Fréttablaðið - 22.02.2007, Qupperneq 34
Margt fallegt fæst til heimilisnota í versluninni Textíl á
Lokastíg 28.
Drottinn blessi heimilið á hlýlegri ábreiðu,
diskaþurrkur og pottaleppar með uppskrift að
íslenskri kjötsúpu og fleira þjóðlegt má finna í
versluninni Textíl sem nú er nýflutt af Baróns-
stígnum yfir á Lokastíg 28. Innanbúðar stendur
Hrönn Vilhelmsdóttir textíllistamaður sem
meðal annars er þekkt fyrir vöggusett sín,
smekki og púða. Hún og maður hennar, Þórólfur
Antonsson, hafa 16 síðustu árin tekið af og til
myndir út um eldhúsgluggann sinn af bakhlið
Hallgrímskirkju í hinum ýmsu litbrigðum, veðr-
um og birtuskilyrðum. Nú hafa þau flutt sig um
set og nýtt sjónarhorn blasir við sem er framhlið
kirkjunnar. Hallgrímskirkja skreytir því margt í
búðinni enda segir Hrönn kirkjuna sérstakt heill-
atákn sem margir sækist eftir að eiga á mynd.
Leifur heppni er líka nágranni þeirra hjóna og
styttan af honum veitir innblástur í ýmis verk
þeirra. Úrval minjagripa mun aukast verulega
þegar líður nær vori að sögn Hrannar. „Við
ætlum að vera með listmuni eftir fleiri lista-
menn en okkur. Olíumálverk, textíl, grafík-
listaverk og glermuni. Við erum bara rétt að
byrja hér á Lokastígnum,“ segir hún.
Þó að sólin sé nú sífellt lengur á lofti þykir flestum gott að kúra
í sófanum eftir erfiðan vinnudag.
Mörgum þykir fátt notalegra en að leggjast upp í sófa eftir að búið
er að koma börnum í háttinn og ganga frá eftir kvöldmatinn. Til að
gera stemninguna enn betri er undursamlegt að skella sér í náttbux-
ur, kveikja á ilmkertum, setja góðan disk í spilarann eða taka góða
bók í hönd og breiða svo yfir sig mjúkt og fallegt teppi til að kúra
undir. Sumir vilja kannski heldur horfa á sjón-
varpið, drekka te og skoða vefsíður eða spila
við makann eða vini. Hvernig sem þú kýst að
slaka á þá er víst að það tekst betur
með tærnar undir mjúku teppi.
Kúrt á kósíkvöldi
Hallgrímskirkja er
heillatákn Textíls
Allt að
70%
afsláttur
Z-brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 108 Reykjavík S.525 8200
F U L L M Ó T A Ð U
P E R S Ó N U L E I K A
H E I M I L I S I N S
H Ö N N U N - R Á Ð G J Ö F - Þ J Ó N U S T A
Hafnarfjörður 2006
Síðumúla 35 108 Reykjavík Sími 517 0200 heild@heild.is www.heild.is