Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 12.01.2007, Blaðsíða 72
 Nú þegar óðum styttist í HM í Þýskalandi fer handbolta- sál íslensku þjóðarinnar sístækk- andi. Fram undan er heimsmeist- arakeppnin í Þýskalandi, mekka handboltans í dag. Þar spila flestir bestu leikmenn heims og þar vilja flestir aðrir komast að. Einn þeirra sem hafa skapað sér nafn í bestu deildarkeppni heimsins er Alex- ander Petersson en hann gegnir einnig lykilhlutverki í íslenska landsliðinu. Alfreð Gíslason landsliðsþjálf- ari fór ekki í grafgötur með hrifn- ingu sína á frammistöðu Alex, eins og hann er kallaður, í æfingamót- inu í Danmörku um liðna helgi. „Vélmennið var á fullri keyrslu,“ sagði hann og vísaði þar með til óbilandi baráttuanda Alex og gíf- urlegrar þrautseigju. Mörgum er enn í fersku minni þegar hann kjálkabrotnaði snemma leiks gegn Rússlandi á EM í Sviss í janúar í fyrra. Hann kláraði leikinn og Ísland vann afar langþráðan sigur á rússneska birninum á stórmóti. „Ég man að ég fékk stóran mann á mig og næstu tíu sekúndurnar var ég mjög ringlaður og vissi ekki hvar ég var staddur. Eftir það gerði ég ekki mikið í sókn en tók áfram á mönnum í vörninni. Ég var minntur ítrekað á meiðslin þegar ég reyndi að halda mönnum af öllum kröftum og beit þar með á kjálkann eins og maður gerir,“ sagði Alex við Fréttablaðið í gær. „Það voru gríðarlega mikil von- brigði að hafa ekki náð að klára mótið. Ég reyndi að fá lækninn til að gera bara eitthvað til að koma mér í lag en hann sagði mér að ég þyrfti að fara í uppskurð strax.“ Ísland tapaði í kjölfarið fyrir Króatíu og Noregi, missti af sæti í undanúrslitum og lenti í sjöunda sæti mótsins. Tveimur mánuðum síðar var Alex aftur kominn á fullt en í haust hafa önnur meiðsli tekið sig upp. Hann sleit liðband í ökkla og hefur ekki jafnað sig að fullu. „Ég get kannski lítið æft en ég vonast til að spila alla leiki. Ég er 90% viss um að ég haldist góður í Þýskalandi.“ „Vélmennið“ er 26 ára gamall, á íslenska unnustu og ungan son. Hann spilaði fyrst fyrir Íslands hönd á HM í Túnis fyrir tveimur árum og er þetta því þriðja stór- mót hans sem er fram undan. Hann segir að sér hafi þótt skrýtið að koma inn í íslenska landsliðið, umkringdur „öllum þessum stjörnum“ eins og hann segir sjálfur og bætir við að hann hafi ætíð litið mikið upp til Ólafs Stefánssonar, núverandi fyrirliða. Eftir fimm ára veru hjá Gróttu/ KR var Alex búinn að vekja mikla athygli á sér og höfðu margir það á orði við hann að hann ætti að fá íslenskan ríkisborgararétt og spila með landsliðinu. Það yrði gott fyrir hans feril. „Já, af hverju ekki?“ sagði hann bara. „Í dag finn ég fyrir þjóðarstolti þegar ég stend í röð með landsliðinu og hlýði á þjóðsönginn. Ég hugsa um kærustuna og strákinn minn, horfi á fánann og veit að ég er heima. Ég geri mér grein fyrir því að mín tilfinning sé ekki endilega eins sterk og hjá hinum strákunum en nægilega sterk engu að síður.“ Fjölskylda hans í Lettlandi fylg- ist einnig vel með. „Þau hafa séð marga leiki með landsliðinu og styðja mig dyggilega og eru stolt af mér. Mér líður líka sjálfum vel í landsliðinu enda hefði ég aldrei getað náð eins langt með því lett- neska.