Fréttablaðið - 22.11.2006, Qupperneq 96
Rafa Benitez, stjóri Liver-
pool, hefur áhuga á að bæta við
hópinn hjá Liverpool þegar opnað
verður fyrir leikmannakaup í jan-
úar en aðaláhyggjuefni stjórans
er slakt gengi liðsins á útivöllum á
þessu tímabili. Liverpool hefur
aðeins skorað eitt mark á útivelli á
tímabilinu en það kom í fyrsta leik
tímabilsins gegn nýliðum Sheffi-
eld United.
Umræðan um hugsanlegt yfir-
tökuboð Kanadamannsins George
Gillett, eiganda kanadíska
íshokkíliðsins Montreal Canadi-
ens, hefur heldur ekkert farið
framhjá Benitez. „Ég er ekkert að
velta mér upp úr því. Það er eðli-
legt að fólk hafi áhuga á liðinu,
þetta er stórt félag. Ég er bara að
einbeita mér að því að bæta leik
liðsins, vinna útileiki og hafa
gaman af Meistaradeildinni. Ég
ræð engu í þessu yfirtökumáli,“
sagði Benitez.
„Maður þarf alltaf að vera með
augun opin á leikmannamarkaðn-
um en ég er bara að hugsa um leik-
inn gegn PSV þessa dagana. Við
spilum vel á heimavelli og skorum
mörk og vinnum leiki. En á útivöll-
um gerum við tvennt, sköpum
færi og spilum vel en skorum ekki
mörk,“ sagði Benitez en Liverpool,
sem mætir PSV í Meistaradeild
Evrópu í kvöld, hefur þegar tryggt
sér sæti í 16 liða úrslitum keppn-
innar.
Einbeiti mér bara að leik Liverpool-liðsins
Jose Mourinho, stjóri
Chelsea, hefur viðurkennt að
hann sakni Williams Gallas.
Leikmaðurinn yfirgaf Chelsea í
fússi og gekk í raðir erkifjend-
anna í Arsenal í ágúst á þessu ári
en Ashley Cole fór frá Arsenal til
Chelsea á sama tíma.
„Öll lið sakna góðra leikmanna.
Ashley Cole er frábær leikmaður
sem er að taka stöðugum fram-
förum og hann er í hæsta
gæðaflokki. Ég gæti sagt að ég
saknaði ekki Gallas vegna þess að
við erum að spila vel núna en ég
ber virðingu fyrir Gallas og hans
framlagi til Chelsea undanfarin
tvö ár. Maður saknar alltaf góðra
leikmanna og Gallas er góður
leikmaður,“ sagði Mourinho.
Mourinho
saknar Gallas
Gary Neville, bakvörður
Manchester United og enska
landsliðsins, gæti þurft að fara í
aðgerð til að fá bót meina sinna.
Neville hefur átt við meiðsli í
hægri kálfa að stríða en nú er
verkurinn kominn í vinstri
kálfann að auki.
„Gary Neville æfði í morgun
en þessi meiðsli eru augljóslega
áhyggjuefni. Við vonum bara það
besta. Við munum þurfa að taka
langtímaákvörðun og það gæti
þýtt aðgerð.
Ef verkurinn væri bara í
hægri kálfanum þá myndum við
bara gefa þessu tíma til að jafna
sig en þar sem hann finnur til í
þeim vinstri líka þá þurfum við
að endurskoða það. Gary er
fyrirliðinn okkar og með þá
reynslu sem hann hefur þá viljum
við hafa hann í liðinu í öllum
leikjum,“ sagði Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Manchester
United.
Neville gæti
þurft í aðgerð
Dirk Nowitzki skoraði 24 stig
og tók 14 fráköst þegar Dallas
lagði Charlotte Bobcats að velli
93-85 í fyrrinótt. Þetta var sjötti
sigur Dallas í röð en liðið tapaði
fjórum fyrstu leikjum tímabils-
ins. Dallas hafði alltaf yfirhönd-
ina í leiknum þrátt fyrir að vera
aðeins með 39% skotnýtingu utan
af velli.
Yao Ming leiddi Houston
Rockets til sigur gegn New York
Knicks, 97-90. Ming skoraði 26
stig í leiknum auk þess að taka
níu fráköst en næstur honum í
stigaskori hjá Houston var Tracy
McGrady sem skoraði 24 stig.
Memphis Grizzlies lagði
Orlando Magic að velli 95-86 þar
sem Hakim Warrick fór fyrir lið
Memphis og skoraði 26 stig, þar
af 15 í síðasta leikhlutanum.
Utah Jazz hélt áfram sigur-
göngu sinni þegar liðið vann
Toronto Raptors, 101-96, á
heimavelli. Carlos Boozer skoraði
35 stig fyrir Utah sem hefur nú
unni tíu af ellefu fyrstu leikjum
sínum.
Sjötti sigur
Dallas í röð
Peter Schmeichel, sem
gerði garðinn frægan sem mark-
vörður hjá Manchester United á
sínum tíma, tók á dögunum þátt í
raunveruleikasjónvarpsþætti sem
snýst um dans og ber enska heitið
„Come Dancing“, eða „Komdu að
dansa“ á íslensku.
