Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 76
Samstarf Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og Listahá-
skóla Íslands er meðal
annars fólgið í árlegum
tónleikum þar sem ungir og
upprennandi tónlistarmenn
fá að spreyta sig með hljóm-
sveitinni.
Á morgun koma þrír ungir lista-
menn fram í Háskólabíói á tón-
leikum þar sem stemningin verð-
ur án efa lituð af eftirvæntingu og
æskumóð.
Fiðluleikarinn Eygló Dóra Dav-
íðsdóttir, Grímur Helgason klarin-
ettuleikari og Egill Árni Pálsson
tenór voru valin í sérstakri for-
keppni fyrr í vetur. Þar tóku ellefu
nemendur úr tónlistardeild Lista-
háskóla Íslands, Tónlistarskólans í
Reykjavík, Söngskólans í Reykja-
vík og Nýja tónlistarskólans þátt
og var dómnefnin samhljóma en
hana skipuðu Karólína Eiríksdótt-
ir tónskáld, formaður, Hafliði
Hallgrímsson tónskáld og selló-
leikari, Sigrún Hjálmtýsdóttir
söngkona, Ármann Helgason klar-
ínettuleikari, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari og
Rumon Gamba, aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Grímur Helgason segist eftir-
væntingarfullur vegna tónleik-
anna en þetta er stærsta verkefni
hans til þessa. Hann hefur á und-
anförnum árum leikið með margs
konar tónlistarhópum, þar á meðal
Kammersveitinni Ísafold, Hamra-
hlíðarkórnum, Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins, Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands og djasshljómsveit-
unum Glymskröttunum og Hrafna-
sparki, auk margvíslegra sam-
leikshópa innan Listaháskólans.
„Ég hef mest fengist við klassíska
tónlist en hef aðeins komið við í
djassinum líka,“ útskýrir Grímur.
Grímur stundar nám við Lista-
háskóla Íslands undir handleiðslu
Einars Jóhannessonar en mun
ljúka prófi í vor og hyggur á frek-
ara nám erlendis þegar fram líða
stundir. Á tónleikunum mun Grím-
ur leika klarinettukonsert eftir
Gerald Finzi ásamt strengjasveit
en hann segir verkið mjög fallegt.
„Þetta verk er í miklu uppáhaldi
hjá mér núna en Einar, kennarinn
minn, vakti áhuga minn á því.
Sjálfur kynnist hann þessu verki
þegar hann var við nám í London.
Þetta er ekki mjög þekkt verk,
nema máski þar í landi og þetta er
sennilega frumflutningur þess
hér.“
Grímur kveðst lítið hafa leitt
hugann að því hvaða þýðingu tón-
leikar sem þessir hafa fyrir hann í
framtíðinni. „Það er bara rosalega
gaman að fá tækifæri til þess að
taka þátt í þessum tónleikunum
hér og nú. Í framtíðinni verður
þetta ábyggilega bara góð minn-
ing og reynsla.“
Egill Árni mun syngja aríur úr
I Lombardi, Rigoletto og La Travi-
ata eftir Verdi á tónleikunum og
Eygló Dóra leikur fiðlukonsert
eftir Max Bruch. Auk þess mun
Sinfóníuhljómsveitin leika for-
leikinn vinsæla úr Vilhjálmi Tell.
Hljómsveitarstjóri er Finninn Esa
Häkkilä en hann stjórnaði Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á Myrkum
músíkdögum árið 2005.
Sem fyrr hefjast tónleikarnir í
Háskólabíói kl. 19.30 en þess skal
getið að allir sem framvísa náms-
mannaskírteinum fá miða á hálf-
virði.
Kl. 13.00
Jóhann Torfason og Hlynur Helgason sýna
verk sín í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.
Jóhann sýnir „Ný leikföng“, tölvugerð málverk
og silkiþrykk en verk Hlyns ber heitið „63 dyr
Landspítala við Hringbraut“ og samanstend-
ur af kvikmynd, ljósmyndum og málverki.
Sýningarnar standa til 28. janúar en safnið er
opið frá kl. 13 -17 alla daga nema mánudaga.
Aðgangur er ókeypis.
!
Ný dönsk glæpasería hóf göngu
sína á sunnudagskvöldið á DR1 -
Forbrydelsen – Glæpurinn – heitir
hún og mun skemmta dönskum
sjónvarpsáhorfendum næstu mán-
uði en þættirnir verða tuttugu að
tölu og eru á dagskrá á sunnudags-
kvöldum á besta tíma á DR1.
Innkaupadeild ríkissjónvarps-
ins hefur þegar tryggt sér þættina
en ekki er ráðið hvenær þeir fara
á dagskrá. Ríkissjónvarpið hefur
haft gott upp úr dönskum þátta-
röðum hin síðari misseri: síðustu
þættirnir af Krónikunni fóru
reyndar fyrir ofan garð og neðan
hjá íslenskum sjónvarpsáhorfend-
um, voru lítið kynntir af sjónvarp-
inu, en þar voru allir endar hnýtt-
ir. Örninn hefur skemmt íslenskum
áhorfendum undanfarin misseri
og þar á undan voru þættir á borð
við Taxa, Forsvar og Nikolej og
Julía vinsælir. Stöð 2 sýndi Rejse-
holdet líka við góðar undirtektir.
Forbrydelsen er samin af Sören
Sveistrup, en hann var aðalhöf-
undur Nikolej og Júlíu. Þaðan fekk
hann leikkonuna Sophie Gråbøl
sem leikur Söru Lund, unga lög-
reglukonu sem hyggst flytja til
Svíþjóðar en lendir ásamt eftir-
manni sínum í rannsókn á hvarfi
ungrar stúlku.
Sofie Gråbøl er líka hátt skrif-
uð leikkona, bæði fyrir sjónvarps-
leik sinn, leik í kvikmyndum og á
sviði. Gagnrýnendur segja fram-
leiðendur hafa lært sitt af vel-
gengni nokkurra raða og nefna
þeirra á meðal svo ólíka þætti sem
24, Rejseholdet og Kóngakapalinn
sem hér hefur enn ekki sést, en
allt eru þetta þrautskipulagðir for-
múluþættir. Annar þátturinn verð-
ur á dagskrá á DR 1 kl. 20.
Ný dönsk glæpasería byrjar
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR