Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 98
Leikir kvöldsins
Átta leikir eru á dagskrá
Meistaradeildar Evrópu í kvöld og
geta fjögur lið tryggt sér sæti í 16-
liða úrslitum. Nú þegar eru Bay-
ern München, Liverpool, PSV
Eindhoven og Valencia komin í 16-
liða úrslitin en það er enn óráðið
hvort þau lið lenda í fyrsta eða
öðru sæti sinna riðla. Liverpool og
PSV eigast við í nánast hreinum
úrslitaleik um toppsætið í C-riðli á
Anfield í kvöld. Efsta liðið í hverj-
um riðli mætir einhverru liðanna
sem lentu í öðru sæti hinna riðl-
anna og eiga þar með meiri mögu-
leika á „auðveldari“ andstæðingi í
16-liða úrslitum.
Spennan í A-riðli er mikil þar
sem Evrópumeistarar Barcelona
sitja í þriðja sæti riðilsins með
fimm stig eftir fjóra leiki. Liðið
hefur aðeins unnið einn leik til
þessa, gegn búlgarska liðinu Lev-
ski Sofia sem það mætir á útivelli
í kvöld. Ekkert annað en sigur
kemur til greina hjá liðinu í kvöld
því eftir tvær vikur mætir liðið
Werder Bremen og verður sá leik-
ur væntanlega úrslitaleikur um
annað sæti riðilsins.
Bremen mætir Chelsea í kvöld
á heimavelli og ef Barcelona mis-
tekst að vinna Levski mun sigur
heimamanna þýða að bæði lið eru
komin áfram og Evrópumeistar-
arnir sitja eftir. Yrði það í fyrsta
sinn í sögu Meistaradeildarinnar
að meistararnir komast ekki upp
úr sínum riðli.
Það er talið nánast öruggt að
Eiður Smári Guðjohnsen verði í
byrjunarliði Barcelona í kvöld
eftir að hann skoraði fyrstu tvö
mörk liðsins í 4-1 sigri þess á Real
Mallorca í spænsku úrvalsdeild-
inni um helgina. Samuel Eto‘o,
Javier Saviola og Lionel Messi
eiga allir við meiðsli að stríða sem
og Admilson og Juliano Belletti.
„Það er allt undir í þessum leik
og það væri óhugsandi að sjá fyrir
sig næstu umferð Meistaradeild-
arinnar án Barcelona,“ sagði
Andres Iniesta, miðvallarleikmað-
ur Börsunga. Levski verður að
vinna í kvöld til að eiga einhverja
möguleika á að ná þriðja sæti rið-
ilsins og þar með sæti í UEFA-bik-
arkeppninni.
„Ég hef trú á því að þetta verði
okkar bestu leikur í Meistara-
deildinni,“ sagði Todor Batkov,
eigandi Levski Sofia. „Við getum
vel spillt fyrir Evrópumeisturun-
um.“
Sem fyrr segir mætir Liver-
pool liði PSV Eindhoven á Anfield
í kvöld en bæði lið eru með tíu stig
í C-riðli. Hin liðin, Galatasaray og
Bordeaux eru hvort með eitt stig
og eigast við í kvöld í úrslitaleik
um þrijða sæti riðilsins. Að sama
skapi er leikurinn á Anfield
úrslitaleikur um efsta sæti riðils-
ins. Búist er við að Rafael Benitez
muni stila fyrirliðanum Steven
Gerrard upp á miðjunni en ekki á
hægra kanti.
„Ég nýt mín alltaf á miðjunni.
Mér finnst að ég geti sýnt mitt
allra besta í því hlutverki,“ sagði
Gerrard.
Aðeins sigur kemur til greina hjá Barcelona
Ástralski sundmaðurinn Ian
Thorpe hefur ákveðið að hætta
keppni. Thorpe er 24 ára gamall
og fimmfaldur Ólympíumeistari,
en hann vann þrjú gullverðlaun á
Ólympíuleikunum í Sydney árið
2000 og bætti tveimur titlum við í
Aþenu fjórum árum síðar.
„Ég hef átt frábæran feril.
Þetta er ekki besti tíminn til að
hætta keppni en þetta er minn
tími. Ég ætti ekki að vera að hætta,
ég er alltof ungur til þess, en það
er líka eitthvað sem við ættum að
fagna. Ég hef átt frábæran feril,“
sagði Thorpe en hann hefur nán-
ast ekkert getað keppt frá Ólymp-
íuleikunum í Aþenu vegna
meiðsla.
„Þetta er mjög erfið ákvörðun
hjá mér. Ég hef bara komist að því
að það eru hlutir í mínu lífi sem
eru mér mikilvægari. Ég hef náð
hæstu hæðum í þessari íþrótt. Ég
hef náð frábærum árangri og einn-
ig orðið fyrir miklum áföllum,“
sagði Thorpe á blaðamannafundi
sem hann bauð til í Sydney í Ástr-
alíu.
Ian Thorpe er hættur
Roberto Carlos, leikmað-
ur Real Madrid, hefur framlengt
samning sinn við félagið til ársins
2008. Litlu munaði að Carlos færi
frá Real Madrid í sumar en auk
hans skrifaði Guti undir nýjan
samning við félagið í gær sem
gildir til ársins 2010.
„Við erum mjög ánægðir. Í
fyrsta lagi vegna þess að þeir
munu leika með okkur í framtíð-
inni og í öðru lagi vegna þess að
þeir eru að spila mjög vel og það
er gott fyrir okkur,“ sagði
Predrag Mijhatovic, yfirmaður
íþróttamála hjá Real Madrid.
