Fréttablaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 36
Nýjasta fimm dyra útgáfa Ren-
ault Mégane kom á markaðinn
síðasta haust. Bíllinn er ein-
staklega lipur og veggripið er
stórgott. Líkt og Renault er von
og vísa er bíllinn afar öruggur,
en hann hlaut fimm stjörnur í
árekstrarprófum EuroNCAP.
Bíllinn ætti að falla vel í kram-
ið hjá fáguðum karlmönnum og
módernískum konum.
Nýjasta útgáfan er svokölluð
„make over“ útgáfa, eða andlits-
lyftingar útgáfa sem þýðir að bíll-
inn hefur fyrst og fremst feng-
ið betra útlit. Meðal annars eru nú
speglar og hurðarhúnar eru samlit-
ir bílnum og í hann hefur verið sett
leðurstýri sem er með þeim liprari
sem ég hef snert fram til þessa.
Í fimm dyra Renault Mégane eru
margir skemmtilegir fídusar. Einn
þeirra er sá að ekki þarf að notast
við lykil til að koma honum í gang
heldur er hann ræstur með einum
einföldum takka sem á stendur
start/stop og til að takkinn virki
stingur maður dyraopnaranum í
þar til gerða rauf.
Þessi Renault er, líkt og aðrir
Renault-bílar, útbúinn litlu hand-
fangi við stýrið, en með því má
meðal annars hækka og lækka í
hljómflutningstækjum og kanna
hluti eins og ekinn kílómetrafjölda,
hversu margir kílómetrar eru í að
tankurinn klárist og hversu miklu
bíllinn er að eyða akkúrat þá stund-
ina. Þetta er ótvíræður kostur.
Að aka bílnum er svo saga út
af fyrir sig. Liprari bíl í þessum
verðflokki er vart hægt að finna
en veggrip er sérlega gott og er
hann bæði snöggur upp og niður.
Stýrið er sérlega létt, hugsanlega
svo létt að mörgum gæti þótt það
skorta meira viðnám, en fyrir þá
sem kunna að fara með léttleik-
ann er þetta kærkomið. Ef Renault
Mégane væri dýr myndi ég helst
líkja honum við ársgamlan síams-
kött sem hefur öðlast gott vald á
hreyfingum sínum en er um leið
liprari og léttari en færasti dans-
ari.
Rými bílsins er ágætt. Það var
gott að koma í hann bílstól og dóttir
mín hafði gott útsýni, en fótarými
fyrir langlappa er ekki mikið í
aftursætinu. Skottið er heldur ekki
stórt, en upp á móti því vegur að
hægt er að leggja niður sætin og
stækka skottið um leið.
Ef ég þyrfti að kaupa mér bíl á
morgun væri ekki ólíklegt að ég
fetaði í fótspor forfeðranna og
fjárfesti í Renault, eða Runó eins
og dóttir mín tveggja ára kallar
þennan uppáhaldsbíl sinn.
Það að hann sé franskur er út
af fyrir sig kostur, en fyrir utan
það er þetta bæði öruggur, smart
og skemmtilegur bíll, sem fágað-
ir karlmenn og flestar módernísk-
ar konur kunna vel að meta.
Lipur og léttur Mégane
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
Sími 564 0400
BÍLARAF
Auðbrekku 20,
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
FJAÐRIR OG GORMAR
Í FLESTAR GERÐIR
JEPPA
Japan/U.S.A.
Höfum til afhendingar strax
Bílexport ehf.
www.bilexport.dk • boas@bilexport.dk
Upplýsingar gefur Bóas s. 0049 1752711783
eða Eðvald s.896 6456
MAN 35.480 8x6HBB EURO 4
Mercedes Benz 2660 EURO 5
MAN 26.480 6x4 BLS EURO 4