Fréttablaðið - 22.02.2007, Page 30
Glitrandi steinar og grátt glansandi efni var áberandi á tískusýn-
ingu Giorgios Armani í Mílanó.
Tískuhönnuðir keppast nú við að kynna tískulínu sína fyrir
haustið og veturinn 2007. Einn þeirra er hinn heimskunni
Giorgio Armani.
Armani er hvað þekktastur fyrir
karlmannafatnað sinn og á frægð
sína mikið til að þakka þeim verk-
efnum sem hann vann fyrir Holly-
wood-stjörnur, einkum og sér í lagi
fyrir Richard Gere þegar hann lék í
kvikmyndinni American Gigolo árið
1980. Armani er samt sem áður engin
aukvisi þegar kemur að kven-
fatnaði eins og dæmin
sanna. Hann heldur sig yfir-
leitt við klassísk form og
hafa fötin hans ávallt yfir-
bragð glæsileika. Svo var
einnig að þessu sinni þegar
Armani hélt sýningu á
haust- og vetrarlínu í kven-
fatnaði í Mílanó á dögunum.
Þar bar mikið á glitrandi
steinum, smekklega röðuð-
um niður á gráu glansandi
efni.
Glitrandi Armani
Smáralind, sími 528 8800, www.drangey.is
Skart
Sem tekið er eftir
EYE-CARE
Fæst í apótekum um land allt
Vision Eye Care
•Dauðhreinsaðir augnklútar sem
þrífa viðkvæm augnsvæði.
•Innihalda kamillu og glýserín sem
hafa róandi og rakagefandi áhrif.
•Einstaklega góðir fyrir linsunotendur.
•Vernda pH gildi augnanna.
•Klútarnir eru augnlæknisfræðilega-
og ofnæmisprófaðir og innhalda ekki
ertandi efni.
Laugavegi 51 • s: 552 2201
SUMAR 2007
KOMIÐ
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur