Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 46
Þ að kemur kannski mörgum á óvart að hin átján ára gamla Lovísa Elísabet, betur þekkt sem Lay Low, hafi selt meira af sinni fyrstu plötu á síðasta ári heldur en þrjár Idolstjörnur samanlagt. Lay Low seldi rúm sjö þúsund eintök af plötu sinni en Hildur Vala Einarsdóttir, Snorri Snorrason og Bríet Sunna Valdemarsdóttir seldu samanlagt rétt rúmlega sex þúsund plötur. „Þetta er skemmtilegt. Ég hef aldrei unnið Idolið og bjóst nú eiginlega ekki við þessum viðtökum. Þetta átti nú bara að vera pínulítil frumraun en ég er afar þakklát fyrir mótttökurnar,“ segir Lay Low í samtali við Sirkus. Virðist ekki vera nein ávísun á gott gengi á plötumarkaðnum að hafa slegið í gegn í sjónvarpsþættinum Idol Stjörnuleit á Stöð 2. Í það minnsta gekk þeim þremur einstaklingum sem skutust upp á stjörnuhimininn í þættinum, Hildi Völu, Bríeti Sunnu og Snorra, ekki vel að selja sínar plötur fyrir þessi jól. Mestar vonir voru bundnar við Hildi Völu, sem vann Idolið árið 2005. Hún gaf út sína fyrsta plötu sama ár og seldist hún afar vel, í um 7000 eintökum. Hún gaf út sína aðra plötu nú í nóvember sem bar nafnið Lalala. Sú plata gekk ekki jafn vel og stendur nú í um 2000 eintökum. Suðurnesjastúlkan Bríet Sunna söng sig inn í hug og hjörtu lands- manna í Idolinu fyrir ári. Þar hafnaði hún í þriðja sæti og gaf síðan út fyrir síðustu jól kántríplötuna Bara ef þú kemur með. Sú plata seldist í 2500 eintökum. Verstu útreiðina fékk hins vegar Idol-sigurvegarinn 2006 Snorri Snorrason. Platan hans Allt sem ég á, seldist aðeins í 1600 eintökum sem verða að teljast töluverð vonbrigði miðað við alla þá miklu athygli sem Snorri fékk í kringum sigur sinn í Idolinu. Eiður Arnarsson, útgáfustjóri íslenskrar tónlistar hjá Senu, segir í samtali við Sirkus að það sé allt annað mál að gefa út plötur en að taka þátt í sjónvarps- þætti eins og Idolinu. „Það var sjónvarps- þáttur og virkaði vel sem slíkur. Það er hins vegar himinn og haf á milli þess að senda sms í símakosningu heima í stofu og að fara út í búð og kaupa plötu. Vissulega eru þessar tölur vonbrigði fyrir listamennina, kannski að undanskilinni Bríeti Sunnu sem getur unað vel við sitt. Ég bjóst til að mynda við miklu meira af Hildi Völu enda er þetta bráðgóð plata,“ segir Eiður og bætir við að það séu aðeins tvær plötur Idol-stjarna sem hafi selst vel, annars vegar fyrsta plata Hildar Völu og hins vegar fyrsta plata Jóns Sigurðssonar, sem oft er kenndur við fimm hundruð kallinn, en hún seldist í yfir 5000 eintökum. „Ég mæli með góðum kaffibolla í Kaffitári í Kringlunni. Ég get ekki byrjað daginn án þess að fá mér kaffi á þeim stað. Ef það klikkar ég er ómöguleg.“ Þórunn Högnadóttir sjónvarpskona „Ég mæli með kvikmyndinni Little Miss Sunshine. Þetta er alveg æðisleg grínmynd sem ég fór á í bíó og skemmti mér konunslega. Manneskjuleg mynd, flott skrifuð og leikin. Flott frá A-Ö.“ Valur Sævarsson söngvari Við mælum með Lay Low seldi meira en Idol-stjörnur til samans Snorri Snorrason Idol-kóngurinn 2006 náði ekki tvö þúsund platna markinu sem hljóta að teljast vonbrigði. Bríet Sunna Bauð upp á kantrítón- list og seldi 2500 eintök, mest af Idol-stjörnunum þremur sem gáfu út disk fyrir síðustu jól. BLS. 14 | sirkus | 12. JANÚAR 2007 Lay Low Aldrei unnuð Idol en seldi samt grimmt af plötum fyrir jólin. Hildur Vala Seldi fimm þúsund eintökum minna af nýjustu plötu sinni en þeirri fyrstu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.