Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 81
Knattspyrnumenn og
knattspyrnustjórar tjáðu sig í gær
um Jose Mourinho, stjóra Chelsea,
sem mun hugsanlega hætta með
Chelsea-liðið næsta sumar sam-
kvæmt breskum fjölmiðlum. Sir
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er
einn þeirra sem segist munu sakna
Mourinho ef hann hættir.
„Ég yrði vonsvikinn ef hann
hætti. Ég hef notið félagsskapar
hans þegar við höfum hist eftir
leiki. Hann er skemmtilegur og
það er gaman að keppa við hann,“
sagði Ferguson og Didier Drogba,
framherji Chelsea, tekur í svipað-
an streng.
„Það yrði mjög sársaukafullt að
missa hann. Það er ekki auðvelt að
missa góðan vin. Ég veit ekki
hvort það gerist en ef það er satt
þá er það leiðinlegt. Það verða
sögur áfram en vonandi verður
hann áfram,“ sagði Drogba. „José
er búinn að búa til ákveðna menn-
ingu hérna. Við elskum hvernig
hann þjálfar okkur.“
Það yrði eftirsjá
að José Mourinho
Fabio Capello, þjálfari
Real Madrid, gaf það út í gær að
David Beckham hefði leikið sinn
síðasta leik fyrir félagið.
„Beckham mun æfa með liðinu
en hann mun ekki spila. Hann
hefur alltaf verið fyrirmyndarat-
vinnumaður en það er ekki hægt
að stóla á mann sem er búinn að
gera risasamning við annað
félag,“ sagði Capello um hinn 31
árs gamla Beckham.
Þessi ummæli gætu breytt
miklu fyrir Beckham og nú er
jafnvel talað um að Beckham fari
fyrr til félagsins og hugsanlega
byrji hann að leika með liðinu í
apríl þegar keppni í MLS-
deildinni hefst.
Beckham spilar
ekki aftur
David Cobeno, mark-
vörður spænska liðsins Sevilla,
þurfti ekki bara að einbeita sér að
verja boltann í bikarleik gegn
Rayo Vallecano í vikunni því hann
varð sjálfur fyrir árásum æstra
áhorfenda. Um leið og leikurinn
hófst fór að rigna yfir hann
allkyns ávöxtum og matvörum.
Þegar Cobeno hætti að lítast á
blikuna leitaði hann aðstoðar
dómara leiksins. Dómarinn gat þó
lítið gert því sökudólgarnir voru
fyrir utan leikvöllinn.
„Ég hef aldrei upplifað annað
eins og er hneykslaður á þessum
móttökum. Það er örugglega
einhver búinn að tæma matarbúr-
ið sitt,“ sagði Cobeno í viðtali við
Marca en hluti af skýringunni á
þessari meðferð gæti verið sú að
hann lék áður með Rayo Valleca-
no. Leikurinn endaði með
markalausu jafntefli og sem
betur fer fyrir David Cobeno þá
er seinni leikurinn spilaður í
Sevilla.
Skotinn niður
Enska úrvalsdeildin
Besta körfuboltafólk
landsins hittist og gerði sér glaðan
dag í DHL-höllinni í gær þegar
Stjörnuleikur KKÍ fór fram í 19.
sinn. Erlendu leikmennirnir höfðu
betur gegn þeim íslensku þriðja
árið í röð en maður dagsins var
Þórsarinn Kevin Sowell sem var í
miklu stuði og sýndi frábær tilþrif
og magnaðar troðslur.
Þetta gerði hann bæði í leikn-
um sem og í sérstakri troðslusýn-
ingu í hálfleik. Sowell skoraði 27
stig í 142-120 sigri erlendu leik-
mannanna og var valinn maður
leiksins. Lamar Karim var með 18
stig og Nemanja Sovic hjá Fjölni
var með 15 stig fyrir erlenda liðið.
Hjá íslenska liðinu skoraði Kefl-
víkingurinn Magnús Þór Gunnars-
son mest, eða 21 stig, Hreggviður
Magnússon úr ÍR var með 19 stig
og Pétur Már Sigurðsson úr Skalla-
grími skoraði 18 stig.
Shell-liðið undir stjórn Jóns
Halldórs Eðvaldssonar vann
Stjörnuleik kvenna í DHL-höllinni
í dag. Shell-liðið vann 112-76 sigur
á Iceland Express-liði Ágústs
Björgvinssonar.
Ifeoma Okonkwo, leikmaður
Hauka og Shell-liðsins, var valinn
maður leiksins en hún skoraði 23
stig á móti liði þjálfara síns. Kefl-
víkingarnir Birna Valgarðsdóttir
og Kesha Watson, voru einnig
atkvæðamiklar hjá Shell-liðinu,
Birna með 19 stig og Watson með
17. Hjá Iceland Express-liðinu
skoraði Tamara Bowie 12 stig og
þær Latrece Bagley og Ingibjörg
Skúladóttir skoruðu 11 stig hvor.
Axel Kárason úr Skallagrími og
Hildur Sigurðardóttir úr Grinda-
vík unnu þriggja stiga keppnirnar
sem haldnar voru samhliða leikj-
unum. Axel fékk mestu samkeppn-
ina frá félaga sínum í Skalla-
grímsliðinu, Dimitar Karadzovski
og Hildur þurftu bráðabana til
þess að tryggja sér sigur í úrslit-
unum á móti Stellu Rún Kristjáns-
dóttur úr ÍS.
