Fréttablaðið - 22.02.2007, Qupperneq 4
Menntasvið Reykjavík-
urborgar efnir til íslenskuverð-
launa fyrir reykvísk skólabörn.
Verðlaununum verður úthlutað
árlega, á Degi íslenskrar tungu
hinn 16. nóvember. Verndari
verðlaunanna er frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands.
Í tilkynningu segir að markmið
verðlaunanna sé að auka áhuga
æskufólks á íslenskri tungu og
hvetja það til framfara í tjáningu
talaðs máls og ritaðs. Verðlaunin
fá nemendur sem tekið hafa
framförum eða náð góðum
árangri í íslensku, hvort sem þeir
hafa hana að móðurmáli eða læra
hana sem annað tungumál.
Auka áhuga á
íslenskri tungu
Guðjón Ólafur Jónsson
þingmaður vakti í gær athygli á
rannsóknum Ragnars Árnasonar
um tekjur Íslendinga 1993 til
2005; að samkvæmt þeim hafi
tekjur hinna lægst launuðu ekki
minnkað. Sagði hann þögn
stjórnarandstöðu um þetta
„ærandi“.
Þingmenn stjórnarandstöðu
minntust þá á verðlag og „verð-
bólguskatt“. Ögmundur Jónasson
sagði það óumdeilt að kaupmáttur
hefði aukist, miðað við meðaltal.
Frekar en miða við meðaltal
mætti þó spyrja hvort auðveldara
væri að vera tekjulítill og
húsnæðislaus nú, en áður.
Athygli vakin á
tekjurannsókn
Hópur róttækra
umhverfissinna sem kallar sig
Earth Liberation Front (ELF)
hefur játað á sig skemmdarverk
sem unnin voru á vinnuvélum í
Hraunsvík í byrjun janúar á þessu
ári.
Í yfirlýsingu samtakanna segir
að skotmark þeirra hafi verið
álver Alcan í Straumsvík en þau
töldu að framkvæmdir við stækk-
un þess væru þegar hafnar. Vél-
arnar sem voru skemmdar tengd-
ust hins vegar Alcan ekki á neinn
hátt heldur eru þær í eigu Ístaks
sem er að byggja skólpdælustöð í
Hraunsvík, skammt frá álverinu.
Loftur Árnason, framkvæmda-
stjóri Ístaks, segir að tjónið sem
unnið var á vélunum hlaupi á millj-
ónum króna. „Það var klipptur í
sundur rafmagnsbúnaður og
vökvalagnir auk þess sem stýris-
búnaður var skemmdur. Þeir sem
voru þarna að verki hafa greini-
lega ekki verið kunnir tungumál-
inu því þá hefðu þeir getað lesið á
skiltið þar sem á stóð hvað væri
verið að byggja. En það er alveg
ljóst að þetta fólk kunni til verka
og skemmdi viðkvæmustu staðina
í vélunum.“
Hörður Jóhannesson, aðstoðar-
lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð-
inu, staðfestir að kæra hafi borist
vegna skemmdarverkanna en á
þeim tíma hafi ekki legið fyrir nein-
ar vísbendingar um hverjir hafi
verið þarna að verki. Hann segir
rannsókn málsins standa yfir.
Pétur Óskarsson, talsmaður
samtakanna Sól í Straumi, sem
barist hafa gegn stækkun álvers-
ins, fordæmir framgöngu ELF og
segir meðlimi hópsins vera
óprúttna glæpamenn. Hann telur
skemmdarverkin þó ekki eiga
eftir að hafa áhrif á komandi kosn-
ingabaráttu varðandi stækkun
álversins. „Við höfum að sjálf-
sögðu ekkert með þennan hóp að
gera. Þetta á ekkert skylt við þá
umræðu sem á sér stað hér í Hafn-
arfirði varðandi stækkun álvers-
ins og er mjög málefnaleg meðal
bæjarbúa.“
Skemmdarverkunum var líkt
og fyrr segir beint gegn Alcan.
