Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 42
M agni Ásgeirsson skaust fram á sjónarsviðið síðasta sumar þegar hann var valinn úr hópi 25 þúsund manna um heim allan til að spreyta sig í raunveruleikaþættinum Rockstar Supernova. Magni var löngu þekktur á Íslandi enda hafði hann sungið og spilað með hljómsveitinni Á móti sól um árabil. Fjölskylda hans hafði hins vegar hingað til fengið frið frá ágangi fjölmiðlanna en með velgengni Magna í Ameríku fór það að breytast. Unnusta Magna til margra ára, Eyrún Huld Haraldsdóttir, og sonur þeirra Marínó, voru allt í einu komin inn í mitt kastljós fjölmiðlanna, allir vildu heyra í þeim og þekkja. Á allra vörum Flestir eru sammála um að Eyrún Huld hafi staðið sig eins og hetja við að svara spurningum fjölmiðla og í viðtali við DV sagðist hún stolt af Íslendingum og hvernig þeir stæðu við bakið á Magna í keppninni. Eyrún og Magni voru á allra vörum og umfjöllun fjölmiðla hélt áfram eftir að Magni kom heim. Þau voru meðal annars valin eitt af pörum ársins í Hér og Nú og voru auk þess fastagestir í lífsstílsþættinum Innlit útlit þar sem þau fengu hjálp fagmanna við að endurgera heimili sitt í Skerjafirðin- um. Óskapar þjóðarinnar hætt saman Þegar fréttir af skilnaði Magna og Eyrúnar bárust brá mörgum heldur betur í brún. Í fréttatilkynningu sögðust Magni og Eyrún hafa ákveðið að slíta samvistum vegna þess að þau hefðu fjarlægst tilfinningalega í kjölfar mikilla breytinga á högum Magna. Þetta óskapar þjóðarinnar er hætt saman eftir margra ára samband. Sögurnar voru ekki lengi að spretta upp og þá sér í lagi á vefnum barnaland.is, auk þess sem óprúttinn einstaklingur falsaði netsíðu CNN og sagði frá framhjáhaldi Magna og Dilönu Robichaux, sem var ein af keppendum í Rockstar Supernova og kom meðal annars tvívegis til Íslands til að syngja með Magna. Í viðtali við Fréttablaðið blés Magni á allar kjaftasögurnar og bað fólk vinsamleg- ast um að hugsa um eigin vandamál. Byrjuðu saman á skólaballi Eyrún Huld ólst upp á Egilsstöðum en Magni á Borgarfirði eystri. Þau stunduðu bæði nám í Menntaskólan- um á Egilsstöðum og fluttu til Reykjavíkur þegar Magna bauðst staða söngvara hjá hljómsveitinni Á móti sól. Magni og Eyrún höfðu lengi vitað hvort af öðru en kynntust ekki fyrir alvöru fyrr en árið 1997 þegar þau voru bæði í ME. Sagan segir að þau hafi fallið fyrir hvoru öðru á skólaballi þar sem hljómsveitin Sóldögg spilaði fyrir dansi. Eitt leiddi af öðru og fyrr en varði voru þau orðin par, ung að aldri en Magni er þremur árum eldri en Eyrún, hann er fæddur 1978 en hún 1981. Þann 19. september 2005 fæddist Marinó Bjarni og í viðtali við DV sagði Magni að föðurhlutverkið hefði gjörbreytt honum. „Föðurhlut- verkið breytti mér algjörlega á sömu sekúndu og ég sá son minn í fyrsta skiptið. Það er það ánægjulegasta sem ég hef nokkurn tímann tekist á við og jafnframt það erfiðasta en ég nýt hverrar mínútu út í æsar,“ sagði Magni uppljómaður og bætti við að fjölskyldan væri númer eitt, tvö og þrjú.“ Vinirnir taka næstu sætin þar á eftir og tónlistin á sæti þar á eftir. Þetta er það sem gefur lífinu gildi.“ Fagnaðarfundir í Los Angeles Á meðan á Rockstar Supernova keppninni stóð talaði Magni oft um það hversu sárt hann saknaði fjölskyldu sinnar. Hljómsveitar- meðlimir Supernova sáu aumur á honum og buðu Eyrúnu og Marínó til ÞEGAR ÆSKUÁSTIN FÖLNAR MAGNI ÁSGEIRSSON er á meðal þeirra Íslend- inga sem settu mark sitt á árið 2006. Magni tók þátt í bandaríska raun- veruleikaþættinum Rock- star Supernova og öðlað- ist heimsfrægð í kjölfarið. Fjölskylda Magna var allt í einu komin í kastljós fjölmiðlanna og þjóðin hélt mikið upp á þessa litlu fjölskyldu. Fréttir af slitum samvista Magna og æskuástarinnar Eyrún- ar Huldar Haraldsdóttur komu sem þruma úr heiðskíru lofti og ollu talsverðu uppnámi á meðal aðdáenda þeirra. Sirkus skrásetti sögu þessa óskapars þjóðar- innar. Sæt saman Eyrún Huld og Magni ásamt syninum Marínó á meðan allt lék í lyndi áður en Rockstar-ævintýrið hófst. TÍMAÁS AF ROCKSTAR- ÆVINTÝRINU 5. apríl 2006 – Magni mætir í prufu fyrir þættina Rockstar Supernova á Gauki á Stöng. 12. júní 2006 – Fréttir þess efnis að Magni hafi komist í átján manna hóp berast. 22. júní 2006 – Í ljós kemur að Magni hefur komist í fimmtán manna hópinn í Rockstar Supernova. 5. júlí 2006 – Sýningar á Rockstar Supernova hefjast á Skjá einum. 30. ágúst 2006 – Magni fær flest stig allra keppenda sem eftir eru. 13. september 2006 – Úrslitakvöldið. Magni endar í fjórða sæti en Lucas Rossi sigrar keppnina. 30. nóvember 2006 – Tónleikar Magna, Dilönu, Storm Large og Toby í Laugardalshöll. 5. janúar 2007 – Fréttatilkynning frá Magna og Eyrúnu berst DV þess efnis að þau hafi slitið samvistum. Dilana Robichaux Eftir að fréttir um slit samvista Magna og Eyrúnar bárust fóru sögusagnir þess efnis að Magni hefði átt í sambandi við Dilönu Robichaux að spretta upp. Magni segir ekkert til í þeim sögusögnum. BLS. 10 | sirkus | 12. JANÚAR 2007
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.