Fréttablaðið - 22.02.2007, Side 48

Fréttablaðið - 22.02.2007, Side 48
Nýsköpun og sprotafyr-irtæki eru grunnskil- yrði í framþróun atvinnu- lífsins. En því má ekki gleyma að stöðug og virk nýsköpun er forsenda batnandi lífskjara og gróandi þjóðlífs. Þannig verða sprotafyrirtækin grundvallarþáttur í allri samfé- lagslegri stefnumótun. Nýsköpun og sprotafyrirtæki verða að styðjast við öflugan og afkastamikinn fræðsluatvinnuveg sem býður jöfnum höndum fræðslu, rannsóknir, ráðgjöf og vísindalegar afurðir. Fræðsluat- vinnuvegurinn er undirstöðuat- vinnuvegur allra annarra atvinnu- vega á 21. öldinni og grundvöllur undir samkeppnishæfu atvinnulífi og gróskumiklu þjóðlífi og menningarlífi sem býður komandi kynslóðum lífvænlega kosti og glæsileg lífstækifæri. Þrátt fyrir veigamikinn stuðning stjórnvalda við sprotafyr- irtæki og nýsköpun atvinnulífsins er ýmissa lagfæringa þörf – og er það verkefni sem aldrei verður lokið. Augljósasti vandinn sem við er að fást um þessar mundir er að ekki hefur náðst að ná endum saman á milli opinberra fjárfram- laga og aðkomu framtaksfjárfesta. Þessi ósamfella í fjármögnun nýsköpunar er í daglegu tali nefnd nýsköpunargjáin – en það orð lýsir vandanum allvel. Þessi vandi kallar á aðgerðir allra aðila, jafnt stjórnvalda sem annarra. Úrlausn felst annars vegar í auknum fjárframlögum til þessa málaflokks, og hins vegar í betri samræmingu til að tryggja nauðsynlega samfellu. Það þarf að efla Tækniþróunar- sjóð áfram og einnig Nýsköpunar- sjóð atvinnulífsins. Það þarf áfram að þróa skattaumhverfi sprotafyr- irtækja og nýsköpunar í því skyni að tryggja sem best þroskunar- og framþróunartækifæri þeirra. Brátt verður þeim áfanga náð að orkumannvirkin við Kára- hnjúka fara að skila arði til þjóðarbúsins, og í væntanlegri skipan orkumála með heildaráætlun um nýtingu og vernd náttúruauðlind- anna er ráð fyrir því gert að gjald verði jafnan tekið fyrir leyfi og nýtingu. Með slíku auðlindagjaldi skapast tækifæri til að byggja upp á einhverju tímabili auðlindasjóð sem þjóðin getur notað til sérstakra þjóðþrifaverkefna. Alaskabúar hafa þegar góða reynslu á þessu sviði, en þeir endurgreiða líka öllum almenn- ingi úr slíkum auðlindasjóði þegar arðstaða hans leyfir. Mikilvægir áfangar hafa náðst á síðustu árum. Auk stórfram- kvæmdanna má nefna að fjár- málakerfi og bankakerfi þjóðar- innar hefur tekið stakkaskiptum og útrás íslenskra fyrirtækja hafin. Mikilvæg reynsla hefur á sama tímabili skapast við störf Vísinda- og tækniráðs og sjóðir á vegum þess hafa verið efldir. Á þessum sama tíma hefur orðið hér sannkölluð háskólabylt- ing í eflingu og vexti fræðslu og rannsókna. Að mínu mati er nú framundan að auka enn fjöl- breytni háskólastigsins með stofnun starfsmenntaháskóla. Þá á ég við stofnun sem á Norður- löndum kallast „yrkeshögskola“, meðal enskumælandi þjóða „technical college“ og Þjóðverjar kalla „Berufsakademie“ og „Fachhochschule“. Starfsmennta- háskóli hefur miklum hlutverkum að gegna við nýsköpun og sprotastarfsemi. Nú er einnig framundan að taka sambærileg framfaraskref varðandi umhverfi og möguleika sprotafyrirtækja og annarrar nýsköpunarstarfsemi í landinu. Þetta er mjög mikilvægt mál sem ekki þolir langa bið. Framtíðarsýn um gróandi þjóðlíf byggist á öflugri og viðvarandi nýsköpun ásamt stöðugri mennta- og vísindasókn í fylkingarbrjósti. Þjóðarmetnaður Íslendinga verður m.a. að birtast einmitt í þessu. Höfundur er formaður Framsókn- arflokksins. Mikilvægi sprota og nýsköpunar Illugi Gunnarsson skrifar grein í Frétta-blaðið sl. sunnudag. Greinin er skrifuð útfrá þeirri sannfæringu hans að séreign á auðlindum sé