Sowell setti upp sýningu í DHL-höllinni
Topplið ensku úrvals-
deildarinnar unnu létta sigra í gær
og forskot Manchester United á
Chelsea er því áfram sex stig.
Liverpool og Arsenal unnu bæði
fína sigra og eru í 3. og 4. sæti
eftir að Bolton náði aðeins marka-
lausu jafntefli á móti Manchester
United í skelfilegum leik.
Manchester United var með
yfirburði frá byrjun gegn Aston
Villa og þeir Park Ji-sung og
Michael Carrick komu liðinu í 2-0
eftir 13 mínútur. Carrick lagði
síðan upp mark fyrir Cristiano
Ronaldo sem skoraði sitt þrett-
ánda mark á tímabilinu en Aston
Villa náði að minnka muninn í
seinni hálfleik. „Við vorum mjög
góðir í fyrri hálfleik, spiluðum
góðan fótbolta og nýttum okkur
yfirburðina. Nú er einn leikur enn
að baki og við erum í góðri stöðu,“
sagði Alex Ferguson, stjóri Unit-
ed, eftir leik.
Chelsea vann sinn fyrsta sigur í
fimm leikjum þegar liðið vann
Wigan 4-0. Frank Lampard kom
liðinu yfir með marki beint úr
aukspyrnu, Arjen Robben skoraði
annað markið og Chris Kirkland
sendi fyrirgjöf hans síðan í eigið
mark áður en Didier Drogba skor-
aði sitt 14. mark á tímabilinu í upp-
bótartíma.
„Þrjú jafntefli í röð er ekki
venjulegt fyrir okkar lið og við
pressuðum meira í dag,“ sagði
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
eftir leik en hann var sérstaklega
ánægður með Robben. „Þegar
menn sjá hvernig Robben spilaði
gegn Wigan fyrir mánuði og svo
aftur í dag sést vel hvað við sökn-
uðum hans um hátíðarnar,“ bætti
Portúgalinn við.
Liverpool rétti úr kútnum eftir
erfiða viku þar sem Arsenal sló
liðið með skömm út úr báðum bik-
arkeppnum. Liverpool vann 3-0
sigur á Watford en þetta var sjö-
undi sigur liðsins í átta síðustu
deildarleikjum. Craig Bellamy
kom liðinu yfir og Peter Crouch
gulltryggði sigurinn með mörkum
hvorum sínum megin við hálfleik-
inn. Rafael Benitez játti því að
hörð gagnrýni hafi haft áhrif. „Ég
var hissa á þessari hörðu gagnrýni
en við getum ekkert gert og verð-
um bara að halda áfram að vinna
okkar vinnu. Við þurftum að sýna
karakter og ég sá að mitt lið getur
vel stjórnað leik og skapað færi,“
sagði Benitez sem stillti í fyrsta
sinn upp þriggja manna framlínu
með þeim Crouch, Bellamy og
Dirk Kuyt.
Arsenal vann góðan 0-2 útisig-
ur á Blackburn, Thierry Henry
lagði upp skallamark fyrir Kolo
Toure og skoraði síðan sjálfur
seinna markið. Henry er búinn að
skora í þremur leikjum í röð. Ars-
enal missti Gilberto Silva út af
með rautt spjald strax á 13. mín-
útu og spilaði því manni færri í 77
mínútur.
West Ham missti af tveimur
stigum þegar Philippe Christanval
tryggði Fulham 3-3 jafntefli með
marki í uppbótartíma. Eggert
Magnússon var örugglega orðinn
vongóður um sigur því Yossi
Benayoun kom liðinu tvisvar yfir.
Bobby Zamora var síðan rekinn
útaf áður en Christanval tók stigin
af svekktum leikmönnum West
Ham.
Hermann Hreiðarsson og félag-
ar í Charlton komust yfir gegn
Middlesbrough en mistök okkar
manns kostaði liðið forustuna og
undir lokin tryggðu Boro-menn
sér 3-1 sigur. „Við verðum að spila
af fullum krafti ef við ætlum að
vinna og mér fannst við gera það
fyrstu 62 mínútur leiksins,“ sagði
Alan Pardew, stjóri Charlton.
Manchester United heldur áfram sex stiga forskoti á Chelsea á toppnum. Liver-
pool og Arsenal unnu bæði góða sigra en West Ham missti af sigri í blálokin.
Juventus tapaði í gær
sínum fyrsta leik í ítölsku B-
deildinni þegar liðið tapaði 0-1
fyrir Mantova í toppslag deildar-
innar. Sigurmarkið var sjálfs-
mark Robert Kovac eftir sjö
mínútna leik í seinni hálfleik.
Þetta var fyrsta deildartap
Juventus í 45 leikjum eða síðan
29. október 2005 þegar liðið lá
gegn AC Milan.
Með tapinu féll Juventus niður í
6. sæti, stigi á eftir Mantova og
þremur stigum á eftir Napoli sem
situr á toppnum. Juventus byrjaði
tímabilið með 9 stig í mínus
vegna hneykslismálsins sem
einnig sá til þess að liðið féll úr A-
deildinni.
Fyrsta tapið hjá
Juventus