Fréttablaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 2
Tyrkneskir fjölmiðl-
ar birtu í gær myndir sem sýndu
herlögreglumenn stilla sér upp til
myndatöku með unga þjóðernis-
ofstækismanninum sem grunað-
ur er um að hafa myrt armensk-
ættaða blaðamanninn Hrant Dink.
Eitt dagblaðið sagði lögreglu-
mennina hafa veitt sakborningn-
um „hetjumeðferð“.
Myndirnar sýna hinn sautján
ára gamla sakborning, Ogun Sam-
ast, halda á tyrkneska þjóðfánan-
um og stilla sér upp með lög-
reglumönnunum, sem sumir eru í
einkennisbúningum. Á bak við
Samast er borði í fánalitunum,
þar sem á er letruð tilvitnun í
Mustafa Kemal Atatürk, föður
Tyrklands nútímans: „Land
þjóðarinnar er heilagt. Það má
ekki ofurselja örlögunum.“
Samast er sakaður um morðið
á Hrant Dink, blaðamanni af
armenskum uppruna sem bakað
hafði sér hatur þjóðernisofstopa-
manna með því að skrifa greinar
um að fjöldamorð Tyrkja á
Armenum undir lok heimsstyrj-
aldarinnar fyrri hefði verið
þjóðarmorð.
100.000 Tyrkir fylgdu Dink til
grafar til að sýna andúð sína á
málstað og baráttuaðferðum
þeirra sem réðu hann af dögum.
Sagðir hafa veitt „hetjumeðferð“
Eyjólfur, ætti kannski frekar
að tala um tölvuóleik?
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
TOYOTA COROLLA WAGON
Nýskr. 03.03 - Sjálfskiptur - Ekinn 62 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.390
.000.
-
Hreyfanleiki við-
skiptavina milli banka alls staðar
í Evrópu er mjög lítill. Þetta segir
í skýrslu framkvæmdastjórnar
ESB. Að því er segir í tilkynningu
Neytendasamtakanna hamla
fjölmörg atriði samkeppni í
tengslum við greiðslukort,
greiðslukerfi og þjónustuþætti á
borð við tékkareikninga. Verð-
upplýsingar séu ógagnsæjar,
erfitt sé að meta gæði þjónust-
unnar, kostnaður vegna flutnings
og lokun viðskiptareikninga sé
hár og viðskiptavinir séu bundnir
er þeim bjóðist betri lánakjör ef
þeir kaupi viðbótarþjónustu.
Viðskiptavinir
fastir í bönkum
Karlmaður á þrí-
tugsaldri játaði á miðvikudags-
kvöld að hafa kveikt í íbúðarhúsi í
Þorlákshöfn aðfaranótt 20. janúar
síðastliðins. Hann hafði áður
viðurkennt að hafa brotist inn í
húsið en neitaði stöðugt að hafa
borið eld að því. Húsið brann til
kaldra kola og eigandi þess stóð
eftir með ekkert nema vinnufötin
sem hann var í og það sem stolið
hafði verið. Kona og tvö börn voru
sofandi í samliggjandi húsi en
árvökulum nágranna tókst að
vekja þau og sluppu þau því
ómeidd. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi sagðist maðurinn hafa
ætlað sér að eyða verksummerkj-
um með því að skvetta bensíni
víðs vegar um húsið og kveikja í.
Rannsókn hennar bendir til þess
að hann hafi verið einn að verki.
Maðurinn var handtekinn þegar
hann reyndi að nota greiðslukort
úr innbrotinu til að kaupa sér dekk
á höfuðborgarsvæðinu stuttu eftir
eldsvoðann. Hann hafði áður hringt
í þjónustufulltrúa hjá banka eig-
anda kortsins og látið flytja fé yfir
á greiðslukortið. Gaf hann þær
skýringar að brunnið hefði ofan af
honum og heimildin á kortinu væri
fullnýtt. Þjónustufulltrúinn fram-
kvæmdi millifærsluna án þess að
maðurinn hefði getað gefið upp
leyniorð reikningsins. Grunsemdir
vöknuðu skömmu síðar þegar rétt-
mætur eigandi kortsins hringdi í
bankann og óskaði eftir sömu fyr-
irgreiðslu. Þjófurinn hefur setið í
gæsluvarðhaldi síðan.
Við handtöku mannsins fundust
tveir hnífar, amfetamín, gramma-
vog og ætlaður skuldalisti vegna
fíkniefnakaupa í bifreið hans. Við
húsleit á heimili unnustu mannsins
fannst síðan þýfi úr innbrotinu og
grænn bensínbrúsi. Unnustunni
var sleppt í síðustu viku þar sem
ekki þótti nauðsynlegt rannsókn-
innar vegna að halda henni lengur.
Hún er þó enn til rannsóknar vegna
meðferðar á þýfinu sem fannst á
heimili hennar.
Bráðabirgðaniðurstöður tækni-
deildar sýndu að notaður hefði
verið eldfimur vökvi til að kveikja
eldinn og hefur lögreglan á Sel-
fossi staðfest að hann hafi komið
upp á fleiri en einum stað. Maður-
inn sem er í haldi hefur margsinnis
áður komið við sögu lögreglu vegna
ýmissa brota. Hann er af höfuð-
borgarsvæðinu en dvaldist tölu-
vert í Þorlákshöfn á heimili unn-
ustu sinnar. Gæsluvarðhald yfir
honum var í gær framlengt til 9.
mars og verður málið sent ríkis-
saksóknara þegar rannsókn þess
lýkur, en hún er að sögn lögreglu
vel á veg komin.
