Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 29

Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 29
Tíu dropar er eitt af þessum viðkunnanlegum kaffihúsum sem kúrir á Laugavegi. Það eru yfir tuttugu ár síðan kaffi- húsið leit dagsins ljós, en fyrir rúmu ári tóku við því fjórar ungar konur sem leggja mikla áherslu á einfalda og góða þjóðlega rétti. Það er sérstaklega hlýlegt and- rúmsloft í kjallara Laugavegs 27 þar sem Tíu dropar eru til húsa. Eins konar fortíðarþrá læðist um milli borðanna. Og þegar glaðleg þjónustustúlkan birtist og býður kaffi er eins og maður sé komin í heimsókn til góðra vina. Þegar þær Tinna Ásgeirsdóttir, Sigríður Helga Kristjánsdóttir, Brynja Björk Hinriksdóttir og Þorgerður Egilsdóttir tóku við þessum rótgróna kaffihúsi fylgdi með tryggur hópur gesta sem enn koma í heimsókn enda er stefnan hjá vinkonunum að gestum líði vel. „Við fórum hægt af stað með breytingar svo að fastagestirnir myndu ekki missa umhverfið sem þeir þekktu. Við gerðum lítils hátt- ar breytingar á salnum sem féllu í góðan farveg og samhliða því breyttum við og bættum örlítið við matseðilinn,“ segir Þorgerður Egilsdóttir bústýra hjá Tíu drop- um. Salnum var breytt örlítið og matseðillinn færður í þjóðlegri búning. Meðal annars er boðið upp á flatbrauð með hangikjöti, klein- ur, pönnukökur og góða kjötsúpu sem heillar alla upp úr skónum. „Við höfum allar okkar hlutverk í rekstrinum, en það er skemmti- legast í pönnukökunum, svo við rífumst stundum um að baka þær,“ segir Þorgerður brosandi. Í gestahópnum er fólk sem vinnur í miðbænum en líka aðrir sem gera sér ferð í bæinn sérstak- lega til að kíkja inn á Tíu dropa. „Það eru mjög margir fastagestir, bæði daglega og þeir sem koma einu sinni í viku eða mánuði. Maður sér sömu andlitin reglu- lega og það er mjög indælt að sjá hvað hópurinn stækkar og að gest- unum líður vel hjá okkur,“ segir Þorgerður. Tíu dropar eru á Laugavegi 27 og er opið virka daga frá klukkan 09.00-18.00, á laugardögum frá kl. 10.00-17.00, en lokað á sunnudög- um. Rifist um að baka pönnukökur Umræður, veitingahúsarýni, uppskriftir og góð ráð. Matseld.is er nýr vefur þar sem áhugafólk um mat og matargerð ætti að finna sitthvað við sitt hæfi. Vefurinn er ókeypis fyrir notendur, en með því að skrá sig getur fólk skipst á góðum ráðum, sett inn upp- skriftir og margt fleira. Til dæmis skiptast notendur á ráðum í sam- bandi við að skipuleggja kvöldmat- seðilinn viku fram í tímann, hvar hægt er að finna góðar uppskriftir fyrir sykursjúka, hvað skuli gera þegar fólk er með ofnæmi fyrir MSG og fleiri hollráð. Á vefsíðunni er einnig að finna veitingahúsarýni þar sem notendur gefa veitingastöðum einkunnir, orðabanka með ýtarlegum upplýs- ingum um margs konar fæðuteg- undir sem oft virðast framandi og fleira gagnlegt. PANTAÐU Í SÍMA WWW.JUMBO.IS 554 6999 SAMLOKUBAKKI | TORTILLABAKKI | BLANDAÐUR BAKKI ÞÚ GETUR PANTAÐ GIRNILEGA VEISLUBAKKA FRÁ OKKUR MEÐ LITLUM FYRIRVARA Nýr vefur um matseld

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.