Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 104
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Leikurinn við Dani á þriðjudag-inn var líklega sá mest spenn-
andi íþróttaviðburður sem ég hef
upplifað. Landsliðið á hrós skilið
fyrir að bjóða upp á slíka skemmt-
un sem fékk dagfarsprúða og ákaf-
lega yfirvegaða menn eins og mig
− ég segi það satt − til þess að hoppa
um öskrandi og æpandi fyrir fram-
an sjónvarpið með öðru fólki á fer-
tugsaldri. Ég skalf eftir venjuleg-
an leiktíma, sem er fáheyrt. Ég
skelf aldrei. Eða þannig.
svo kom skotið í stöngina undir
lok framlengingarinnar og skyndi-
lega varð allt svart. Vonin úti.
Tómið eitt. Ekki var við skyttuna
að sakast, enda færið upplagt, en
það breytti ekki því að boltinn fór í
stöngina og út. Danir unnu. Það
vantaði bara að danskar kaup-
mannaafturgöngur létu rigna yfir
landsmenn möðkuðu méli úr him-
inhvolfunum.
nokkrum spörkum í hjól-
barða bílsins míns áður en ég
keyrði heim á leið, blótsyrðum
fyrir framan stýrið, bloggfærslu í
hástöfum og klukkustundar djöful-
gangi á hlaupabretti, náði ég smám
saman að jafna mig. Geðshræring-
in lak úr líkamanum og allt í einu
birtist mér eins og kristaltært fyrir
hugskotssjónum nýtt hugtak, nýr
frasi, sem gæti haft ótvírætt nota-
gildi í almennri umræðu, í daglegu
amstri og jafnvel pólitískum rök-
ræðum. Þetta var hugtakið „stöng-
in út“.
allnokkurt skeið hefur orða-
sambandinu „stöngin inn“ verið
beitt af fólki á öllum aldri, og þá í
samhengi við eitthvað sem þykir
heppnast mjög vel. Um sérlega
góðar hugmyndir er til dæmis
algengt að nota þetta orðasamband
þegar eitthvað mjög gott hefur átt
sér stað. „Það var frábært hjá Lalla
þegar hann svaraði Dóru,“ gæti
einhver sagt í kaffihléi á annars
leiðinlegum aðalfundi. „Já, stöngin
inn,“ myndi viðmælandi hans þá
svara.
út, hins vegar, má nota
um ákaflega margt líka. Mér finnst
nýja fréttastefið fyrir RÚV – þótt
það sé ágætlega samið -- til dæmis
vera stöngin út. Gamla fréttastefið
hans Atla Heimis var orðið hluti af
sjálfsmyndinni, því að vera Íslend-
ingur. Þegar ég heyri ekki lengur
það ómþýða stef í upphafi frétta
verð ég áttavilltur. Ég fyllist dep-
urð. Tómi. Tengslin við söguna
hverfa, svo ég keyri upp dramatík-
ina. Að halda ekki í svona fyrir-
brigði sem eiga djúpar rætur í
þjóðarsálinni og yljar flestum um
hjartarætur er stöngin út.
finnst líka lagning 10 þúsund
bíla akbrautar í gegnum Álafoss-
kvos vera stöngin út. Því má halda
fram að þarna sé vagga iðnbylting-
arinnar á Íslandi, þarna er lands-
svæði á náttúruminjaskrá, vinsæll
viðkomustaður ferðamanna, stúdíó
Sigur Rósar og vinnustofur lista-
manna. Þetta er hjarta Mosfells-
bæjar. Þessu einstaka andrúms-
lofti og náttúru ætlar bæjarstjórnin
í Mosfellsbæ að fórna. Breytir þá
engu að fulltrúar grænna sitja í
meirihlutanum. Hér gagnast hug-
tökin mjög vel: Mótmæli bæjarbúa
eru stöngin inn. Skurðgröfur bæj-
arstjórnarinnar á þessum kyrrláta
og sögufræga stað eru stöngin út.
Stöngin út
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
.2
00
7
www.IKEA.is
Opið virka daga
Opið laugardaga
Opið sunnudaga
10.00 - 20.00
10.00 - 18.00
12.00 - 18.00
Morgunmatur
195,-
IKEA Restaurant & CaféIKEA Restaurant & Café
með graslaukssósu, kúskús
og grænmeti
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
Veitingastaður opnaður klukkutíma fyrr en verslun
KOMPLEMENT skartgripaskrín
L50xB58xH20 cm 4.990,-
SKUBB geymslukassi L45xB56xH20 695,-
SKUBB geymslukassi L95xB46xH15 1.290,-
KOMPLEMENT rekki
m/10 snögum B56xH6 cm 795,-
BRALLIS herðatré
B36xH36 cm 395,-
HEMLIS herðatré
5 stk. ýmsir litir 95,-
KOMPLEMENT skúffa m/skilrúmi
L43xB57x6 cm 2.790,-
SKUBB skúffur 2 stk.
L14xB34xH11 cm 495,-
KOMPLEMENT kassar 6 stk.
14x14/28x14/28x28 cm 990,-
KOMPLEMENT
hálsbindarekki
L25xB18 cm 895,-
MALM kommóða m/3 skúffum
L80xB48xH78 cm ýmsar tegundir 8.950,-
1.890,-
LINNAN skóhirsla L35xB39xH50 cm
... í svefnherberginu
KOMPLEMENT kassar 3 stk.
L30xB35xH32,5 cm 1.990,-
KOMPLEMENT buxnahengi
L96xB54xH3 cm 2.290,-
ANEBODA fataskápur
L81xB50xH180 cm 8.950,-
290,-
Grænmetisbuff
Skpiulag