Játar að hafa kveikt
í íbúð í Þorlákshöfn
Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa brotist inn og kveikt í íbúðarhúsi
í Þorlákshöfn í síðustu viku. Bensínbrúsi og þýfi úr innbrotinu fannst á heimili
unnustu hans. Vopn og fíkniefni voru gerð upptæk við handtöku mannsins.
Stúlka sem reyndi að
smygla 85 grömmum af kókaíni
til landsins í mars hefur verið
dæmd í Héraðsdómi Norðurlands
eystra í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi.
Hún var átján ára þegar hún
framdi brot sitt.
Stúlkan flutti efnið hingað til
lands frá Amsterdam og hafði
falið það í líkama sínum. Hún var
handtekin eftir komu til Keflavík-
urflugvallar og lagði lögreglan
hald á efnið síðar sama dag.
Dómurinn gerði stúlkunni að
greiða á fjórða hundrað þúsund
krónur í sakarkostnað og sæta
upptöku kókaínsins.
Átján ára í
kókaínsmygli
Eitt ungmenni á
dansleik framhaldsskólanema í
fyrrakvöld var svo illa haldið af
áfengisdrykkju að því var ekið á
slysadeild, að sögn lögreglu.
Nokkur ölvun var á tveimur
skólaböllum framhaldsskólanema
sem haldin voru í borginni í
fyrrakvöld. Alls var haft sam-
band við foreldra um fimmtíu
unglinga og þeir beðnir að sækja
börn sín. Mörg ungmennanna
höfðu drukkið ótæpilega en þess
ber að geta að bæði böllin áttu að
sjálfsögðu að vera áfengislaus.
Á slysadeild
eftir ofdrykkju
„Við finnum fyrir miklum hlýhug og erum
öllum þakklát,“ segir Hrefna Björk Sigurðardóttir.
Börnin hennar Svandís Þula og Nóni Sær lentu í
alvarlegu bílslysi 2. desember síðastliðinn. Svandís
Þula, fimm ára gömul, lét lífið í slysinu en Nóni Sær
lamaðist fyrir neðan mitti. Faðir systkinanna lenti
einnig í slysinu en slapp án alvarlegra meiðsla.
Eftir hið hörmulega slys tóku nokkur fyrirtæki og
listamenn sig saman, undir forystu Leones Tinganelli,
og gáfu út geisladisk til minningar um litlu stúlkuna.
Diskurinn sem ber titilinn Svandís Þula – minning
hefur selst vel. Á tveimur vikum hafa um þrjú
þúsund eintök selst og nemur ágóðinn um þremur
milljónum króna sem renna óskiptar til Nóna Sæs.
„Lömunin er óbreytt en þetta horfir allt í rétta
átt. Nóni hefur verið með meltingartruflanir og er
enn innskrifaður á spítalann en getur sofið heima
um nætur. Hann fer í endurhæfingu og í skólann á
hverjum degi,“ segir Hrefna. Hún vill nota tækifær-
ið og skila þakklæti til starfsfólks og nemenda í
Norðlingaskóla þar sem Nóni stundar nám.
„Við höfum það eins gott og hægt er miðað við
aðstæður og erum einstaklega þakklát fyrir allt það
sem fólk hefur gert fyrir okkur,“ segir Hrefna.
Fjárstyrkinn segir hún verða lagðan inn á
framtíðarreikning Nóna og vonast hún til að féð
muni hjálpa honum í framtíðinni.
Nýtist Nóna Sæ í framtíðinni
Fornleifaræn-
ingjar eru enn stórtækir í
Afganistan, þar sem ofstækis-
stjórn talíbana eyddi á sínum
tíma skipulega stórum hluta
þeirra fornmuna sem til voru í
landinu. Alþjóðaráð minjasafna
hóf í gær aðgerðir sem miða að
því að stemma stigu við ólögleg-
um viðskiptum með fornmuni frá
Afganistan.
Ráðið birti í gær válista yfir
horfna afganska fornmuni í von
um að einkasafnarar, fornmuna-
salar og umboðsmenn safna verði
vakandi fyrir því ef slíkir munir,
sem kunna að vera þjófstolnir,
koma upp á yfirborðið.
Fornleifarán
valda áhyggjum
Fíkniefnasmygl það
sem lögreglan í Árnessýslu
rannsakar nú varð með þeim
hætti að efnið var sent til
landsins með pósti, samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins.
Magn fíkniefnanna er það mikið
að allar líkur benda til þess að
þau hafi verið ætluð til dreifingar
og sölu.
Það var í fyrrakvöld sem
Héraðsdómur Suðurlands
úrskurðaði tvo menn í gæsluvarð-
hald vegna málsins. Þeir eru
báðir á á þrítugsaldri. Annar
mannanna var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 9. febrúar og
hinn til 6. febrúar, að kröfu
lögreglunnar í Árnessýslu.
Fíkniefni tekin
í póstsendingu