“ Aðspurður segir hann að hann líti ekki lengur á landsliðsfélaga sína sem „stjörnur“. Þess þó síður líður honum sjálfum eins og stjörnu. „Ég var smeykur í upphafi en ekki lengur. Það eru allir á sama stalli í landsliðinu, hvort sem þeir eru reyndir eða ekki,“ sagði hann og segist ekki finna fyrir aukinni pressu vegna mikilvægi síns í liðinu. „Ég er ánægður með að spila stórt hlutverk í liðinu en mér finnst ég vera venjulegur leikmaður, eins og allir aðrir í liðinu. Ég er ekki ómissandi en eftir að við misstum Einar Hólm- geirsson í meiðsli er ljóst að ekki má bera meira út af. En það er bara Óli sem er algjörlega ómiss- andi.“ Alexander Petersson kom til Íslands í ævintýraleit átján ára gamall. Það var fyrir átta árum og í dag er hann einn lykilmanna íslenska landsliðsins í handbolta sem hefur leik á HM í Þýskalandi eftir rúma viku. 7 Fimm leikmenn voru valdir í Stjörnuleik KKÍ sem fer fram í DHL-höllinni á laugar- daginn. Þetta eru þeir Friðrik Stefánsson, Hlynur Bæringsson og Brenton Birmingham sem voru valdir í íslenska liðið og þeir Darrel Flake og Jovan Zdra- vevski sem voru valdir í erlenda liðið. Fjölmiðlar völdu byrjunar- liðin. Hjá íslenska liðinu byrja Magnús Þór Gunnarsson (Kefla- vík), Páll Axel Vilbergsson (Grindavík), Sigurður Þorvalds- son (Snæfell), Hörður Axel Vil- hjálmsson (Fjölnir) og Hregg- viður Magnússon (ÍR). Benedikt Guðmundsson þjálfar íslenska liðið og hann bætti við þeim Axel Kárasyni (Skallagrími), Pálma Frey Sigurgeirssyni (KR), Fann- ari Helgasyni (ÍR), Jóhanni Ólafssyni (Njarðvík), Pétri Má Sigurðssyni (Skallagrími), Brynjari Þór Björnssyni (KR) og Agli Jónassyni (Njarðvík). Hjá erlenda liðinu byrja Jeb Ivey (Njarðvík), Steven Thomas (Grindavík), Damon Bailey (Þór Þorlákshöfn), George Byrd (Hamri /Selfoss) og Nemanja Sovic (Fjölni). Einar Árni Jóhannsson þjálfar erlenda liðið og hann bætti við Lamar Karim (Tindastóli), Kevin Sowell (Þór Akureyri), Rob Hodgson (Þór Þorlákshöfn), Roni Leimu (Hauk- um), Justin Shouse (Snæfelli), Kareem Johnson (Fjölni) og Nate Brown (ÍR). Fimm leikmenn gefa ekki kost á sér Fer líklega ekki frá Öster úr þessu Danmörk vann Frakkland, 28-25, í fyrri æfingaleik þjóðanna fyrir HM í handbolta sem hefst í lok næstu viku. Frakkar eru með Íslandi í riðli en íslenska liðið gerði 28- 28 jafntefli á móti danska liðinu um síðustu helgi. Danir voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15-13 en staðan var 22-22 þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Dönsku markverðirnir Kasper Hvidt og Peter Henriksson vörðu vel í leiknum, Hvidt kom inn og varði tvö víti í röð í seinni hálfleik og Heniksen varði úr mörgum dauðafæri á lokasprettinum. Hinn íslensk ættaði Hans Lindberg var markahæstur Dana með 5 mörk en þeir Lars Christiansen og Lars Møller Madsen skoruðu báðir 4 mörk. Nicola Karabatic var markahæstur Frakka með 9 mörk. „Nú trúa örugglega allir að við verðum heimsmeistarar en við verðum að halda okkur á jörðinni. Að vinna evrópumeist- ara Frakka var kannski það versta sem gat gerst,“ sagði Ulrik Wilbek, þjálfari danska liðsins í léttum tón eftir leik. Danir unnu Frakka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.