Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 82
„Þegar menn eru tvítugir eru
þeir fullir af orku og vonum og
vilja bæta heiminn. Þegar þeir
verða sjötugir vilja þeir enn
bæta heiminn, en vita að þeir
geta það ekki.“
Kennedy veginn úr launsátri
Bókatíðindi berast þessa dagana inn
um póstlúgur landsmanna. Kverið er
um 250 síðna langt og upplagið 114 þús-
und eintök enda hefur bókaúrvalið sem
þau hafa að geyma aldrei verið meira,
eða um 680 titlar frá um 110 útgefend-
um. Í Bókatíðindum er birt kápumynd í
flestum tilvika, grein frá höfundi,
útgefenda, skrásetningarnúmeri og
leiðbeinandi verði.
Bókatíðindi komu fyrst út sem fylgi-
blað Morgunblaðsins árið 1983 en árið
1986 voru þau fyrst gefin út í núver-
andi mynd og dreift sjálfstætt til lands-
manna og standa því nú í raun á tví-
tugu. Ef skoðaðar eru tölur yfir útgefna
titla í Bókatíðindum sést að útgáfan
hefur aukist gríðarlega. Nú eru gefnir
út 300 fleiri titlar en árið 1986. Kristj-
án Bjarki Jónas-
son, formaður
Félags íslenskra
bókaútgefenda,
segir að samsetn-
ing bókaflórunnar
hafi einnig breyst
nokkuð á tíma-
bilinu. „Þýddar
afþreyingarbæk-
ur eru mun færri
en tíðkaðist, en
hlutdeild þýddra
barnabóka,
íslenskra skáld-
verka og almennra
upplýsingarita hefur stóraukist. Það
vekur hins vegar athygli að fjöldi ævi-
sagana breytist lítið sem ekkert á
þessu 20 ára tímabili“ en árlega koma
að meðaltali út 32 ævisögur á Íslandi.
Börn eru sá lesendahópur sem fær
mest fyrir sinn snúð í ár. Þýddum
bókum fyrir börn fjölgar, telja 126 titla
í ár sem er það mesta sem nokkru sinni
hefur komið út í þeim flokki. Þrátt fyrir
aukið framboð af erlendu þýddu les-
efni fyrir börn á öllum aldri, bætir
íslenskt frumsamið efni sig á markaði í
titlum talið. Í ár fjölgar eilítið frum-
sömdum barnabókum: úr 33 árið 2005
sem var raunar slakt ár, upp í 48 titla.
Silja Aðalsteinsdóttir bókmennta-
fræðingur segir að það sé fagnaðarefni
þegar börnum er gert hátt undir höfði.
„Það hefur verið messað um það árum
saman að ef það á að viðhalda bóklestri
verður að byrja á börnunum. Ég vona
bara að þessar bækur fái almenna
dreifingu en dagi ekki bara upp á lager-
unum.“ Silja bendir á að ekki er síður
mikilvægt að lesa fyrir börn en að þau
lesi sjálf. „Börn sem lesið er fyrir njóta
þess þegar fram í sækir. Þau læra svo
mörg orð og málþroski er sýnilega
miklu meiri en hinna sem skilar sér í
meira hugmyndaflugi. Og mér sýnist
vera talsvert af bókum í ár ætluðum til
lestrar fyrir börn.“
Bókatíðindi komu fyrst út sem fylgi-
blað Morgunblaðsins árið 1983 en árið
1986 voru þau fyrst gefin út í núver-
andi mynd og dreift sjálfstætt til lands-
manna.
Þýdd skáldverk fyrir fullorðna les-
endur dragast saman í titlum milli ára:
voru í fyrra 71 en eru nú 63. Athygli
vekur að sígild bókmenntaverk eru enn
að koma út í vönduðum þýðingum með
tilstyrk sjóða ríkis, norrænu ráðherra-
nefndarinnar og Evrópusjóða. Svoköll-
uðum samtalsbókum hefur fækkað síð-
ari ár, líklega vegna samkeppni frá
glanstímaritum og dagblöðum. Þá
fækkar í flokknum Listir og ljósmyndir
sökum þess að söfn skrá verk sín ekki í
Bókatíðindi. Íslensk skáldverk eru
samkvæmt tíðindunum 63, fjórum titl-
um færra en í fyrra.
Þýddum bókum fyrir börn fjölgar:
árið 1996 komu út 68 þýddar barnabæk-
ur en eru 126 í ár. Margt er þar samprent
með lágum framleiðslukostnaði. Þrátt
fyrir aukið framboð af erlendu þýddu
lesefni fyrir börn á öllum aldri, bætir
íslenskt frumsamið efni sig á markaði í
titlum talið. Í ár fjölgar eilítið frum-
sömdum barnabókum: úr 33 árið 2005
sem var raunar slakt ár, upp í 48 titla
Gaman er að geta þess að ein af bók-
unum sem voru í fyrstu bókatíðindun-
um árið 1983 var skáldsagan Inga eftir
Birgittu Halldórsdóttur, spennusögu-
bónda á Syðri-Löngumýri í Blöndudal.
Þetta var fyrsta bók spennusagna-
drottningarinnar og svo vill til að hún
er einnig í Bókatíðindum 2006, nú end-
urútgefin í kilju.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Helgi Sigurður
Heimberg Jónasson
til heimilis að Birkiteig 22, Keflavík,
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur 19. nóvember. Útförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 24. nóvember
kl. 14.00.
Sigurður Jóhann Sigurðsson Dröfn Sveinsdóttir
Bergþóra Sigurðardóttir
Stefanía Sigurðardóttir
Ólöf Jóhanna Sigurðardóttir Björgvin Ólafur Gunnarsson
Óli Arelíus Sigurðsson Þorbjörg Þóra Jónsdóttir
Helgi Sigurðsson Carla S. Evans
Guðmundur Heimsberg
Andrea Kristjana Sigurðardóttir Jóhann Guðmundsson
og barnabörn.
70 ára
er í dag, 22. nóvember,
Sesselja Ásgeirsdóttir
starfsmaður Neytendasamtakanna,
Safamýri 40. Hún verður að heiman
í dag en föstudaginn 24. nóvember
kl. 20.00 býður hún gesti velkomna
í Golfskála Oddfellowa.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingibjörg Jónsdóttir
ljósmóðir frá Gemlufalli í Dýrafirði,
húsfreyja á Hálsi í Kjós,
sem lést laugardaginn 18. nóvember sl., verður jarð-
sungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 24. nóvember
kl. 13:00.
Guðmundur Gíslason
Jón Gíslason Sólrún Þórarinsdóttir
Halldór Gíslason Vilborg Sigurðardóttir
Ágústa Gísladóttir
Sigríður Kr. Gísladóttir
Gísli Örn Gíslason
Andrés Freyr Gíslason Svana Lísa Davíðsdóttir
Hjörtur Gíslason Guðrún Ingadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
AFMÆLI
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.