlaðnar byssur skal halda þeim
þannig að hlaupin stefni aldrei
að samferðarmönnum ef menn
hrasa og detta. Það þykir einnig
sjálfsögð kurteisi að opna byss-
una og afhlaða er menn hittast
á veiðum og fara að ræða málin
eða setjast niður að snæðingi.
Þetta eru mjög góðar reglur
og afar áríðandi að sem flestir
skotveiðimenn tileinki sér þær.
Það er grafalvarlegt
mál að verða fyrir slysa-
skoti því afleiðingarnar
geta haft ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir
þann sem fyrir verður
svo ekki sé talað um
þann sem veldur. Það
hlýtur að vera hræðileg
tilfinning og erfitt að lifa með
því að valda besta vini sínum eða
nánum ættingja slíkum skaða,
kannski af algeru kæruleysi og
óvarkárni. Þó við bjóðum upp á
góðar slysatryggingar þá getum
við ekki annað en greitt ákveðnar
fjárhæðir en atburðurinn hverf-
ur ekki þrátt fyrir þær greiðslur.
Með þessu greinarkorni lang-
ar mig að vekja skotveiðimenn
til meðvitundar um alvarleika
þessa sports, að þeir
tileinki sér varúð
og gætni í meðferð
skotvopna og klæð-
ist áberandi fatnaði
í þeim tilfellum sem
slíkt fælir ekki bráð-
ina, t.d. við rjúpna-
veiðar. Það er mjög
auðvelt og ódýrt að verða sér
úti um neonlituð þunn nælon-
vesti sem gera það að verkum
að veiðimenn sjá vel hver annan
sérstaklega í aðstæðum þar sem
fjöldi skotveiðimanna er slíkur
að hætta stafar af eins og áður
hefur komið fram.
Bestu kveðjur og góða veiði!
Sólveig Ólafsdóttir
Þjónustufulltrúi á tjónasviði Sjóvár
Ekki sýnd en aðeins gefin veiðin
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Það er einhver skammdegis-
drungi yfir mér þessa dagana.
Af því að ég er afar velviljaður
maður og vil öllum hið besta,
þá er ég leiður yfir ýmsu þessa
dagana.
Mér finnst leiðinlegt að
menn séu að afskrifa einn og
hálfan milljarð út af prent-
smiðju í Bretlandi og mér
finnst leiðinlegt að Avion skuli
hafa selt ferðaþjónustuna sína
og sé nú bara skipafélag. Ég
er hins vegar ánægður með
að Eimskipafélagsnafnið komi
aftur í Kauphöllina.
Mér finnst líka leiðinlegt
hvernig Danir láta við okkur
og mér finnst leiðinlegt að
Kaupþing skyldi halda blaða-
mannafund svona löngu eftir
birtingu greina Extrablaðsins.
Það gaf þeim ókeypis tækifæri
til að rífa kjaft á ný. Sennilega
hafa dönsku starfsmennirnir
farið á taugum yfir umræð-
unni.
Kaupin á West Ham glöddu
mig hins vegar. Ekki að ég hafi
nokkra trú á þessu sem fjár-
festingu, mér finnst bara alltaf
gaman þegar menn kaupa sér
skemmtilegt dót. Sjálfur hef ég
stundum keypt mér dýrt dót, en
það er nú þannig með mig að ég
fæ fljótt leið á nýju dóti.
Ég er svolítið efins með
markaðinn þessa dagana. Það
er að byrja að hægja á í efna-
hagslífinu og þegar ekki eru
lengur tómar sigurfréttir af
viðskiptalífinu, þá getur stemn-
ingin dofnað hratt. Ég er farinn
að taka aftur talsvert á hliðar-
línunni á ný og læt stýrivextina
um vinnuna fyrir mig.
Tækifærin geta komið hratt,
sérstaklega þegar verðið lækk-
ar. Markaðurinnn hamrar nú á
365 fyrir prentsmiðjuskuldirnar
og kannski opnast smá tæki-
færi þar fyrir stöðutöku þegar
gengið snýr við. Gárungarnir
hafa verið að spá því að botn-
gengið á félaginu sé sennilega
3,65, en ég held að það fari ekki
svo neðarlega.
Jón Ásgeir fór í stjórnina
eins og ég bjóst við og fyrir
mér þýðir það að hann ætlar
að skila meðfjárfestum sínum
sæmilega sáttum þegar upp
verður staðið. Ég held að fók-
usinn verði skýrari í félaginu
og það nái sér á strik. Kannski
maður hætti þessari svartsýni
og fari að greina tækifæri á ný.
Það er nú einu sinni þannig
að bjartsýnin hefur löngum
verið lögfræðingur, læknir
minn og prestur. Sá bölsýni
græðir aldrei neitt og ágætt að
minna sig á það í skammdeginu
þegar maður lendir í því að
lúxusjeppinn spólar á öllum
fjórum.
Spákaupmaðurinn á horninu
Spólað á
öllum fjórum
MAGGA STÍNA SYNGUR MEGAS
HUGMYNDIR AÐ GÓÐUM GJÖFUM!
EXTRA VIRGIN
AFAR
TAKMAR
KAÐ
UPPLAG
SÉRRÆKTUÐ, SÓLRÍK ÓLÍFUOLÍA - BEINT FRÁ BÓNDANUM
Hafðu samband - við leysum málið!
Gjafadeild Bjarts: Sími 562 1826
Netfang: bjartur@bjartur.is
WUTHERING HEIGHTS EFTIR EMILY BRONTË
MAGNAÐASTA ÁSTARSAGA HEIMSBÓKMENNTANNA Í NÝRRI
OG GLÆSILEGRI ÞÝÐINGU SILJU AÐALSTEINSDÓTTUR.
EITT STÓRBROTNASTA
BÓKMENNTAVERK HEIMS
MIKIÐ Ú
RVAL B
ÓKA.
HAFÐU
SAMBA
ND EÐA
KYNNTU
ÞÉR M
ÁLIÐ
Á WWW
.BJARTU
R.IS