Carlos með
nýjan samning
Yevgeny Giner forseti
CSKA Moskva hefur viðurkennt
að hann borgi reglulega bónus-
greiðslur til annarra liða svo þau
leggi sig meira fram gegn
erkifjendum félagsins.
„Ég sé ekkert að því. Margir
segja að þetta sé ekki réttlátt en
ég er ekki sammála því. Það sem
meira er, ég gæti alveg sagt
ykkur hvað ég er að borga og líka
sagt skattayfirvöldum hvaðan
þessir fjármunir koma. Ég sé
ekkert að því að borga öðrum
liðum bónusgreiðslur,“ sagði
Giner við blaðið Sport-Express.
Það er ekki ólöglegt að borga
öðrum liðum bónusgreiðslur en
það þykir þó siðlaust og stríðir
gegn háttvísisreglum FIFA og
UEFA.
Borgar öðrum
liðum bónus
Sérkennilegt mál kom
upp á sunnudaginn var þegar
ÍBV átti að leika gegn Hetti frá
Egilsstöðum í 1. deildinni í hand-
bolta. Bikarleikur liðanna fór
fram í Vestmannaeyjum á laug-
ardeginum og að ósk Hattar-
manna var deildarleikur liðanna
færður á sunnudaginn til að
spara þeim ferðakostnað. Allar
forsendur voru fyrir því að leik-
urinn gæti farið fram á sunnu-
deginum en Hattarmenn ákváðu
að fara áður en leikurinn fór
fram vegna slæmra verðurskil-
yrða.
Strax á laugardeginum var ljóst
að útlit væri fyrir slæmt veður á
sunnudeginum og næstu daga og á
sunnudagsmorguninum var ferð
Herjólfs til Þorlákshafnar flýtt til
hádegis vegna veðurútlits. Af
þeim sökum brugðu leikmenn
Hattar á það ráð að fara með Herj-
ólfi í þá ferð án þess að hafa feng-
ið jákvætt svar frá HSÍ um frest-
un á leiknum. Hattarmenn voru að
vísu ekki þeir einu sem yfirgáfu
svæðið því að dómarar leiksins
fóru með liðinu í sömu ferð til Þor-
lákshafnar.
HSÍ sendi svo í gær bréf til
Hattar þar sem fram kemur að
ÍBV hafi verið dæmdur sigur í
leiknum, 10-0, auk þess sem Hetti
ber að greiða sekt sem nemur 250
þúsund króna eins og reglugerð
2.2.12 í lögum HSÍ segir til um.
Reglugerð 2.2.12 í lögum HSÍ er
svohljóðandi: „Mæti lið ekki til
leiks í móti þar sem leikið er
heima og heiman samkvæmt
mótaskrá HSÍ, og hefur að mati
mótanefndar ekki löglega ástæðu,
skal lið í meistaraflokki greiða kr.
250.000 í sekt til HSÍ, en lið í yngri
flokkum kr. 100.000. Auk þess
skal það lið sem mætir ekki greiða
hinu liðinu sannanlega útlagðan
kostnað vegna undirbúnings
leiksins.“
„Við skiljum þeirra afstöðu en
okkur ber að fara eftir settum regl-
um, enda eru það félögin sem sam-
þykkja þær reglur. Við höfum í
raunninni ekkert um annað að
ræða,“ sagði Róbert Geir Gíslason,
yfirmaður mótamála hjá HSÍ, í sam-
tali við Fréttablaðið í gær. „Dómar-
arnir fóru ekki fyrr en það var orðið
fyllilega ljóst að Höttur yrði ekki á
staðnum,“ bætti Róbert Geir við.
Einar Ben Þorsteinsson, for-
maður handknattleiksdeildar
Hattar, var ekki ánægður með þá
ákvörðun HSÍ að dæma þeim tap í
leiknum og sekta félagið um 250
þúsund krónur. „Við erum alveg
gráti næst yfir þessu. Við mar-
góskuðum eftir því að þessum leik
yrði frestað vegna veðurútlits á
föstudaginn, laugardaginn og
sunnudagsmorgninum. Leikmenn
tjáðu okkur að þeir gætu ekkert
verið í einhverri óvissuferð fram
á miðvikudag og því tókum við
þessa ákvörðun. Ef leikmennirnir
hefðu atvinnu af handknattleik þá
myndi málið horfa öðruvísi við,“
sagði Einar Ben.
„Við viljum spila okkar leiki og
við erum ekki félag sem gengur í
burtu frá hálfkláruðu verki,“ bætti
Einar Ben við en Höttur hefur
möguleika á að kæra málið til
dómstóls HSÍ í þeirri von um að fá
dómnum hnekkt. „Við erum komn-
ir með lögfræðing í málið.“
„Okkur hefur alveg dottið í hug
að hætta keppni ef sektinni verður
ekki hnekkt. Þegar okkur er ekki
sýndur skilningur í svona máli,
sem mér finnst liggja alveg borð-
liggjandi fyrir, þá skilur maður
ekki alveg hvaða hugsjón liggur
að baki. HSÍ er myndað af félög-
unum en ekki öfugt,“ sagði Einar
Ben.
Félagið Höttur var í gær dæmt til að greiða háa sekt fyrir að mæta ekki til leiks gegn ÍBV í fyrstu deild
karla í handbolta. Leikmenn liðsins ákváðu að yfirgefa Vestmannaeyjar áður en leikurinn var spilaður
vegna veðurs en HSÍ segist ekki sjá sér fært annað en að sekta Hött fyrir þetta uppátæki leikmanna félags-