Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 32

Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 32
Íslendingar verða sífellt áhugasamari um eðalkaffi og allt sem því fylgir. Fyrir um það bil þremur árum opnaði verslunin Te og kaffi eitt af útibúum sínum í Smáralindinni. Þar er að finna sitthvað sem kaffi- og teunnendur kunna vel að meta, meðal annars margs konar bolla, kaffivélar, skeiðar, glös, mjólkur- könnur og annað sem fylgir kaffi- og tedrykkju, svo ekki sé minnst á sjálft kaffið og teið. Kaffiáhugi Íslendinga hefur aukist svo um munar á undanförn- um fimm til tíu árum og nú dugar ekki bara að hella upp á í gömlum sokk eins og tíðkaðist hér áður. Margir hafa fjárfest í fínustu kaffivélum sem mala beint ofan í hvern bolla og kaffið sjálft má ekki vera nein afgangsafurð. Elísabet Th. Stefánsdóttir, versl- unarstýra í Te og kaffi, hefur tekið eftir þessum aukna áhuga landans á kaffi og segir afgreiðslufólk verða að vera vel upplýst til að geta svarað fjölbreyttum spurn- ingum kaffiáhugafólks. Hún segir Íslendinga einnig hafa fengið auk- inn áhuga á tedrykkju, enda sé mörgum umhugað um heilsuna. „Svart, hreint te, ýmis bragðbætt te og margs konar græn te eru alltaf að verða vinsælli en svo er rauðrunnate líka mjög vinsælt, enda fullt af járni og steinefnum. Margir eru að reyna að hætta að drekka kók og kaffi og vilja þá fá eitthvað heilsusamlegra og betra í staðinn,“ segir kaffi- og tesér- fræðingurinn Elísabet að lokum. Bara hálfan bolla takk Skólavörðustíg 21 Sími 551 4050 • Reykjavík FEBRÚARÚTSALA Handklæði, dúkar, sængurfatnaður og fleira • 30 - 50% afsláttur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.