Þátturinn fer þannig fram að
frægir einstaklingar taka dans-
spor og svo er kosning í lok þáttar-
ins um hvaða danspar dettur út. Á
laugardaginn var þurftu Peter
Schmeichel og Erin Boag, sem
voru danspar í þættinum, að bíta í
það súra epli að yfirgefa þáttinn
eftir að þau lentu í neðsta sæti en í
næst neðsta sæti var gamla Krydd-
pían Emma Bunton og dansfélagi
hennar. Dómari í keppninni er
enginn annar en Simon Cowell,
sem hve þekktastur er fyrir þátt
sinn í American Idol.
Schmeichel átti afmæli á laugar-
daginn og sagði að óheppnin virt-
ist elta hann á afmælisdeginum.
„Afmælisdagurinn er ekki happa-
dagurinn minn. Ég missti eitt sinn
af leik í undankeppni HM á afmæl-
isdeginum mínum og er því vanur
þessu,“ sagði Schmeichel. Ekki er
nú öll vitleysan eins.
Schmeichel er úr leik í danskeppni
Áfrýjunum Blackburn
og Tottenham hefur verið vísað
frá en liðin áfrýjuðu rauðum
spjöldum sem Tugay, leikmaður
Blackburn og Hossam Ghaly,
leikmaður Tottenham, fengu í
leik liðanna á sunnudaginn.
Tugay var rekinn af velli
fyrir brot sem leiddi til víta-
spyrnu og fékk fyrir vikið eins
leiks bann en Hossam Ghaly
fékk rautt spald fyrir að gefa
Michael Gray, leikmanni
Blackburn, olnbogaskot og fékk
þriggja leikja bann.
Stjórar liðanna, Mark
Hughes hjá Blackburn og
Martin Jol hjá Tottenham,
gagnrýndu báðir dómara
leiksins, Phil Dowd, eftir
leikinn.
Tugay og Ghaly
í bann
Fimmta umferð í riðla-
keppni Meistaradeildar Evrópu
hófst í gær með átta leikjum.
Það var mikið undir þegar Celt-
ic tók á móti Man. Utd í Skotlandi.
Celtic varð að vinna á meðan Unit-
ed dugði jafntefli til að komast
áfram. Einhverjir spekingar áttu
von á því að United myndi hvíla
lykilmenn fyrir rimmuna gegn
Chelsea um helgina en því fór víðs-
fjarri því Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, tefldi fram öllum sínum
bestu mönnum.
Leikurinn fór frekar rólega af
stað en gestirnir frá Manchester
tóku samt völdin frá upphafi og
stýrðu umferðinni gegn heimalið-
inu sem lá mjög aftarlega og freist-
aði þess að sækja hratt. Varnar-
leikur heimamanna var sterkur og
United gekk ákaflega illa að opna
vörn Celtic. Sóknartilburðir heima-
manna voru að sama skapi engir
og þegar líða tók á fyrri hálfleik-
inn létu áhorfendur í ljós óánægju
sína með varnarsinnaðan leik
sinna manna.
Cristiano Ronaldo fékk fyrsta
alvöru færi leiksins á 37. mínútu
þegar hann slapp einn í gegnum
vörn Celtic en slappt skot hans var
auðveldlega varið. Lítið markvert
gerðist það sem eftir lifði fyrri
hálfleiks og því markalaust þegar
leikmenn gengu til búningsher-
bergja þar sem farið var yfir hern-
aðaráætlun síðari hálfleiks.
Gordon Strachan, stjóri Celtic,
skipti tveim mönnum af bekknum í
leikhléi í þeirri von að hressa upp á
leik sinna manna sem helst urðu að
fá öll stigin í leiknum eins og áður
segir. Mun meira fjör var í upphafi
síðari hálfleiks en í fyrri hálfleik en
mörkin létu á sér standa.
Tékkinn Jiri Jarosik fiskaði
ódýra aukaspyrnu þegar lítið var
eftir af leiknum. Japaninn Nak-
amura var ekki að velta fyrir sér
hvort brotið hefði verið á Jarosik
eða ekki því hann sneri boltanum
á stórkostlegan hátt yfir varnar-
vegg United og í bláhornið.
Algjörlega óverjandi fyrir Van
Der Saar í marki United. Þess má
geta að Nakamura skoraði einnig
beint úr aukaspyrnu í fyrri leik
liðanna.
Dómarinn jafnaði metin sjö
mínútum síðar þegar hann gaf
United aukaspyrnu rétt fyrir
utan teig. Ronaldo tók spyrnuna,
Gravesen varði innan teigs og
vítaspyrna dæmd. Hana tók Louis
Saha en Artur Boruc gerði sér
lítið fyrir og varði spyrnuna. Þar
við sat og Celtic tyllti sér um leið
á topp riðilsins.
Celtic gerði sér lítið fyrir og lagði Man. Utd í Glasgow í gær, 1-0. Það var Japan-
inn Nakamura sem skoraði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu. Arsenal
lagði HSV en AC Milan tapaði óvænt í Aþenu fyrir AEK.