lausn allra vandamála og skili þegar upp er staðið mestum arði til allra, bæði útgerðarinnar í landinu og samfélags- ins í heild. Rökstuðningur Illuga fyrir þess- ari sannfæringu hans er fólginn í almenn- um staðhæfingum um að menn eða fyrirtæki nýti best viðkomandi auðlindir ef þeir hafi séreignarrétt á þeim. Þegar þessi rök eru skoðuð þarf að hafa það í huga að útgerðarmenn á Íslandi hafa með svoköll- uðu frjálsu framsali veiðiréttar ígildi eignarhalds á tiltekinni prósentu af viðkomandi fiskistofni. Fyrir- komulagið felur það hins vegar í sér að hver fiski- stofn sem heild er í sameign þeirra. Aflahlutdeildin markar svo hve mikið hver þeirra fær að veiða úr sameigninni. Útgerðarmenn eiga ekki skilgreindar hjarðir á veiðislóðinni. Þess vegna keppa þeir sín á milli um að ná verðmætustu fiskunum úr hjörðinni. Þessi staðreynd gerir almennar fullyrðingar Illuga og annarra skoðanabræðra hans um kosti séreignar á veiðirétti marklausar. Þessi vandi, að útgerðar- menn berjast hver sem betur getur um verðmæt- ustu fiskana, er óhjákvæmilegur galli á aflamarks- kerfinu og veldur brottkasti og vondri umgengni um veiðislóðir. Við þessu er brugðist með gríðarlegu eftirliti og hörðum viðurlögum stjórnvalda en því miður er árangur þess eftirlits ekki góður. Ef rök Ill- uga hefðu einhverja innistæðu væri enginn slíkur vandi á ferðinni. En reynslan hefur afsannað þau enda er ekki um eiginlega séreign að ræða svo það var ekki við því að búast. Gallar aflamarkskerfisins til fiskveiðistjórnunar eru fólgnir í kerfinu sjálfu en hafa ekkert með fyrirkomulag eignarhaldsins að gera. Aflamarkskerfið stendur hvorki eða fellur með séreign á veiðirétti. Því verður hins vegar að stjórna af festu og byggja reglur þar um á grunni bestu þekkingar með fullu tilliti til þeirrar praktísku reynslu sem fæst af einstökum stjórnunarþáttum. Það sama á hér við, hvernig sem eignarhaldinu á veiðirétti er háttað. Þó að aflamarkskerfið hafi ýmsa galla og ekki séu góð rök fyrir því að beita því við allar veiðar telur Samfylkingin að ekki hafi komið fram betri leið til að stjórna sókn í þá fiskistofna sem mest er sótt í. Samfylkingin hefur þess vegna byggt tillögur sínar á því að stuðst verði áfram við aflamarkskerf- ið. Markmið tillagnanna er að þjóðareign á auðlind- um sjávar verði ótvíræð og meðferð aflaheimilda í samræmi við meðferð annarra auðlinda í þjóðar- eign. Veiðiréttindi verði skýrt afmörkuð og tímabund- in. Útgerðarmönnum verði tryggt fullt jafnræði til úthlutunar veiðiréttar. Breytingarnar tryggi útgerðinni starfsgrundvöll til framtíðar og þann frið sem forystumenn hennar og þjóðin hafa kallað eftir. Breytingin valdi sem minnstri röskun í greininni og íþyngi útgerð í landinu ekki um of fjárhagslega. Þessum markmiðum er öllum hægt að ná á grund- velli aflamarkskerfisins og tryggja jafnframt sam- eign þjóðarinnar á auðlindum sjávar. Til þess eru fleiri en ein leið fær og Samfylkingin hefur lýst sig reiðubúna til víðtæks samstarfs við útfærslu þeirra. Höfundur er alþingismaður. Aflamarkskerfi og veiðiréttur Hagstjórn og háir vextir Hvers vegna eru vextir á Íslandi svo miklu hærri en í þeim löndum sem við berum okkur saman við? Ástæðurnar eru nokkr- ar; gengisáhætta, fákeppni og þensla í hagkerfinu. Skoðum nánar þátt þenslunnar og hagstjórnarinnar. Seðlabank- inn hefur hækkað vexti sína 16 sinnum á tveimur og hálfu ári í viðleitni sinni til að ná niður verð- bólgu. Í upphafi hagsveiflunnar voru stýrivextir 5,3%, en eru nú 14,25%. Þeir hafa því tæplega þre- faldast, án þess þó að verðbólgumarkmiðið hafi náðst. Til samanburðar má geta þess að stýrivextir evrópska