Fréttablaðið - 05.04.2007, Qupperneq 2
Björn Bjarnason, dóms-
og kirkjumálaráðherra, er einn
fjögurra ráðherra sem ekki hafa
kreditkort ríkisins á sínu nafni.
„Ég hef alla mína ráðherra-
tíð komist af án greiðslukorts
á vegum ríkisins og aldrei leitt
hugann að því að óska eftir slíku
korti,“ segir hann.
Athygli vekur að iðnaðar- og
viðskiptaráðherra hefur ekki
kreditkort þó að fyrirrennarar
hans hafi haft það. „Ég hef aldrei
kært mig um það. Ég vil hafa öll
fjármál einföld og skýr og hef
ekki haft neina þörf fyrir annað
kort. Ég er gamall og íhaldsmaður
í peningamálum. Þegar ég hef
lagt út í kostnað sem ráðuneytið
hefur átt að borga hef ég lagt út
fyrir því og rukkað ráðuneytið.
Það ruglar bara að hafa tvö kredit-
kort og maður lendir í vandræð-
um,“ segir Jón Sigurðsson, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra.
Guðmundur B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu, segir að ráðuneytið
borgi ekki dagpeninga vegna
ferðalaga innanlands heldur bara
kostnað. Þess vegna séu ráðherra
og nokkrir embættismenn með
kreditkort til einföldunar.
„Þessum kortum er alls ekki
ætlað að vera til persónulegra
innkaupa og það hefur ekkert slíkt
komið upp hjá okkur. Ef um slíkt
væri að ræða geri ég fastlega ráð
fyrir því að Ríkisendurskoðun
myndi láta til sín taka. Það hafa
engin slík tilvik komið upp,“ segir
Guðmundur.
Vill einföld og skýr fjármál
Nyhedsavisen, sem
gefið er út í Danmörku af 365
Media Scandinavia, hefur á
undanförnum mánuðum bætt
stöðu sína verulega á markaðnum,
á sama tíma og önnur blöð hafa
þurft að draga saman seglin.
Í Berlingske Tidende er greint
frá því að bjartsýni ríki nú
meðal aðstandenda Nyhedsavis-
en á að markmið um markaðs-
hlutdeild og rekstrarforsend-
ur náist. Með sama áframhaldi
sé þess jafnvel skammt að bíða
að reksturinn standi undir sér,
sem hann hefur ekki gert þetta
fyrsta hálfa ár síðan blaðið hóf
göngu sína. Eftir Gunnari Smára
Egilssyni, forstjóra útgáfusjóðs-
ins Dagsbrún Media, er haft að
haldi lesendum blaðsins áfram
að fjölga með svipuðum hraða
og undanfarið sé „vel hugsanlegt
að það gerist fyrir árið 2010“ að
reksturinn komist yfir núllið. Al-
mennt séð reikni útgefendurnir
með að blaðið fari að skila hagn-
aði á næstu 3-4 árum.
Þá er í Berlingske Tidende
einnig sagt frá útrás Dagsbrún
Media til Bandaríkjanna. Hún
hefst hinn 17. apríl með fríblað-
inu „Boston NOW“. Því verður
til að byrja með dreift eins og
öðrum fríblöðum í borginni, þ.e.
á götum og lestarstöðvum. Eftir
Gunnari Smára er haft að dag-
blaðamarkaðurinn vestanhafs sé
„fjórum til sex árum á eftir þró-
uninni í Evrópu“ hvað hlutdeild
fríblaða varðar. Þetta skapi sókn-
arfæri og nú sé fyrirtækið að
skoða möguleika á að gefa út slík
blöð í tíu öðrum borgum í Banda-
ríkjunum.
Nyhedsavisen í góðri sókn
Straumur ferðalanga
liggur á Ísafjörð og Akureyri um
páskana, samkvæmt upplýsing-
um frá Flugfélagi Íslands. Fjórar
vélar fóru til Ísafjarðar í gær,
aðrar fjórar fara í dag og þrjár á
föstudag. Fullt er í allar vélar til
Ísafjarðar og Akureyrar á föstu-
daginn langa.
Meginástæðan fyrir vinsæld-
um Ísafjarðar um páskana er
tónlistarhátíðin Aldrei fór ég
suður sem þar verður haldin
næstu daga. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir. Meðal lista-
manna sem troða upp á hátíðinni
eru Blonde Redhead, Ham, Lay
Low og Mínus.
„Við höfum bætt við nokkrum
vélum núna fyrir páskana,“ segir
Inga Birna Ragnarsdóttir, sölu-
og markaðsstjóri Flugfélags Ís-
lands. „Straumurinn liggur til
skíðasvæðanna, bæði á Akur-
eyri og Ísafirði, og við finnum að
tónlistarhátíðin á Ísafirði hefur
fest sig í sessi,“ segir hún.
Á Akureyri verður páskaævin-
týri með tilheyrandi skemmtun-
um og uppákomum. Hlíðarfjall
verður einnig opið alla páskana
fyrir þá sem vilja bregða sér á
skíði eða snjóbretti.
Kristín Lilja Kjartansdótt-
ir, deildarstjóri umferðarþjón-
ustu hjá Vegagerðinni, segir að
flestir þjóðvegir eigi að vera vel
færir og ekki sé mikið um fram-
kvæmdir.
„Það er verið að vinna við veg-
inn í Djúpinu svo þeir sem fara til
Ísafjarðar þurfa að fara varlega.
