Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 98
Vonbrigði Spánverja meiri en okkar
Bogdan Wenta,
landsliðsþjálfari Póllands, var
sigurreifur eftir sigurinn á
Dönum í undanúrslitum HM í
fyrrakvöld. „Nú viljum við sýna
Þjóðverjum í eitt skipti fyrir öll
að við erum með betra lið en
þeir,“ sagði Wenta. „Að komast í
úrslitin var draumur okkar allra
og nú er sá draumur orðinn að
veruleika.“
Erum betri
en Þjóðverjar
Danir eru í sárum eftir
að hafa tapað fyrir Póllandi í
undanúrslitum HM í handbolta.
Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, sagði
að Pólverjar hafi einfaldlega
verið aðeins betri í leiknum.
„Skytturnar þeirra voru betri,“
sagði Wilbek. „Við komum tvisvar
til baka í leiknum en á endanum
höfðum við ekki sömu heppni
með okkur og undanfarna daga,“
sagði hann.
Hornamaðurinn Lars Christi-
ansen var ekki síður óhress með
tapið. „Við fáum líklega aldrei
aftur jafngott tækifæri á að
komast í úrslitaleik heimsmeist-
aramóts. Það er það sem er svo
biturt við tapið.“
Vorum ekki
jafnheppnir
Íslenska landsliðið spil-
ar í dag sinn tíunda og síðasta leik
á HM í handbolta í Þýskalandi
þegar liðið mætir Spánverjum í
leik um 7. sætið í Kiel. Þar sem
bæði leikmenn sem og íslenska
þjóðin eru orðin yfirfull af pæl-
ingum um taktík og mismundandi
varnarafbrigði íslenska liðsins,
ætlar Fréttablaðið að skoða í dag
hvort „litlu atriðin“ skipta ein-
hverju máli fyrir strákana okkar.
Atriði eins og í hvernig lituðum
búning íslenska liðið spilar, hvort
liðið byrjar með boltann eða skor-
ar í fyrstu sókn sinni ættu ekki að
hafa mikil áhrif en þegar betur er
skoðað kemur ýmislegt skemmti-
legt í ljós.
Ísland hefur spilað fimm leiki í
rauðu búningunum og fjóra í þeim
bláu á HM í Þýskalandi og það
virðist vera mikill munur á gengi
liðsins eftir því hvor liturinn er
notaður. Íslendingar unnu Ástrala,
Frakka og Slóvena í rauðu búning-
unum en mátti sætta sig við töp á
móti Þjóðverjum og Rússum.
Aðeins einn af fjórum leikjum
hefur hins vegar unnist í bláu. Nú
er bara að vona að strákarnir spili
í rauðu búningunum gegn Spáni í
dag.
Það er líka mikilvægt fyrir
íslenska liðið að vera komið með
forystuna í leiknum eftir tíu mín-
útur, því liðið hefur unnið alla þrjá
leikina þegar það hefur gerst.
Íslenska liðið hefur hins vegar
tapað öllum fimm leikjum sínum
þegar jafnt er eftir fyrstu 10 mín-
útur leiksins. Eini leikurinn sem
íslenska liðið var undir eftir 10
mínútna leik vannst en sá leikur
var gegn Túnis og staðan var þá 6–
9 fyrir Túnisbúa.
Íslensku strákunum hefur held-
ur aldrei tekist að snúa við stöð-
unni þegar liðið er undir og aðeins
tíu mínútur eru eftir. Strákarnir
komust nálægt því gegn Dönum
en töpuðu þá í framlengdum leik.
Fjórir af sex leikjum hafa unnist
þegar liðið er yfir þegar svona
sutt er eftir.
Hér til hliðar má sjá sigurhlut-
fall íslenska liðsins eftir nokkrum
„litlum atriðum“. Þessi tölfræði er
meira til gamans en hvort sem það
er tilviljun eða ekki gætu þessi
atriði skipt máli.
Íslenska landsliðið hefur unnið 3 af 4 sigurleikjum sínum á HM í Þýskalandi í
rauðu varabúningunum. Jöfn staða eftir tíu mínútna leik boðar slæm úrslit.
Íslenska landsliðið í
handbolta hefur unnið tvo síðustu
leiki sína um sæti á HM í hand-
bolta. Íslenska liðið sem í dag leik-
ur í 15. sinn um sæti á stórmóti
hefur unnið 5 af þessum 14 leikj-
um, þar af 3 af 7 leikjum á heims-
meistaramóti.
Ísland vann Júgóslavíu 32-27 í
leik um 7. sætið á HM í Portúgal
2003 og vann Egyptaland 23-20 í
leik um 5. sætið á HM í Kumamoto
1997. Ísland hefur einu sinni áður
mætt Spánverjum í leik um sæti
en sá leikur var um 5. sætið á HM
í Sviss 1986 og tapaðist 22-24.
Ísland hefur þrisvar sinnum
spilað um 7. sætið á stórmóti, vann
Júgóslavíu á HM 2003, tapaði fyrir
Tékkum (21-22) á HM 1993 og tap-
aði síðan ógleymanlegum leik
fyrir Austur-Þjóðverjum í víta-
keppni á Ólympíuleikunum í Seúl
1988.
Sigur í síðustu leikj-
um um sæti á HM
Í gær var ársskýrsla
Knattspyrnusambands Íslands
birt á heimasíðu sambandsins.
Hagnaður síðasta árs nam 99,3
milljónum króna og er eigið fé
sambandsins orðið 280,6 milljón-
ir. 100 milljónum af eigin fé mun
verða varið í mannvirkjasjóð.
Heildartekjur numu 377
milljónum, þar af voru 174
milljónir styrkir og framlög.
Tekjur af landsleikjum meira en
tvöfölduðust frá 2005, voru 50,5
milljónir í fyrra. Tekjur af
sjónvarpsrétti voru rúmar 86
milljónir.
Aldrei betri af-
koma hjá KSÍ
Sjúkraþjálfari franska
landsliðsins í handbolta réðst í
fyrrakvöld á norskan dómara í
Köln. Fyrr um kvöldið höfðu
Frakkar tapað fyrir Þjóðverjum
í undanúrslitum heimsmeistara-
keppninnar og voru þeir afar
óánægðir með dómgæslu sænska
dómaraparsins í leiknum. Sá
franski fór því mannavillt því
hann sparkaði í bak hins norska
Kenneth Abrahamson.
Í kjölfarið fluttu allir dómar-
arnir sig um set og komu sér fyrir
í Bonn, fjarri leikmönnunum. Það
var Hassan Moustapha, forseti
alþjóða handknattleikssambands-
ins, sem fyrirskipaði það.
Joel Abati, leikmaður franska
liðsins, lét hafa eftir sér að leik
loknum að dómgæslan hefði
kostað liðið sigurinn. „Þeir tóku
rangar ákvarðanir á mikilvæg-
ustu augnablikunum.“
Franskur sjúkraþjálf-
ari réðst á dómara
Iceland Express deild karla
Iceland Express deild kv.
Njarðvík og KR unnu
bæði leiki sína í Iceland Express
deild karla í körfubolta í gær og
eru því áfram í 1. og 2. sæti
deildarinnar. Njarðvíkingar unnu
öruggan heimasigur á Tindastól,
101-70, á sama tíma og KR-ingar
sóttu tvö stig í Grafarvoginn og
unnu 69-77 í sveiflukenndum leik.
Fjölnismenn byrjuðu vel gegn
KR-ingum og voru komnir með 16
stiga forskot, 36-20, þegar aðeins
þrjár mínútur voru eftir af fyrri
hálfleik. KR kom muninum niður
í 5 stig, 41-36, fyrir hálfleik og
var síðan komið með mest 15
stiga forskot, 59-74, áður en að
Fjölnismenn löguðu stöðuna.
Toppliðin unnu