Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 32
Hvað færðu þegar þú blandar
saman framenda og framfjöðr-
un úr Skoda Fabia, afturfjöðr-
un úr gömlum Skoda Octavia,
stýrisbúnaði úr nýjum Oct-
avia, sendibíl og hálf klaufa-
legu nafni? Svarið er Skoda
Roomster.
Skoda Roomster er forvitnileg
blanda af því sem gamalt og þaul-
reynt er, og nýrri hugsun. Bíllinn
fylgir í fótspor Citroën Berlingo,
Renault Kangoo og Fiat Doblo
sem allir líta út eins og sendibílar
sem búið er að setja í slípirokk og
bæta gluggum og sætum aftur í.
Roomster ber það utan á sér og
mun seint teljast fallegur. Hann
hefur hins vegar það sem marga
aðra bíla skortir. Karakter sem
sker hann frá öllum öðrum í
blautu skammdeginu.
Hjólin á Roomster eru mjög
framarlega og aftarlega á bílnum
og gefur það meira pláss innan í
bílnum og minnkar sendibílaútlit-
ið. Afturgluggarnir ná bæði ofar
og neðar en framglugginn og brýt-
ur það útlitið upp enn frekar.
Hurðaopnarar afturhurða eru á
hurðarkarminum í stað hinnar
klassísku staðsetningar á miðri
hurðinni. Þetta er skemmtilegt í
útliti en að sama skapi ekki jafn
praktískt og hin hefðbundna stað-
setning.
Roomster er mjög rúmgóður
og höfuðpláss er með því mesta
sem gerist. Annað væri hálf
slappt miðað við nafngiftina.
Fjórir fullvaxta, og þá meina ég
fullvaxta en ekki 18 ára ungl-
ingsstúlkur, komast auðveldlega
fyrir í bílnum en illa færi um
þann fimmta í miðjunni. Nóg er
af fótaplássi aftur í jafnvel fyrir
menn eins og Sigfús Sigurðsson.
Mælaborðið er einkar aðlað-
andi og er ljóst að Tékkar kunna
sitthvað fyrir sér í hönnun. Inn-
viðir bílsins virka vandaðir og
traustir þrátt fyrir að þeir hlutir
í bílnum sem eru úr plasti (sem
er nær allur hluti mælaborðsins)
sé ekki úr dýrasta hráefni sem
völ er á.
Bíllinn sem var prufukeyrður
var með 1,4 lítra dísilvél. Að
segja að bíllinn sé hljóðlátur
væri lygi, og að segja hann
háværan væri of vægt til orða
tekið. Ekki er hægt að eiga sam-
tal á meðan bíllinn er á ferð nema
slökkva á útvarpinu og brýna
raustina. Vélin skilaði ágætis afli
þótt hún væri ekki sú snarpasta,
eins og gengur og gerist með dís-
ilvélar.
Hvað varðar aksturseigin-
leika kemur bíllinn skemmtilega
á óvart. Hann er lipur og lætur
vel að stjórn og hentar vel innan
borgarmarkanna.
Helsti kostur Roomster verð-
ur að teljast öryggisbúnaður
hans en bíllinn hlaut 5 stjörnur,
fullt hús, í EuroNCAP árekstrar-
prófinu. Bíllinn er búinn meðal
annars loftpúðagardínu auk hlið-
arpúða og hefðbundinna púða.
Skoda Roomster er í raun
fyrsti bíllinn sem er hannaður út
frá nýrri hugmynd eftir að Volks-
wagen kom fyrirtækinu aftur á
kortið. Eins og flestar frumraun-
ir lofar hann góðu en ýmislegt
þarf að laga.
Frumraun sem lofar góðu
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Enginn veit hvað gæði eru fyrr en
reynt hefur Omega smurefnin !
Hamraberg ehf
Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
S: 5667450
e-mail: magnusmv@simnet.is
Höfum til afhendingar strax
Bílexport ehf.
www.bilexport.dk • boas@bilexport.dk
Upplýsingar gefur Bóas Eðvaldsson s. 0049 1752711783
Scania R500 EURO 3
Man 18.430 Flas EURO 3
Mercedes Benz 2660 EURO 5