Hrannar Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi fyrirtækisins, segir að
fyrirtækið taki svona fregnum
mjög alvarlega. „Það eru vissu-
lega vonbrigði að fólk noti meðul
af þessu tagi og teljum þau ekki
gott innlegg í þá kosningabaráttu
sem er í gangi.“
Yfirlýsing samtakanna birtist
bæði á heimasíðu samtaka sem
kalla sig Earth First! og á heima-
síðu Saving Iceland, samtaka sem
vinna að verndun íslenskrar nátt-
úru. Í fréttatilkynningu Saving
Iceland sem send var fjölmiðlum í
gær segjast samtökin ekki vera
ábyrg fyrir, né tengjast, aðgerðum
sem þau segja frá nema slíkt sé
skýrt tekið fram.
Róttæklingar stóðu
fyrir skemmdunum
Erlendur hópur róttækra umhverfisverndarsinna hefur lýst sig ábyrgan á
skemmdum á vinnuvélum Ístaks í Hraunsvík fyrr á árinu. Taldi hópurinn sig vera
að vinna gegn stækkun álversins í Straumsvík. Tjón hleypur á milljónum króna.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Fræðslufundur í Neskirkju í kvöld 22. febrúar kl. 20-22.
Fyrirlesari sr. Birgir Ásgeirsson
Allir velkomnir!
Sjálfsvíg
Eiður Guðnason
sendiherra verður aðalræðis-
maður Íslands í Þórshöfn í Fær-
eyjum á nýrri sendiráðsskrif-
stofu sem þar verður stofnuð í
aprílmánuði.
„Þetta er auðvitað yfirlýsing
um mikilvægi samskipta okkar
við Færeyinga,“ segir Eiður,
sem er mjög spenntur yfir þessu
nýja starfi. Hann þekkir eyjarn-
ar vel eftir margar heimsóknir
vegna starfa sinna sem þing-
maður og ráðherra. Hann segist
kunna afar vel við „okkar næstu
nágranna“ og eiga þar ágæta kunningja.
Með nýrri skrifstofu Íslendinga á eyjunum skulu
tengsl við Færeyinga efld á sviði viðskipta og menn-
ingar. Nýlega var undirritaður
samningur milli þjóðanna, sem
kenndur er við Hoyvík. Mark-
mið hans er að koma á fót sam-
eiginlegu efnahagssvæði
Íslands og Færeyja, til að
mynda er stefnt að fullri frí-
verslun með landbúnaðarvör-
ur.
„Íslendingar stofna þessa
skrifstofu í góðri samvinnu við
Dani og Færeyinga,“ segir
Eiður. Íslensk ræðismanns-
skrifstofa hefur verið í Færeyj-
um í sextíu ár. Hingað til hefur
þar starfað ólaunaður kjörræðismaður.
Skrifstofan verður til húsa í Fógetastofunni, í
hjarta Þórshafnar.
Þau tæpu fjögur
kíló af kókaíni sem karlmaður á
fertugsaldri er grunaður um að
hafa smyglað inn til landsins er
mesta magn efnisins sem lagt
hefur verið hald á hér á landi.
Maðurinn var handtekinn í
byrjun febrúar og situr nú í
gæsluvarðhaldi.
Allt í allt lögðu lögregla og
tollverðir hald á tæplega þrettán
kíló af kókaíni á síðasta ári. Þar
af voru tæp níu kíló tekin í
þremur aðskildum málum frá
byrjun ágúst og fram í lok
nóvember. Þessi þrjú mál eru
langstærstu kókaínmál sem upp
hafa komið á Íslandi.
Níu kíló tekin á
skömmum tíma
Íbúasamtök
Laugardals og foreldrafélag
Langholtsskóla blása til fundar
um Laugardal framtíðarinnar í
dag. Ástæðan er að skipulagsyfir-
völd í Reykjavík hyggjast taka
leiksvæði barna í dalnum undir
fjölbýlishús.
Í tilkynningu segir að stöðugt
sé þrengt að dalnum sem náttúru-
perlu og að borgarbúar verði að
vera á varðbergi gagnvart
skipulagsbreytingum sem þessum.
Borgarstjóra er boðið á fundinn
ásamt öðrum sem fara með
skipulagsmál borgarinnar.
Leiksvæði und-
ir fjölbýlishús