Fréttablaðið - 22.02.2007, Page 8
Á næstu vikum fara
1.600 breskir hermenn heim frá
Írak og fyrir árslok fara síðan 500
í viðbót. Þá verða um 5.000 her-
menn eftir og verða þeir svo lengi
sem þörf krefur.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, skýrði frá því á þingi í
gær að nærri þriðjungur breska
herliðsins verði kallaður heim frá
Írak á næstu vikum, eða um leið
og heimamenn hafa tekið við
stjórn öryggismála í þremur af
þeim fjórum héruðum sem Bretar
hafa haft umsjón með. Þó fari her-
mennirnir ekki nema tryggt sé að
Írakar geti tekið að sér yfirstjórn
öryggismála á þeim svæðum í Írak
þar sem Bretar hafa verið.
Á þriðjudaginn ræddi Blair við
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta og skýrði honum frá þessum
áformum. Bush tók vel í þessi tíð-
indi og sagði þau sýna hve góður
árangur hefði náðst á þeim svæð-
um þar sem Bretar hafa verið.
Bush hefur lagt mikla áherslu á
að bandarískum hermönnum í
Írak verði fjölgað og vill að 21.500
hermenn bætist í hóp þeirra
130.000 Bandaríkjamanna sem þar
eru fyrir. Þetta segir hann nauð-
synlegt til þess að ráða við ástand-
ið í höfuðborginni Bagdad.
Breski herinn hefur hins vegar
einkum verið í fjórum héruðum
suðausturhluta landsins og því
verið fjarri átökunum í Bagdad. Á
breska svæðinu hefur ástandið
verið verst í hafnarborginni
Basra, en stefnt er að því að Írak-
ar taki við stjórninni þar.
„Allt þetta þýðir ekki að ástand-
ið í Basra sé nú eins og við viljum
hafa það, en þetta þýðir að Írakar
geta skrifað næsta kaflann í sögu
Basra,“ sagði Blair í gær.
Alls hafa 132 breskir hermenn
fallið í Írak frá því stríðið hófst í
mars árið 2003.
Dönsk stjórnvöld skýrðu í gær
frá því að allir danskir hermenn
verði kallaðir heim frá Írak nú í
sumar.
John Howard, forsætisráð-
herra Ástralíu, sagðist hins vegar
í gær ekki sjá neina ástæðu til að
kalla ástralska hermenn heim frá
Írak. Í það minnsta ekki strax.
„Þeir verða áfram með 5.000 menn
og við með 550,“ sagði Howard.
Þriðjungur breska
herliðsins fer heim
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að fækka verulega í breska herlið-
inu í Írak strax á þessu ári. George W. Bush Bandaríkjaforseti fagnar þessu.
Forskot Íhalds-
flokksins breska á Verkamanna-
flokkinn mælist nú nægilega stórt
til að flokkurinn gæti unnið hrein-
an meirihluta á þingi, færu fram
kosningar nú.
Í könnun fyrir dagblaðið The
Guardian sögðust 42 prósent
svarenda frekar myndu kjósa
Íhaldsflokkinn undir forystu Dav-
ids Cameron en Verkamanna-
flokkinn undir forystu Gordons
Brown, sennilegs eftirmanns
Tony Blair. Sautján prósent sögð-
ust styðja Frjálslynda demó-
krata.
Fylgi Íhaldsflokksins hefur
ekki mælst meira síðan skömmu
eftir síðustu þingkosningar sem
flokkurinn vann, en það var vorið
1992. Íhaldsmenn hafa mælst með
meira fylgi en Verkamannaflokk-
urinn í nær öllum könnunum
síðan í ársbyrjun í fyrra.
Niðurstöðurnar þykja til þess
fallnar að ýta undir efasemdir í
Verkamannaflokknum um að
Brown sé rétti maðurinn til að
leiða flokkinn í næstu kosningum,
sem væntanlega verða haldnar
árið 2009. Blair hefur sagst munu
hætta fyrir haustið.
Íhaldsflokkur eykur forskotið
Félag heyrnarlausra
skorar á alþingismenn að
viðurkenna táknmál sem móður-
mál heyrnarlausra og finna
varanlega lausn á túlkaþjónustu.
Einnig skorar félagið á að
textun innlends sjónvarpsefnis
verði lögbundin skylda. Slík
textun veiti heyrnarlausum
aðgengi að upplýsingum og sé það
mikið jafnréttismál.
Ofangreindar breytingar á
aðstöðu heyrnarlausra þurfa ekki
að kosta mikið en gætu breytt
miklu fyrir líf fólks sem alla sína
ævi hefur búið við einangrun í
allsnægtasamfélaginu, segir í
áskoruninni.
Táknmál verði
móðurmálið
Allir danskir hermenn í Írak, sem nú eru
460 talsins, verða farnir burt fyrir haustið. Í staðinn
verða fjórar danskar þyrlur sendar til Íraks og
verða þar út árið.
Einnig ætla Danir að senda 200 hermenn til
Afganistans til viðbótar þeim 400 dönsku hermönn-
um sem þar eru fyrir. Yfirstjórn NATO hefur ein-
dregið hvatt aðildarríkin til þess að senda fleiri her-
menn þangað sem fyrst, þar sem búast má við
harðari átökum í Afganistan nú með vorinu og fram
á sumar.
Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra og
Per Stig Møller utanríkisráðherra skýrðu frá þessu
á blaðamannafundi í hádeginu í gær, um svipað leyti
og Tony Blair skýrði breska þinginu frá fækkun
breskra hermanna í Írak.
Dönsk stjórnvöld segjast hafa tekið þessa ákvörð-
un í samráði við bæði Blair og George W. Bush
Bandaríkjaforseta, auk þess sem hann hafi ráðgast
við Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Írans.
„Maliki forsætisráðherra lýsti ánægju sinni með
að ástandið í suðrinu hafi þróast þannig að þeir geti
sjálfir tekið á sig meiri ábyrgð,“ sagði Fogh Rasm-
ussen.
Sex danskir hermenn hafa fallið í Írak frá stríðs-
byrjun.
Danski herinn yfirgefur Írak
Hver er skólameistari Iðn-
skólans í Reykjavík?
Hvað heitir japanska hval-
veiðiskipið sem kviknaði í við
Suðurskautið á dögunum?
Hvaða Íslendingur var
nýlega ráðinn í breska þjóðleik-
húsið?
Fáið það óþvegið!
Fræðsluganga á safnanótt föstudaginn 23. febrúar
Gengið frá Hlemmi að Þvottalaugunum í Laugardal og þaðan
inn í Grasagarð Reykjavíkur. Fræðst um líf og störf þvottakvenna
ásamt öðru því sem fyrir augu ber.
Lagt af stað frá Hlemmi kl. 20:00
Lúðrasveit blæs til göngu
Boðið upp á heitt kakó í göngulok
Garðskáli Grasagarðsins opinn frá 19-24
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
O
R
K
3
63
36
0
2/
07