Seðlabankans eru 3,5%. Hlutverk hagstjórnarinnar er að bæta velferð almennings og starfsskilyrði fyrirtækja með því að tryggja jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Hlutverk ríkisvaldsins á þenslutímum er að skapa svigrúm í hagkerfinu með því að beita almennu aðhaldi í rík- isútgjöldunum, draga úr fjárfestingum og tryggja með skynsamlegum ákvörðunum að tekjuhlið ríkis- fjármálanna vinni með annarri hagstjórn. Seðla- bankinn ákvarðar stýrivexti í ljósi verðbólguvænt- inga og spennunnar í hagkerfinu. Sérfræðingar Hagfræðistofnunar bentu á það í ársskýrslu stofnunarinnar 2005 að stýrivextir gætu verið lægri, ef ríkisútgjöld hefðu vaxið minna eða tekjurnar meira. Því er ljóst að með auknu aðhaldi í ríkisútgjöldum og skynsamlegri tímasetningu skattalækkana væru stýrivextir hér lægri en þeir eru nú og verðbólgan líklega minni. En hvernig stendur á því að stjórnvöld hafa ekki beitt sér fyrir skynsamlegri hagstjórn? Skamm- tímasjónarmið stjórnmálamanna hafa leitt til þess að ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa ekki verið samstiga í hagstjórninni. Ákvarðanir ríkisstjórnar- innar um skattalækkanir, sem nema tugum millj- arða króna á ári í toppi hagsveiflunnar, juku óstöð- ugleika og ýttu undir verðbólgu. Það sama má segja um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka láns- hlutfall íbúðalána í miðri uppsveiflu. Vissulega var um ánægjulegar breytingar að ræða, sem til lengri tíma hafa jákvæð áhrif, en tímasetningin var alröng. Það voru líka gerð mistök í stjórn peningamála. Ákvarðanir Seðlabankans í febrúar 2003 um að lækka bindiskyldu og styrkja gjaldeyrisforðann juku peninga- magn í umferð. Sú aðgerð ýtti undir útlánaþenslu og verðbólgu. Miðað við þau mistök sem gerð hafa verið í stjórn ríkisfjár- málanna hefði bankinn þurft að hækka vexti sína meira og hrað- ar í byrjun hagsveiflunnar. Hefði bankinn beitt sér meira þá, væru vextirnir lægri í dag. Í raun hafa stýrivaxtahækkanir Seðlabank- ans elt verðbólguvæntingar en ekki tekist að hemja þær. Líka má velta því fyrir sér hvort stýrivaxtahækk- anir Seðlabankans slái á þenslu í hagkerfinu eins og þeim er ætlað að gera. Hækkun þeirra dregur úr eftirspurn eftir lánsfé innanlands, eykur sparnað og styrkir gengið til skamms tíma. Mótsögnin er að sterkara gengi lækkar innflutningsverð og slær þannig tímabundið á verðbólgu en eykur einka- neyslu enn frekar. Þá stendur eftir að vaxtatæki Seðlabankans styrktu krónuna langt umfram það sem efnahagslegar forsendur gáfu tilefni til. Vaxta- hækkanir Seðlabankans hafa ennfremur haft þau áhrif, að hvatinn til að taka erlend lán hefur aukist mikið. Niðurstaðan undanfarin ár hefur því orðið mikil aukning í neyslu, sögulegur viðskiptahalli, miklar gengissveiflur og verðbólga langt umfram verðbólgumarkmið. Minni fyrirtæki og heimilin líða sérstaklega fyrir þessa háu vexti en stærri fyrirtæki og opin- berir aðilar sækja sér lánsfé til útlanda. Sem dæmi má nefna að fyrirtæki skulduðu um 115 milljarða í yfirdráttarlán í desember og heimilin í landinu 67 milljarða. Yfirdráttarvextir af slíkum lánum á ári eru um 40 milljarðar. Þá eru önnur lán ótalin. Því er óhætt að segja að vaxtahækkanir Seðlabankans séu „þensluskattur” sem lagður hefur verið á heimilin og minni fyrirtæki. Hár fjármagnskostnaður og miklar gengissveifl- ur veikja atvinnulífið til langs tíma og skekkja sam- keppnisstöðu fyrirtækja. Sterkt gengi styrkir inn- flutning en veikir útflutning. Þetta er sérstaklega bagalegt fyrir fyrirtæki í útflutnings- og sam- keppnisgreinunum og einnig sprota- og hátækni- fyrirtæki sem eru að byggja upp starfsemi sína. Skammtímaáhrifin