Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 50
Fimm ár eru liðin síðan Birna Karen Ein-
arsdóttir stofnaði tískufyrirtækið Birnu, sem
leggur áherslu á sígildan kvenfatnað. Lengst
framan af hannaði hún fötin sjálf, saumaði
og markaðssetti, en hefur nú fengið til sín
stóran hóp sem vinnur hörðum höndum að
því að koma fyrirtækinu á kortið.
„Við munum taka þátt í stærstu sölusýn-
ingu á Norðurlöndunum í febrúar, sem kallast
Copenhagen Vision og er undirlögð af tísku-
iðnaðinum,“ segir Birna, sem hefur staðið á
haus við undirbúning ásamt aðstoðarfólki á
aðalskrifstofunni í Kaupmannahöfn. „Búist er
við að mun fleiri mæti en áður, tugir þús-
unda.
Þetta verður í áttunda sinn sem ég tek þátt
í sýningunni.“
Að sögn Birnu er sýningin einn liður
í markvissri upp-byggingu vörumerkis-
ins Birnu á Norðurlöndunum. „Þetta verður
raunverulega í fyrsta sinn sem við leggjum
svona mikið upp úr því að leita til heildsal-
anna. Hingað til hefur það verið á hinn veg-
inn. Áhersla verður þó eftir sem áður að bjóða
vöruna fáum útvöldum aðilum.“
Stefnan er enn fremur að opna fleiri Birnu
Concept verslanir. Fyrir er ein versl-un á
Östegade frá 2005 og önnur á Skólavörðustíg,
sem var opnuð í október 2006. „Okkur langar
til að opna eigin búðir í stærstu höfuðborg-
unum, sem við höfum umsjón með og munu
því eiga í nánu samstarfi. Fötin munu þannig
verða til alls staðar en ekki í ótakmörkuðu
upplagi. Stefnan er ekki að hrinda af stað
einhverri verslanakeðju, heldur að hafa öll
fötin í takmörkuðu upplagi, svo þau haldist
einstök.“
Birna og starfsfólk henn-ar vinna einn-
ig að því að fjölga fatalínum fyrirtækisins.
„Við erum að byrja með nýja línu sem kallast
Pieces Collection og verður eingöngu fáan-
leg í verslunum okkar,“ útskýrir hún. „Fötin
munu fást í takmörkuðu upplagi. Tíu eintök
af hverri flík í mismunandi stærðum og litum,
sem verða ekki framleiddar aftur. Línan verð-
ur líka í fínni kantinum en áður. Fötin hefur
hingað til má flokka sem flottan hversdags-
klæðnað, sem nota má við ýmis tækifæri.
Með nýju línunni verður breyting þar á.“
Þá ætlar Birna að markaðssetja sérstaka
barnalínu, sem verður í stíl fyrri fatn-aðar.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við hönnum barna-
föt,“ segir hún. „Við höfum sömu grunnhug-
mynd að leiðarljósi og liggur að baki hönnun
kvenfatnaðarins. Barnafötin verða þann-ig
hönnunarvara, sem er unnin úr mörgum, ólík-
um efnum.“ Aðspurð segir Birna hönnun
herrafatnaðar síðan vera á stefnuskránni í
framtíðinni.
Af ofansögðu er ljóst að mikið vatn hefur
runn-ið til sjávar síðan Birna stofnaði fyrir-
tækið. Sjálf segist hún aldrei hafa efast um
að afrakstur erfiðisins myndi að lokum skila
sér, meðal annars þar sem hún hafi alltaf lagt
áherslu á að hanna flottan, sígildan og þægi-
legan fatnað. „Það er þó aðeins hluti vinn-
unnar. Það skiptir ekki síður máli að mark-
aðssetja vöruna vel og halda vandlega utan
um hana.“
roald@frettabladid.is
Íslenskur hönnuður
á uppleið
Birna Karen Einardóttir, stofnandi tískufyrirtækisins Birnu, er í mikilli
sókn á erlendum vettvangi.
10
Hanskar við
öll tækifæri
Yfir vetrartímann getur verið alveg bráðnauðsyn-
legt að hafa góða hanska á höndunum til að hlífa
sér fyrir kuldanum. Nú eru hanskar sjóðheitur fylgi-
hlutur og gaman að skoða úrvalið í verslunum. Allt
frá hinum hefðbundnu leður- og rúskinnshönskum
upp í blúnduhanska eða -grifflur má finna víða en
blúndan getur verið smart við sparikjólinn. Háu
hanskarnir eru góðir við kápur með kvartermum
sem eru svo vinsælar þessa dagana, svo nú er
um að gera að fara og finna sér flotta hanska
við öll tilefni. -sig
{ Tíska }