Þær framkvæmdir ættu þó ekki
að tefja fyrir,“ segir Kristín. Hún
hvetur fólk til þess að leita sér
upplýsinga um ástand og færð
á vegum áður en lagt er af stað,
enda allra veðra von á þessum
árstíma.
Í tilefni af ferðagleði landans
um páskana vekur Landsbjörg at-
hygli á góðum ferðareglum sem
rétt er að hafa í huga.
Þær segja meðal annars að
ef ferðast sé um láglendið skuli
fylgjast vel með veðurspá, stilla
aksturshraða miðað við aðstæður
og hafa beltin spennt. Sé ferðast
um hálendið gildi sömu reglur, en
einnig skuli gera ferðaáætlun og
taka með sjúkragögn og hlífðar-
fatnað.
Allir fara vestur á
Aldrei fór ég suður
Ferðamannastraumurinn um páskana liggur til Ísafjarðar, þar sem rokkhátíðin
Aldrei fór ég suður fer fram. Páskaævintýri á Akureyri trekkir einnig að. Lands-
björg minnir meðal annars á aksturshraða og beltanotkun í tilefni páskanna.
Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra segir það aug-
ljóst að hann noti kreditkort ráðu-
neytisins, sem er á hans nafni, til
að greiða þegar útgjöldin eru aug-
ljóslega á vegum ráðuneytisins.
Guðni segist nota kortið til
dæmis til að greiða fyrir ferða-
lög, gistingu og mat á ferðalög-
um innanlands og hótelgistingu
erlendis, leigu á fundasölum og
veitingar á fundum sem ráðherr-
ann heldur um landbúnaðarmál
hér heima.
„Ég borga ekki fyrir neitt nema
það sem er á kostnað ráðuneytis-
ins. Ég nota það ekki fyrir mig
prívat,“ segir hann.
Notar kortið
ekki prívat
Hópur uppreisnarmanna
í Írak, sem hefur þýsk mæðgin í
haldi, hefur gefið þýskum stjórn-
völdum tíu daga viðbótarfrest til
að kalla hermenn sína heim frá
Afganistan ella verði gíslarnir
drepnir. Hópurinn birti á þriðju-
dag myndband af þeim grátbiðja
um hjálp.
Hannelore Marianne Krause,
61 árs, brast ítrekað í grát á
myndbandinu og bað fjölskyldu
sína að þrýsta á stjórnvöld. Full-
orðinn sonur hennar, Sinan, sagði
ekkert en sat og grét.
Uppreisnarmennirnir höfðu
áður gefið frest til 20. mars, sem
rann út án þess að orðið yrði við
kröfum þeirra. Þýsk stjórnvöld
sögðust vera að vinna í málinu, án
þess að gefa neitt nánar upp.
Þýsk mæðgin í
gíslingu í Írak
Dorrit Mouss-
aieff forsetafrú er enn að jafna
sig á skíðaslysinu í Aspen í
Bandaríkjun-
um. „Hún er
á góðum bata-
vegi og er í
góðu sambandi
við lækna
sína,“ að sögn
Örnólfs Thors-
sonar forseta-
ritara.
Örnólfur vill
ekki tjá sig
um hvort forsetafrúin dvelji á
sjúkrahúsi eða ekki.
Dorrit slasaðist þriðjudag-
inn 27. mars. Lærleggur hennar
brotnaði „og fleiri bein“.
Líðan Dorritar, sem þykir fær
skíðamanneskja, er góð eftir
atvikum og er hún væntanleg
aftur til Íslands á næstu dögum.
Er í sambandi
við læknana
Mörður, er þetta dýrt spaug?
Geir H. Haarde for-
sætisráðherra verður sæmdur
heiðursdoktorsnafnbót við há-
skólann í Minnesota í Bandaríkj-
unum. Hann lauk meistaraprófi í
hagfræði frá skólanum árið 1977.
Að því er kemur fram í frétta-
tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu verður nafnbótin veitt
við sérstaka athöfn í Reykjavík
hinn 24. maí næstkomandi.
Háskólinn í Minnesota er
fjórði fjölmennasti háskólinn í
Bandaríkjunum með yfir fimm-
tíu þúsund nemendur.
Hann var stofnsettur árið
1851.
Geir H. Haarde
heiðursdoktor
Framsóknarflokk-
urinn tapar tveimur þriðju af
fylgi sínu í Norðausturkjör-
dæmi en Sjálfstæðisflokkur-
inn eykur fylgi sitt um tæp
níu prósent, samkvæmt skoð-
anakönnun sem Félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands gerði
fyrir fréttastofu Stöðvar 2.
Vinstri græn hækka um
átta prósent og Samfylkingin
bætir við sig tveimur prósent-
um. Íslandshreyfingin mælist
með tæplega sex prósenta
fylgi.
Framsókn tap-
ar í norðaustri
Björgunarsveitir á Norð-
vesturlandi voru ræstar út í gær
vegna fjögurra Breta sem hugð-
ust ganga á skíðum frá Ingólfs-
skála á Hveravöllum. Þeir voru
við Blöndu þar sem þeir komust
ekki af sjálfsdáðum yfir ána.
Í tilkynningu segir að menn-
irnir hafi ætlað að hafa sam-
band við Landsbjörg í fyrradag.
Þegar ekkert hafði heyrst í þeim
í gær var eftirgrennslan hafin.
Þeim var komið til byggða seinni-
partinn í gær.
Upplýsingafulltrúi Landsbjarg-
ar, Ólöf Snæhólm Baldursdóttir,
ítrekar að færð víða á landinu
sé mjög þung, jafnvel fyrir sér-
útbúna jeppa.
Bretum bjargað
af bakka Blöndu