Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 90
Galleríið Suðsuðvestur á Hafnar-
götu 22 í gömlu Keflavíkinni held-
ur uppi kraftmikilli starfsemi þar
suður frá þótt húsnæðið sé lítið. Á
laugardag, kl. 16, opna listamenn-
irnir Hye Joung Park og Karl
Ómarsson sýningu þar, sem síðar
verður opin á föstudögum milli kl.
16 og 18 og á laugardögum og
sunnudögum milli kl. 14 og 17.30.
Verður sýningin uppi í þrjár vikur.
Hye og Karl hafa unnið saman
áður en vegna ólíkrar nálgunar
þeirra hefur þeim tilraunum verið
líkt við samvinnu snigilsins og
býflugunnar. Í þetta sinn áttu hug-
leiðingar þeirra stefnumót á fyrir-
fram ákveðnum stað, sem hefur
sett mark sitt á verkin og þau hafa
fléttast saman í eina innsetningu. Í
Suðsuðvestur hafa þau dregið fram
óræð mörk þar sem sýningargestir
eiga þess kost að skima eftir snert-
ingu verka sem teygja sig og vaxa.
Um verk þeirra segir í sýningar-
skrá: „Yfirráðasvæði áhorfandans
er truflað með sterkri nærveru.
Markvisst er unnið með tungumál
myndarinnar og uppfærslan er
rækilega ígrunduð. Vinna tveggja
listamanna er framlengd og renn-
ur saman í eitt. Rýmið teygir sig
yfir í kynlausan líkama. Öryggis-
leysi grípur hvern sem gefur sér
tíma til þess að mæta sterkri fram-
setningu og hamskiptum miðlunar.
Endurtekinn og vélrænn andar-
dráttur kallar fram ósjálfráð við-
brögð og móttækilegur sýningar-
gestur gæti því hæglega gengið
inn í ástandið líkt og í leiðslu. Til-
finning fyrir æðaslætti og þreng-
ingu í hálsi eykst. Hægt og rólega
skýrast þó línurnar og maður nær
tökum á kringumstæðum á ný.“
Býfluga og snigill
Nemendaópera Söngskólans frum-
sýnir bráðskemmtilega óperettu í
þremur þáttum á laugardag í Iðnó,
sem sett er saman sérstaklega
fyrir krakkana í skólanum og
skartar nokkrum þekktum og
minna þekktum sönglögum úr
hinni skrúðmiklu og fyrrum vin-
sælu óperettuhefð austurríska
keisaradæmisins.
Verkið er kallað Algjör draum-
ur og þar verða sungin sönglög
eftir meistara á borð við Johan
Strauß, Carl Millöcker, Rudolf
Kattnig, Franz Lehár, Jacques Off-
enbach, Emmerich Kálmán og
Robert Stolz, en allir voru þeir
vinsælir lagahöfundar á gullaldar-
tíma óperettunnar. Raunar átti
hinn síðastnefndi og sá yngsti
þeirra glæsilegan feril í Holly-
wood sem höfundur kvikmynda-
tónlistar, þá kominn á efri ár.
Samdi hann meðal annars tónlist-
ina fyrir Þriðja manninn fyrir
Carol Reed.
Í sýningunni koma fram 22 af
nemendum óperudeildar Söngs-
kólans í Reykjavík í söng-, dans-
og leikhlutverkum. Sýningunni
stýra þau Sibylle Köll, sem gerði
garð Söngskólans frægan með
uppsetningu sinni á Töfraflautu
Mozarts í fyrravetur, og Anton
Steingruber, austurrískur söngv-
ari og leikstjóri. Það var hann sem
setti saman efnisþráð og bjó til
verkið fyrir Söngskólann í Reykja-
vík og nýtti sér lög úr sjóðum
óperettubókmenntanna. Það er
Janet Haney sem leikur undir.
Efnisþráðurinn ber þess merki:
Fallegar ólofaðar systur hitta
fræga bræður, sem auk þess að
vera sætir eru tenórar! Þessi
hópur ungra söngradda er ólofað-
ur og því koma við sögu metnaðar-
fullar mæður, mátulega auðtrúa
feður, glæsilegar þjónustustúlkur,
garðyrkjumenn, dansmeyjar,
þjónar, sendiboðar, barónar, sendi-
herrar og fleira fólk af fínu standi.
Allir eltast við alla og allt endar
vel með trúlofunum, brúðkaupum
og enginn verður súr í þeim
ranni.
Sýningar verða í Iðnó á sunnu-
dag og mánudag en uppselt er á
frumsýninguna í kvöld.
