Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 66
MARKAÐURINN 22. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
B l a c k B e r r y
Pearl 8100 er nýr
farsími sem hér
er kominn í sölu.
BlackBerry sím-
arnir hafa notið
vinsælda meðal
fólks sem kom-
ast þarf bæði
í tölvupóst og
skrifstofuhug-
búnað hvar sem
sem það er á
ferðinni.
Pearl farsím-
inn er sagður
byltingarkennd-
ur enda mun
minni en forver-
ar hans. Í raun
er síminn ámóta
og hefðbundinn
GSM sími, auk þess sem hann er
búinn myndavél, Media Player
og margvíslegri annarri virkni.
Síminn hefur hlotið góða
dóma, utan að sumir hafa sett
fyrir sig lyklaborðið sem er
millistig QWERTY lyklaborðs og
hefðbundins farsímalyklaborðs
og tekur suma smástund að venj-
ast því. - óká
Pearl á stærð við
venjulegan gemsa
Bandaríska útgáfufyrirtækið
Universal Music hefur stefnt
netveitunni MySpace.com vegna
brota á höfundarréttarlögum.
Netveitan býður netverjum
upp á að búa til eigin vefsvæði
auk þess sem hægt er að leita
eftir tónlistar- og myndskrám á
netinu, sem þeir geta horft og
hlustað á og deilt með öðrum.
Universal Music segir að net-
veitan sé með athæfinu að hvetja
netverja til að dreifa efni sín
á milli með ólögmætum hætti.
Með brotunum hafi rekstraraðil-
ar MySpace hagnast um hundruð
milljónir Bandaríkjadala á kostn-
að tónlistarmanna og annarra
höfunda myndefnis.
Forsvarsmenn MySpace vísa
ásökununum á bug enda hafi
verið unnið með útgáfufyrir-
tækjum til að tryggja rétt tón-
listarmanna.
Í tilkynningu sem forsvars-
menn MySpace.com sendu frá
sér vegna málsins um helgina
segir að þótt netveitan veiti net-
verjum tök á að deila sköpunar-
verkum sín á milli á netinu þá
hvetji það ekki til brota á höfund-
arrétti sé starfsemi fyrirtækisins
innan ramma laganna.
Þá setti MySpace upp síu á vef
fyrirtækisins, sem koma á í veg
fyrir brot á höfundarrétti. Sían
kemur í veg fyrir að netverjar
geti nálgast efni sem þeir eiga
ekki höfundarrétt á eða hafa ekki
greitt fyrir. - jab
Útgefendur saka
MySpace um brot
Atlantsolía tók á föstudag í síð-
ustu viku í notkun nýja gerð
kvittana sem fást þegar dælu-
lykill fyrirtækisins er notaður.
Dælan sendir kvittun fyrir elds-
neytiskaupum sem PDF-skrá í
viðhengi í tölvupósti og eru þær
gildir reikningar í bókhaldi fyrir-
tækja og einstaklinga.
Í tilkynningu frá Atlantsolíu
segir að þetta sé í fyrsta sinn
sem ríkisskattstjóri hafi sam-
þykkt netkvittun sem þessa sem
löggiltan sölureikning.
Undirbúningur fyrir þetta
hefur staðið í um sex mánuði.
Kvittunin er rekjanleg í bókhaldi
og vottuð af VeriSign, sem eykur
áreiðanleika sendinganna. Með
þessari nýjung verður dælulykill
Atlantsolíu sá eini sinnar teg-
undar í Evrópu, að því er segir í
tilkynningu frá fyrirtækinu. - jab
Löggild
netkvittun hjá
Atlantsolíu
AUGL†SINGASÍMI
550 5000