Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 46
{ Kópavogur } 6
„Í Snyrti-Akademíunni, sem staðsett
er í Hjallabrekku 1 í Kópavogi, er
að finna þrjá skóla í glæsilegu hús-
næði. Þeir eru allir á sviði fegrun-
ar; þar er naglaskóli, Professionails
förðunarskóli og snyrtiskóli,“ segir
Kristín Stefánsdóttir hjá Snyrti-
Akademíunni. Skólinn býður upp
á ýmsa möguleika fyrir fólk sem
stefnir á að vinna á sviði fegrunar.
„Naglaskólinn stendur yfir í sex
til tólf mánuði og þar geta konur
lært naglaásetningu og fer kennsla
fram tvisvar í viku. Förðunarskólinn
er hins vegar fjórum sinnum í viku
og stendur í þrjá mánuði en þar
útskrifast nemendur sem förðunar-
fræðingar. Svo er það snyrtiskólinn
sem er nám í heilt ár og útskrifar
snyrtifræðinema. Eftir það tekur
síðan við tíu mánaða starfsþjálfun á
snyrtistofu. Þetta eru því þrjár ólík-
ar námsbrautir,“ segir Kristín.
„Þetta er mikið kvennaríki hjá
okkur en gaman að segja frá því að
í nóvember var fyrsti karlmaðurinn
að byrja hjá okkur í Snyrtiskólan-
um. Það er mikil framtíð í þessu og
vonandi eiga fleiri karlar eftir að
koma í þetta nám. Þetta er óskap- lega gefandi og skemmtilegt nám
og markaðurinn í þessum geira er
stór. Fólk er í æ ríkari mæli farið að
dekra við sig,“ segir Kristín.
Nemendur skólans fá mikla
starfsþjálfun á námstímanum og
koma með módel sem þeir æfa sig
á í hverri viku. Fjölskyldumeðlim-
ir og vinir njóta góðs af og það er
aldrei skortur á módelum. „Hins
vegar erum við með opna stofutíma
á mánudögum í Snyrtiskólanum og
þá geta konur pantað tíma og feng-
ið þjónustu á vægu verði. Það eru
góðar æfingar fyrir nemendur sem
undirbúa sig svona undir það að
vinna á snyrtistofu,“ segir Kristín.
Á síðasta ári gerði Snyrti-Aka-
demían stóran samning við Stein-
er Ltd, breskt fyrirtæki sem rekur
snyrtistofur og spa á skemmtiferða-
skipum um allan heim. „Með þess-
um samningi gefst okkar nemend-
um kostur á að taka út starfsþjálfun
sína um borð í skemmtiferðaskipum
ef þeir standast ákveðin próf. Það
er náttúrulega ævintýri líkast, fá
að skoða heiminn meðan þeir eru
í starfsþjálfun og njóta lífsins á
góðum launum. Þetta býður upp á
mikla möguleika,“ segir Kristín.
Í mars næstkomandi verður
boðið upp á Cidesco-próf í fyrsta
sinn í Snyrtiskólanum en það er
alþjóðlegt próf snyrtifræðinga
og Snyrtiskólinn er eini skólinn á
Íslandi sem býður upp á þann val-
kost. Skólinn reynir einnig að láta
gott af sér leiða og fyrir stuttu stóð
hann fyrir fjáröflun til styrktar upp-
byggingu skólahúsnæðis fyrir Little
Bees, skóla sem er í einu af mörgum
fátækrahverfum sem eru í nágrenni
Naíróbí í Kenía. - egm
Þrír fegrunarskólar und-
ir einu og sama þakinu
Nemendur frá Snyrti-Akademíunni eiga möguleika á því að stunda starfsþjálfun sína
um borð í skemmtiferðaskipum um allan heim. Akademían er í raun þrír mismunandi
fegrunarskólar undir einu þaki.
Digranesskóli fékk merkilega gjöf
frá verktakafyrirtækinu Klæðningu
ehf. ekki alls fyrir löngu. Um er að
ræða góðan stjörnukíki sem á eftir
að nýtast vel, bæði hvað varð-
ar kennslu og einnig í félagsstarfi
skólans. Þórður Guðmundsson,
stærðfræðikennari í Digranesskóla,
segir mikla ánægju ríkja með kík-
inn í skólanum.
„Þegar þessi merkilega hala-
stjarna var hérna um daginn sást
hún vel á austurhimninum einn
morguninn. Nemendur og kennarar
voru fullir áhuga á að skoða fyrir-
bærið. Út frá því spruttu síðan upp
umræður um það á kennarastofunni
að það væri gaman að eiga svona
stjörnukíki sem hægt væri að nota
í svona tilfellum. Skólinn hefur þó
enga fjármuni til að kaupa svona
græju svo það kom upp sú hug-
mynd að fá eitthvert fyrirtæki til að
gefa okkur hana,“ segir Þórður sem
var ekkert að tvínóna við hlutina.
„Ég hringdi bara í það fyrirtæki
sem kom fyrst upp í hugann og
það var Klæðning. Maðurinn sem
ég talaði við þar sagði að það væri
stjórnarfundur hjá þeim eftir hálf-
tíma og þar yrði þetta mál skoðað.
Svo var bara hringt strax í mig og
svarið var jákvætt,“ segir Þórður en
hann telur þetta sýna að atvinnulíf-
ið í landinu getur vel stutt við bakið
á góðu skólastarfi.
„Þetta virðist mjög góður kíkir
og hann hefur þann kost að þægi-
legt er að ferðast með hann. Hann
er á þrífæti og hægt að setja hann
upp nánast hvar sem er. Þetta býður
upp á alveg nýja möguleika bæði í
námi og félagsstarfi skólans. Ef það
eru skálaferðir eða þannig þá er
hægt að taka kíkinn með og fara í
stjörnuskoðun. Svo eru hugmyndir
um að bjóða upp á námskeið sem er
líka fyrir foreldra um stjörnuhimin-
inn svo dæmi sé tekið.“
Skiljanlega þurfa þó aðstæður
að vera réttar til að hægt sé að nota
þennan stjörnukíki. „Maður þarf að
fara upp í Heiðmörk eða einhvern
stað þar sem er dimmt. Það fylgdi
samt með honum sérstakur filter til
að skoða sólina og það er hægt að
gera það bara hér úti á plani yfir
daginn. Það er því hægt að nýta
þessa gjöf til margs og gaman að
sjá fyrirtæki úr atvinnulífinu styrkja
skólastarf með þessum hætti,“ segir
stærðfræðikennarinn Þórður Guð-
mundsson.
- egm
Nytsamleg gjöf
Digranesskóli fékk stjörnukíki að gjöf fyrir skömmu en
mikil ánægja ríkir með þennan kíki innan skólans.
Opið: Mánud.-Föstudag 06:00 - 18:00
Laug. 06:00 - 17:00 Sunn. 07:00 - 17:00
Opið: Mánud.-Föstudag 08:00 - 18:00
Laug. 08:00 - 16:00 Sunn. 09:00 - 16:00