eru lægra innflutningsverðlag en langtímaáhrifin eru þau að verðmæt störf flytj- ast úr landi. Hvaða lærdóm getum við dregið af hagstjórnar- mistökum undanfarinna ára? Taka þarf hagstjórn- ina miklu fastari tökum. Jafnvægi í efnahagsmál- um er forsenda efnahagslegra framfara. Við byggjum ekki upp sterkt atvinnulíf sem skilar þjóð- inni góðum störfum, nema við hverfum frá þeirri „rússíbanahagstjórn” sem við höfum búið við und- anfarin ár. Að öðrum kosti festast skammtímasjón- armið og efnahagslegur óstöðugleiki í sessi. Við slíkar aðstæður verður erfitt að gera kjarasamn- inga til lengri tíma. Við byggjum ekki upp sterkt atvinnulíf sem skilar þjóðinni góðum störfum, nema við hverfum frá þeirri „rússíbanahagstjórn” sem við höfum búið við undanfarin ár. Markmið tillagnanna er að þjóðareign á auðlindum sjávar verði ótvíræð og meðferð aflaheimilda í samræmi við meðferð annarra auðlinda í þjóðareign Áforsíðu Fréttablaðsins miðvikudaginn 7. febrú- ar var fjallað um sérstakt ofbeldismál. Forsagan er sú að tveir menn buðu þremur stúlkum heim eftir að hafa hitt þær á skemmtistað. Annar mannanna og ein stúlknanna fóru að láta vel hvort að öðru en kom þá í ljós að stúlkan var í raun drengur. Við þá uppgötvun trylltist maðurinn og tók gestinn kverkataki. Gestin- um tókst hins vegar að slá hann í höfuðið og kalla á hjálp. Í síðasta tölublaði Séð og heyrt er sama máli slegið upp á forsíðu. Í opnuviðtali eru síðan birtar myndir af manninum með skurð á enninu og sorgarsvip þar sem hann spilar sig sem fórnarlamb þessa harmleiks. Hann sýnir enga iðrun yfir að hafa ráðist á aðra manneskju og reynt að kyrkja hana og viðurkennir að hann hefði líklega drepið hana ef hann hefði ekki verið truflaður við verkn- aðinn. Hann endar svo viðtalið með því að spyrja: „Hvað hefðuð þið gert í minni stöðu?“ Hið raunverulega fórnarlamb í þessari sögu er auðvitað stúlkan, eða drengurinn sem vill vera stúlka; það er ekki refsivert að segja ekki frá því að líffræðilegt kyn manns sé annað en félagslegt. Hvernig sem litið er á málið er það aftur á móti glæpur að ráðast á aðra manneskju með ofbeldi og maðurinn hefur í raun játað á sig morðtilraun eða stórfellda líkamsárás fyrir framan alþjóð. Allir geta skilið að honum bregði við að stúlkan hafi í raun verið drengur en það réttlætir ekki ofbeldi. Það sem ég tel einnig áhyggjuefni er sú yfirlýsing mannsins að lögregluþjón- arnir sem tóku af honum skýrslu hafi sýnt mikinn skilning á stöðu hans og ýtt undir þá skoðun mannsins að það sé skiljanlegt að hann hafi tryllst í þessari stöðu. Lögreglan, sem full- trúi hins opinbera, á að gæta hlut- leysis og vil ég í raun ganga út frá því að sú hafi verið raunin í þetta sinn og skilningur mannsins hafi einfaldlega verið rangur. Umfjöllun um málið í Séð og heyrt er einnig allt annað en eðlileg. Þar er fjallað um ofbeldisglæp á léttúðugan hátt og málið sett upp eins og eðlilegt sé að berja frá sér í aðstæðum sem þessum, jafnvel drepa; „manndómur“ mannsins hafi beðið hnekki og því sé eðlilegt að hann beiti ofbeldi. Við eigum að koma fram af virðingu við alla með- limi samfélagsins, án tillits til kyns og kynhneigðar eða annarra eigin- leika. Ofbeldi gegn einum þjóðfé- lagshóp á ekki að vera léttvægara en gagnvart öðrum. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins í dómskerf- inu og vonast ég til að það hljóti sömu meðferð og önnur sambærileg ofbeldismál. Höfundur er lögfræðingur og vinnur að rannsókn á réttarstöðu fólks með kynáttunarvanda hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands. Hver er fórnarlamb?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.