Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 36
Fjallaskíðamennska er óðum
að ryðja sér til rúms á Íslandi
þar sem bæði eru farnar
skemmtiferðir á hálendinu
ásamt því að keppnir eru
haldnar reglulega. Í vetur
standa íslenskir fjallaleiðsögu-
menn fyrir námskeiðum þar
sem allir geta lært tæknina
og kynnt sér almenna fjalla-
mennsku.
„Íslendingar hafa virkilega tekið
við sér og uppgötvað fjalla- og tele-
markskíði. Fjallaskíðin eru þó mun
vinsælli og við förum í mjög marg-
ar ferðir á hálendið, bæði með
Íslendinga og erlenda gesti,“ segir
Friðjón Þórleifsson fjallaleiðsögu-
maður.
Hann skipuleggur skíðaferðir á
hálendinu á vegum Íslenskra
fjallaleiðsögumanna ásamt því að
vera skíðakennari í Kanada mest-
an part vetrar.
Víða um Evrópu hafa fjallaskíð-
in verið stunduð í áraraðir en á
Íslandi hófst þessi hefð með fjalla-
fólki sem notuðu skíðin til að kom-
ast ferða sinna á hálendinu. „Skíða-
menn hafa uppgötvað fjallaskíðin
og möguleikana á hálendinu en
einnig almenningur sem vill gott
færi og skemmtilega upplifun,“
segir Friðjón. Víða um Evrópu er
einnig keppt í íþróttinni en nýlega
kom þó í ljós að ekki verður keppt
í henni á vetrarólympíuleikunum
árið 2014 en miklar vonir bundnar
við þá næstu, árið 2018.
Skíðin líkjast gönguskíðum að
því leyti að skórinn er laus í bind-
ingunni á meðan gengið er yfir
flatlendi eða upp brekkur.
Undir skíðinu er síðan skinn
með miklu gripi. Upphaflega var
selskinn notað undir skíðin en nú
er hins vegar notað gerviefni sem
gerir sama gagn. Skórinn er festur
í bindinguna og skinnið tekið
undan skíðunum þegar þeyst er af
stað niður brekkur. Skórnir eru í
líkingu við svigskíðaklossa en þó
léttari og mýkri.
Næsta námskeið í fjallaskíða-
mennsku fer fram á vegum
Íslenskra fjallaleiðsögumanna 7.
og 10.mars og þurfa þátttakendur
ekki að búa yfir neinni fjalla-
reynslu, aðeins að geta skíðað.
„Markmiðið með námskeiðinu er
að kynna fjallaskíðamennsku fyrir
fólk svo það geti ferðast af öryggi
og kunnáttu um fjalllendi og rennt
sér utan brauta. Einnig er farið
lauslega í möguleika á viðeigandi
búnaði svo sem fjallaskíðum,
fjallaskíðabindingum og fjalla-
skíðaskóm,“ segir Friðjón
Íslenskir fjallaleiðsögumenn
bjóða árlega upp á fjallaskíðaferð-
ir bæði á Íslandi og erlendis, auk
fjallamennsku og snjóflóðanám-
skeiðs fyrir skíðamenn á hverjum
vetri. Allar nánari upplýsingar er
að finna: www.mountainguide.is/is
Á fjallaskíðum um
hálendi Íslands
Golfferðir til Túnis hafa áunnið sér fastan sess í vitund íslenskra
golfara, því auk góðra golfvalla og þægilegs loftslags við Miðjarðar-
hafsströndina, býður Túnis upp á margbrotna sögu og menningu.
Túnis er höfuðborg Túnis sem stendur við Túnisflóa. Á 12. – 16. öld
var Túnis talin ein merkasta og ríkasta borg í hinum íslamska heimi.
Margar merkar minjar er að finna í Túnis frá fyrri öldum og má þar
nefna rústir Karþagó og Medínan, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Að þessu sinni bjóðum við tvær 11 daga golfferðir til Túnis, þar sem
ekkert er til sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.
Gist er 5 nætur í Port El Kantoui við borgina Sousse og 5 nætur í
Hammamet á 4* hótelum. Leikið verður á golfvöllum eins og Les
Oliviers og La Forêt à Citrus, sem eru meðal eftirsóttra golfvalla á Citrus.
Fararstjóri: Sigurður Pétursson golfkennari
Verð: 171.000 kr.
23. mars - 2. apríl
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
TúnisGolf í
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Fljótasiglingar - Klettaklifur
Hestasýningar - Gönguferðir - Gisting
Veitingar - Ratleikir - Hestaleiga
Hafið samband og við gerum tilboð
Verið velkomin! bakkaflot@islandia.is
Sími 453-8245 & 899-8245 • Ferðaþjónustan Bakkaflöt
560 Varmahlíð, Skagafirði – www.bakkaflot.is
Skólahópar!