Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 44
5. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið x-factor
Það tók Færeyinginn Jógvan Hansen ekki langan tíma að fá
íslensku þjóðina til að elska sig. Frábær söngur, viðkunnanleg
framkoma og glaðlegt brosið bræðir flesta og það kemur ekki á
óvart að hann sé kominn alla leið í úrslitin. Við skulum rifja upp
leið hans í úrslitaþáttinn.
Færeyski folinn
sem allir elska
Í undanúrslitaþættinum söng Jógvan
She Will Be Loved með Maroon 5 og
Are You Gonna Go My Way með Lenny
Kravitz.
Fyrst söng Jógvan It Must Have Been
Love með Roxette. Svo var komið að
aðalsprengjunni, Let Me Entertain You
með Robbie Williams, þar sem Færeying-
urinn fór hreinlega á kostum.
Jógvan tók Home með Michael Bublé.
„Nú sannaðirðu fyrir þjóðinni og mér
að þú ert poppstjarna,“ sagði Palli um
flutning Jógvans á U2-laginu Vertigo.
Jógvan söng To Be With You með Mr. Big
og gerði það vel.
Nú var það Will Young-lagið Leave Right
Now.
Að þessu sinni söng Jógvan Dancing in
the Moonlight. Einar sagði hann hafa
leyst vel úr öllum vandamálum.
Þarna söng hann Time After Time með Journey South. „Ég gæti hlustað á þessa rödd
á sunnudögum heima hjá mér og svo getum við gert allt hitt á virkum dögum,“ sagði
Palli.
Jógvan söng lagið Everlasting Love með
Jamie Cullum í fyrsta þættinum og fékk
ágætis dóma fyrir.
Jógvan þótti með betri söngvurum í
hópi Einars Bárðarsonar.
Frammistaða Jógvans hefur batnað
mikið frá því í fyrstu áheyrnarprufunum.
Höfum fengið frábærar móttökur,
og nú hafa Halla og Harpa
einnig gengið til liðs við okkur.
Verið velkomin til okkar
Tökum vel á móti öllum.
Tímapantanir í síma
553 7171.
Þórdís, Svava og Guðný
í Austurver, Háaleitisbraut 68.
Halla og Harpa