Ný óperetta Söngskólans
Norðanstúlkan er komin í bæinn
og hefur stillt verkunum sínum
upp á fyrstu hæðinni í Ingólfs-
stræti 8. Þar er gallerí eina ferð-
ina enn. Þar hóf Edda Jónsdóttir
rekstur á gallerí i8 fyrir aldar-
fjórðungi í kjallaranum og hefur
síðan kennt gallerí sitt við húsið
en nú er þar gallerí á fyrstu hæð-
inni í rúmgóðum framstofum
fyrir stórum gluggum. Þangað er
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
mætt með trémyndir sínar og er
það fyrsta einkasýning hennar í
borginni síðan 2003 en þá sýndi
hún á Mokka kaffi og í Galleríi
Sævars Karls auk þess að flytja
eftirminnilegan gjörning á tjörn-
inni.
Þessar sýningar voru úr sýn-
ingaröðinni 40 sýningar á 40
dögum. „Mér finnst gaman að
eiga afmæli og hélt veglega upp á
það fertugasta með 40 sýningum
víða um heim.“ Ein opnun á dag í
40 daga, allt ólíkar sýningar sem
á einn eða annan hátt tengdust
daglegu lífi viðkomandi staðar.
Nú er listakonan eldri en lætur
ekki deigan síga í endurnýtingu
eldra hráefnis sem hún slær
saman í litrík og björt mynd-
verk.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
stundaði nám við Myndlistaskól-
ann á Akureyri 1989-93 og hefur
síðan unnið ýmis störf á sviði
myndlistar ásamt því að vera
athafnasamur myndlistarmaður.
Árið 2000 hóf Aðalheiður þátt-
töku í Dieter Roth akademíunni
og mun halda þeirri samvinnu
áfram.
Aðalheiður segir um verkin
sín: „Frá upphafi ferils míns hef
ég leitast við að endurgera eftir-
minnileg augnablik úr eigin lífi,
persónur eða bæjarbrag. Sett upp
mynd af samfélagi manna og
dýra í tilraun til að minna okkur á
hvaðan við komum og hver við
erum. Eins konar brú milli veru-
leika og ímyndunar í samfélagi
sem er of upptekið til að staldra
við og njóta.“
Sýning Aðalheiðar stendur til
17. febrúar. Anima gallerí er opið
þriðjudaga til laugardaga milli 13
og 17.
Aðalheiður sýnir í Anima
Íslenska óperan og Línuhönnun
hafa endurnýjað samstarfssamn-
ing sín á milli. Línuhönnun hefur
verið eitt af af traustustu sam-
starfsfyrirtækjum Íslensku óper-
unnar um árabil og lagt fram til-
tekna fjárupphæð til stuðnings
starfseminni. Íslenska óperan er
sjálfseignarstofnun og gert er ráð
fyrir að hluti tekna hennar komi
frá samstarfi við önnur fyrirtæki
atvinnulífsins. Bjarni Daníelsson
óperustjóri segir samstarf Íslensku
óperunnar við atvinnulífið mikil-
vægan þátt í rekstri Óperunnar.
„Það er Íslensku óperunni mikil-
vægt að eiga trausta samstarfsað-
ila á borð við Línuhönnun til að
leggja henni lið og stuðla að óperu-
starfsemi á heimsmælikvarða á
Íslandi,“ segir Bjarni. Samstarfs-
samningur Óperunnar og Línu-
hönnunar gildir til eins árs.
Línuhönnun
styrkir óperuHin mjög svo rómaða sýning Bene-dikts Erlingssonar Mr. Skalla-
grímsson verður tekin til sýninga
að nýju í Landnámssetri 3. mars
nk. Sýningin um Mr. Skallagríms-
son var frumsýnd á Sögulofti Land-
námsseturs við opnun set-
ursins 13. maí sl. og sló
algerlega í gegn. Luku
gagnrýnendur einróma
lofsorði á sýninguna.
Mr. Skallagrímsson
er einleikur sem
saminn er og
fluttur af Bene-
dikt Erlings-
syni. Sýning-
um lauk
fyrir fullu
húsi í lok
október
þar sem Benedikt þurfti að hverfa
til annarra starfa. Vegna mikillar
eftirspurnar snýr Benedikt fyrr til
leiks.
Sýningum á Mýramanninum
eftir Gísla Einarsson og Svona eru
menn með þeim KK og Einari
Kárasyni er haldið áfram. KK er
að hljóðrita í Kína, Einar á fyrir-
lestrarferðalagi um Þýskaland og
Gísli Einarsson upptekin við
veislustjórn um helgar svo sýn-
ingar takmarkast nokkuð.
Frekari upplýsingar um
sýningahald er að finna á
á www.landnamssetur.is
Skallagrímsson snýr aftur
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR