Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 88
!
Í gær afhenti forseti Íslands,
herra Ólafur Ragnar Gríms-
son, Íslensku bókmennta-
verðlaunin 2006 við athöfn
á Bessastöðum. Tíu bækur
voru tilnefndar til verðlaun-
anna í desember sl., fimm í
flokki fagurbókmennta og
fimm í flokki fræðirita og
bóka almenns efnis, eins
og þær eru kallaðar. Það er
Félag íslenskra bókútgefenda
sem stofnaði til verðlaun-
anna fyrir átján árum.
Tilnefndar í flokki fagurbók-
mennta voru: Aldingarðurinn eftir
Ólaf Jóhann Ólafsson (Edda
útgáfa/Vaka-Helgafell) safn smá-
sagna, Fyrir kvölddyrum eftir
Hannes Pétursson (Edda útgáfa/
Mál og menning) fyrsta ljóðabók
hins aldna skáldsnilling í fjölda
ára, Guðlausir menn eftir Ingunni
Snædal (Bjartur) sem fékk bók-
menntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar í fyrra, Sendiherrann
eftir Braga Ólafsson (Edda útgáfa/
Mál og menning), og Tryggðar-
pantur eftir Auði Jónsdóttur (Edda
útgáfa/Mál og menning), hvort-
tveggja athyglisverðar skáld-
sögur eftir framúrskarandi rit-
höfunda.
Tilnefndar í flokki fræðirita og
rita almenns efnis voru: Drauma-
landið – sjálfshjálparbók handa
hræddri þjóð eftir Andra Snæ
Magnason (Edda útgáfa/Mál og
menning), ein óvæntasta metsölu-
bók síðari ára; Íslenskir hellar
eftir Björn Hróarsson (Edda
útgáfa/Vaka-Helgafell), mynd-
skreytt stórvirki í tveimur bind-
um um falin heim hella á Íslandi;
Óvinir ríkisins eftir Guðna Th.
Jóhannesson (Edda útgáfa/Mál og
menning), sem hellti olíu á eld
gamalla deilumála um hleranir
hér á landi; Skáldalíf eftir Halldór
Guðmundsson (JPV útgáfa) um
samhliða feril þeirra Þorbergs og
Gunnars Gunnarssonar, Upp á sig-
urhæðir eftir Þórunni Erlu Valdi-
marsdóttur (JPV útgáfa) - lang-
þráð ævisaga Mattíasar
Jochumssonar.
Kristján B. Jónasson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda,
setti samkomuna og forseti Íslands
kynnti niðurstöðu dómnefndar og
afhenti verðlaunin. Verðlaunahöf-
undar ávörpuðu síðan gesti.
Kristjana Stefánsdóttir, Sig-
urður Flosason og Eyþór Gunnars-
son fluttu tvö verk við athöfnina
Til þín, með sólina í bakið og Hvar
er tunglið? Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson er höfundur ljóðs beggja
verka og Sigurður Flosason laga.
Þriggja manna lokadómnefnd,
skipuð þeim Sigríði Þorgeisdóttur,
Kristjáni Kristjánssyni og Stefáni
Baldurssyni, sem var formaður,
valdi verkin úr tíu bókum sem til-
nefndar voru til verðlaunanna í
desember.
Bókmenntaverðlaunin nema
750 þúsund krónum í hvorum
flokki, auk þess sem afhent eru
skrautrituð verðlaunaskjöl og
verðlaunagripir hannaðir af Jóni
Snorra Sigurðssyni á gullsmíða-
verkstæði Jens - opin bók á granít-
stöpli með nafni verðlaunahöfund-
ar og bókar hans.
Afhendingin fór að venju fram
í skálanum á Bessastöðum og var
þar fjölmenni áhrifamanna úr
bókmenntageiranum. Báðir höf-
undarnir voru viðstaddir og heldu
stutta tölu er þeir þágu viðurkenn-
ingarskjöl og grip úr höndum for-
seta.
Þeir sem áður hafa hlotið
Íslensku bókmenntaverðlaunin
eru: Stefán Hörður Grímsson 1989
en þá voru verðlaunin aðeins veitt
í einum flokki, Fríða Á. Sigurðar-
dóttir og Hörður Ágústsson 1990,
Guðbergur Bergsson og Guðjón
Friðriksson 1991, Þorsteinn frá
Hamri og sameiginlega Vésteinn
Ólason, Guðrún Nordal og Sverrir
Tómasson 1992, Hannes Pétursson
og Jón G. Friðjónsson 1993, Silja
Aðalsteinsdóttir og Vigdís Gríms-
dóttir 1994, Steinunn Sigurðar-
dóttir og Þór Whitehead 1995,
Böðvar Guðmundsson og Þor-
steinn Gylfason 1996, Guðbergur
Bergsson og Guðjón Friðriksson
1997, Hörður Ágústsson og Thor
Vilhjálmsson 1998, Andri Snær
Magnason og Páll Valsson 1999,
Gyrðir Elíasson og Guðmundur
Páll Ólafsson 2000, Hallgrímur
Helgason og Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir 2001, Ingibjörg Har-
aldsdóttir, Pétur M. Jónasson og
Páll Hersteinsson 2002, Ólafur
Gunnarsson og Guðjón Friðriks-
son árið 2003, Auður Jónsdóttir og
Halldór Guðmundsson árið 2004
og Jón Kalman Stefánsson og
Kristín G. Guðnadóttir, Gylfi
Gíslason, Arthur C. Danto, Matthí-
as Jóhannessen, Silja Aðalsteins-
dóttir og Eiríkur Þorláksson árið
2005.
þetta er í annað sinn sem Andri
Snær fær þessa viðurkenningu og
sest hann á bekk með þeim Silju
Aðalsteinsdóttur og Guðbergi
Bergssyni sem hafa þegið þessa
viðurkenningu í tvígang. Guðjón
Friðriksson hefur fengið verð-
launin þrisvar.
Smásagnasafn Ólafs kom
nýlega út í Bandaríkjunum og
fékk lofsamlega dóma víða.
Deilurit Andra Snæs hefur
komið út í nokkrum prentunum, í
undirbúningi er leiksýning á
vegum Hafnarfjarðarleikhússins
sem byggir á verkinu og í bígerð
er heimildarmynd sem sækir efni
sitt í bókina.
Kl. 14.00
Kristín Guðmundsdóttir opnar
sýningu sína Barnslegar minningar
+ löstur mannsins á Café Karólínu á
Akureyri. Sýningin samanstendur af
textaverkum á glasamottur og veggi.
Verkin skiptast í tvo hluta, annars
vegar minningar barns um aðvaranir
þeirra eldri og svo hins vegar syndir
þeirra eldri og hvernig hægt sé að
forðast þær. Sýningin stendur til 2.
mars.