Fréttablaðið - 22.11.2006, Síða 90
Poppprinssessan Britney Spears
var ekki lengi að finna sér nýjan
mann. Aðeins tveimur vikum
eftir skilnaðinn við dansar-
ann Kevin Federline hefur
hún nú sést láta vel að leik-
aranum óþekkta Mario
Lopez á skemmtistað í Las
Vegas. Sjónarvottar á staðn-
um segja við tímaritið Peop-
le að Spears og Lopez hafi
ekki vikið hvort frá öðru
allt kvöldið og að þau
hafi tvímælalaust
verið saman.
Spears þykir
með eindæmum
fljót að jafna sig
eftir skilnaðinn
sem þýðir bara
það að
hún
hafi
löngu verið búin að ákveða að
skilja. Spears á tvö börn með
Federline, en ekki eru nema tveir
mánuðir síðan hún eignaðist son-
inn Jayden James. Spears hygg-
ur nú á endurkomu í tónlistar-
bransann aðdáendum sínum til
mikillar gleði. Federline hefur
hins vegar ekki gengið jafn vel
með nýju plötu sína þar sem hann
rappar og hefur platan fengið
arfaslaka dóma.
Britney komin með nýjan kærasta
Tónlistarmaðurinn Hlynur
Áskelsson samdi frægt lag
um Stoke-ævintýri Íslend-
inga. Honum líst vel á að
semja lag um West Ham nú
þegar það er í eigu Íslend-
inga.
„Nei, ég hafði nú ekki velt því
fyrir mér en þetta er ágætis efni í
texta,“ segir Hlynur Áskelsson,
betur þekktur sem pönkrokkarinn
Ceres4, þegar hann er inntur eftir
því hvort texti um West Ham-
ævintýri Eggerts Magnússonar og
Björgólfs Guðmundssonar liggi á
borðinu. „Þetta bar svo brátt að,
heyrði bara af þessu í morgun-
fréttinum og á eftir að melta
þetta,“ bætir Hlynur við en kemst
síðan á mikið flug. „Ég þarf nú
bara að fara setjast niður, má ekki
láta þetta happ úr hendi sleppa,“
segir hann og hlær. „Það er glam
að eiga West Ham,“ er fyrsta línan
sem honum dettur í hug.
Lagið „Stoke er djók“ sem
Hlynur gerði um Íslendingafélag-
ið sáluga naut mikilla vinsælda
fyrir nokkrum árum og reyndist
Hlynur sannspár um endalok
íslensku fjárfestanna. Hlynur
vonar hins vegar að Eggert og
Björgólfi eigi eftir að takast
betur upp með sitt lið. „Von-
andi velta þeir bara Chelsea og
Manchester United úr sessi,“
segir tónlistarmaðurinn sem
sjálfur á ekkert eftirlætislið í
ensku úrvalsdeildinni. „Öll
félög falla ef ég held með
þeim,“ útskýrir hann og
telur upp lið á borð
við Wimbledon,
Watford og Reykja-
víkurliðið Þrótt.
Hlynur er sér-
kennari við Öskju-
hlíðarskóla og átti
smá stund milli
stríða þegar
Fréttablaðið náði
tali af honum. „Ég
er svo að skrifa
bók sem vonandi
kemur út um næstu
jól,“ upplýsir hann en
vill sem minnst um
hana segja, þetta sé
þó ævintýrabók. Text-
inn um West Ham
verður því að bíða
enn um sinn og
ræðst væntanlega
af framhaldinu í
London.
Leikarinn Josh Harnett hefur und-
anfarið sést í ófá skipti á stefnu-
móti með dularfullri dökkhærðri
stelpu. Þetta gefur sögusögnum
þess efnis að hann og leikkonan
Scarlett Johansson séu hætt
saman byr undir báða vængi.
Hartnett mun vera búinn að fá nóg
af því hversu lítið skötuhjúin geta
verið saman vegna vinnu og hefur
því leitað í faðm annarrar konu.
Umrædd kona mun hafa
heimsótt Harnett á töku-
stað á nýjustu mynd
leikarans sem er
tekin upp í Ástr-
alíu. Gistu þau
saman á hót-
eli og sáust
saman úti að
borða oftar
en einu sinni
að sögn blaðs-
ins Daily
Telegraph.
Josh á leynikærustu
Kvikmyndastjarnan og gaman-
leikarinn Sacha Baron Cohen er að
undirbúa brúðkaup sitt og kær-
ustu sinnar, Isla Fisher. Cohen,
sem hefur gert garðinn frægan í
hinni umdeildu mynd um sjón-
varpsmanninn Borat, er spenntur
fyrir tilvonandi brúðkaupi og það
er brúðurin ekki síður. Fisher
hefur snúist til gyðingsdóms fyrir
sinn heittelskaða. Isla Fisher er
ung leikkona og hefur leikið meðal
annars í myndinni „Wedding Cras-
hers“. Ekki fylgir þó sögunni hve-
nær þau muni ganga upp að altar-
inu.
Borat í hjónaband
Leikkonan Gillian Anderson eign-
aðist sitt fyrsta barn á dögunum
með kærasta sínum, Mark Griff-
iths. Hún eignaðist strák sem mun
bera nafnið Oscar Griffiths. Gilli-
an, sem skildi við eiginmann sinn
Julian Ozanne í apríl lýsti því yfir
þremur mánuðum síðar að hún
væri ólétt og þarf því DNA-próf til
að skera út um það hvor sé faðir
barnsins. Griffiths er þó tilbúinn
til að ganga barninu í föðurstað
sama hvernig prófið fer.
Gillian orð-
in mamma
Lag um West Ham þegar í smíðum