Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 62
{ Kópavogur } 22
„Við erum framleiðslufyrirtæki sem framleiðir keramik.
Þetta er sjö ára gamalt fyrirtæki og erum einnig með
verslun og stöndum fyrir námskeiðum í málun á kera-
miki,“ segir Kristín Ottesen. Keramik-gallery hefur verið
starfrækt í sjö ár og alla tíð í Kópavoginum. Kristín
segir mjög fínt að reka fyrirtæki í Kópavogi og að eft-
irspurnin sé mikil.
Þetta er stærsta keramikframleiðslufyrirtæki lands-
ins. „Við erum eina fyrirtækið í þessum geira hérna
sunnanlands. Það eru bara tvö svona fyrirtæki á land-
inu og hitt er á Akureyri,“ segir Kristín. Hún á fyrir-
tækið ásamt Þórunni Hafdísi Karlsdóttur og standa þær
vinkonur meðal annars fyrir námskeiðum á haustin í
málun á keramiki.
„Námskeiðin eru haldin á góðum tíma fyrir jólin.
Flestir sem koma til okkar eru úr félagsstarfi landsins.
Þetta er vinsælt hjá saumaklúbbum, alls konar fönd-
urklúbbum og vinnustaðahópum,“ segir Kristín en fyr-
irtækið býður upp á ótrúlegan fjölda af alls kyns vöru
úr keramiki.
„Það er mjög vinsælt hjá fólki að mála sitt jólaskraut
í dag og svo er líka að verða æ algengara að fólk máli
álfa sem það hefur í görðunum sjálft, sem er skemmti-
legra en að hafa þetta svona fjöldaframleitt. Síðan
erum við með engla úr leir sem við seljum tilbúna,“
segir Kristín sem er ekki í vafa um að það geri fólki gott
að mála keramikvörur.
„Þetta er eitt af því sem sálfræðingar mæla með, að
fólk rói sig aðeins niður og setjist niður og skapi. Við
stuðlum að því,“ sagði Kristín í léttum tóni. - egm
Fólk á að róa sig,
setjast niður og skapa
Kristín Ottesen er annar eigandi Keramik-gallerys sem starfrækt er í Kópavogi. Þetta
er eina keramikframleiðslufyrirtækið sunnanlands og hefur ótrúlegan fjölda af vörum.