Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 86
Illgjarnt fólk í sam-
félaginu hefur að
undanförnu lýst
yfir áhugaleysi á
handbolta. Ég
ætla ekki að
reyna að setja
mig inn í hugar-
heim þessa fólks
heldur benda því á að það hefur
rangt fyrir sér. Handbolti er afar
mikilvægur fyrir sjálfsvitund þjóð-
arinnar vegna þess að þetta er
íþrótt sem Íslendingar geta eitt-
hvað í. Þetta gefur okkur einnig
tækifæri til að rifja upp rótgróna
beiskju okkar í garð Dana. Sumir
kalla þá frændur okkar en þeir eru
svo sannarlega ekki frændur
mínir.
Mikið óskaplega hélt ég með
Póllandi í viðureign þeirra við
Dani. Samskipti mín við Pólverja
hafa ætíð verið með eindæmum
góð og í huga mínum geymi ég
margar skemmtilegar minningar
frá því ég starfaði sem unglingur í
verksmiðju. Oft reyndi færibanda-
vinnan á en pólskur félagi minn
bjargaði mér ávallt frá leiðindum
með ábendingum á skemmtileg rit-
verk eftir samlanda sína og heim-
spekilegum umræðum um verk-
smiðjustarfið. „Enginn getur orðið
rithöfundur án þess að hafa starfað
í verksmiðju,“ var ein af þeim stað-
hæfingum sem frá honum komu.
Reyndar er hún fengin úr einu af
verkum tékkneska rithöfundarins
Milans Kundera, en hann hefur
einmitt lýst þeirri brjálsemi sem
getur gripið fólk sem starfar í
ærandi vélarnið sem verksmiðju-
stjórar blanda popptónlist við í
gegnum hátalara í hverju skoti.
Viðræður við skemmtilega Pól-
verja björguðu mér þó frá ævar-
andi brjálsemi. Pólverjar eru mun
skyldari okkur en Danir enda stór
hluti Íslendinga orðinn ættaður frá
Póllandi. Því lít ég á Pólverja sem
frændur okkar og hvet alla til að
styðja þá til dáða í handboltanum
og gleyma öllum frændskap við
Dani með því að minnast einokun-
arverslunarinnar, maðkaðs mjöls,
skyldunámi í dönsku, úrslitunum
14-2 í fótbolta, níðskrifum um
íslenskt viðskiptafólk og gegnum
handboltann. Áfram Pólland!
Mike Tyson keppir
við áhugamenn í
hnefaleikum nú á
þessum síðustu og
verstu tímum.
Ég skal rústa
honum, ekkert
mál!
Ekki drepa
hann Mike,
rólegur,
rólegur
Mike
Þú ert næstur
Jokke
Ég held að
ég hafi týnt
hreðjunum á
mér.
Ertu að ná
þessu?
Nei ég næ ekki að laga
þetta án þess að við
höfum .....
Loftnet! Þetta er snilld, við
náum örugglega
útvarpi frá allri
Evrópu með þessu!
Takk
Nóri
Ekki
minnast á
það
Aldrei
Áttu
Eld?
Fortíð
Mjá, mjá!!!!
Nútíð Framtíð
Mjá, mjá!!!
Egg Egg
mjólk
kjúkling
Djús
Kæfa
Er þetta allt?
Ég og Hannes
komum með
þér út að versla
Já, við
komum
með
Djús
Kæfa
Þolinmæði!