Fréttablaðið - 05.04.2007, Page 56
BLS. 14 | sirkus | 5. APRÍL 2007
„Ég verð á Rás 2 á
föstudaginn langa en
ætla að nota skírdag
til að undirbúa
æfmæli á
laugardaginn og
verð svo líklega á
Dillon um kvöldið.
Vonandi á ég svo
notalegan
hvíldardag á
páskadag en ég er
ekki viss um að ég fái
páskaegg enda fékk
ég næstum nóg af
þeim sem krakki þar
sem ég fékk oft páskaegg
í afmælisgjöf.“
Andrea Jónsdóttir
útvarpskona
„Ég ætla að reyna að
gera eitthvað skemmti-
legt, fara úr bílnum og
jafnvel á hestbak með
börnin. Það er að hlýna
svo það er um að gera að
vera úti, fara í langan
göngutúr og drekka í sig
náttúruna. Einnig ætla
ég að fela páskaegg-
in svo það verði
eitthvað meira úr
deginum en að sitja
með súkkulaðið fyrir
framan sjónvarpið.“
Nadia Katrín Banine
sjónvarpskona
„Ég ætla að slappa af
með fjöskyldunni, þetta
eru svona ömmu- og
afadagar. Svo verður
árshátíð hjá veiðifélaginu
mínu. Við ætlum að grilla
og fíflast saman. Annars
verða þetta rólegir dagar
en ég mun ekki gleyma
að borða páskaegg.“
Íris Eggertsdóttir
fatahönnuður
„Ég ætla að liggja uppi í
sófa og borða páskaegg
og láta mig dreyma um
að komast á skíði. Svo
ætla ég að halda upp á
hátíðina með tónleikum á
föstudaginn langa í
Seltjarnarneskirkju og á
mánudaginn í Laugarnes-
kirkju þar sem ég ætla að
syngja verk eftir
Pergolesi.“
María Jónsdóttir
söngkona
Við mælum með
„Ég mæli með hamingju. Hamingja er
ákvörðun! Maður bara ákveður að vera
hamingjusamur og reynir að leiða hjá sér
það sem truflar það. Ef maður getur ekki
leitt það hjá sér þá
reynir maður bara
að afgreiða það
sem fyrst. Og
heldur svo
áfram að vera
hamingjusamur.“
Anna Sigríður
Helgadóttir
söngkona
„Ég mæli með páskasvetti til að hreinsa
líkama og sál. Það er ótrúlega
endurnærandi að svitna vel og kyrja
indjánasöngva í góðum félagsskap hjá
þeim félögum í svitahofinu í Elliðarárdaln-
um.“
Þórey Sigþórsdóttir leikkona
„Ég mæli með
að fólk taki
sér klukkutíma
á dag yfir
páskana og
geri ekki neitt
og þá meina
ég ekki neitt.
Ekki horfa á
neitt, ekki
borða neitt,
ekki lesa neitt,
ekki hlusta á
neitt, ekki tala neitt. Vera bara eitt
með sjálfu sér í klukkutíma á dag og sjá
hvort það þolir við. Ef þetta tekst verður
kýrskýrt hvað þú þarft að gera, lesa,
horfa á og hlusta.“
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari
„Ég mæli með mynd sem heitir The
Secret. Hún fjallar meðal annars um
hvað við drögum að okkur í lífinu og
hvað það skiptir miklu máli að hugsa
jákvætt. Senda jákvæð skilaboð út í lífið
því það skilar sér til baka.“
Ingibjörg Stefánsdóttir leikkona
og jógakennari
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm.
Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettabladid.is,
Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@
frettabladid.is Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is,
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Rvk, sími 550 5000
Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir
550 5864 gretakaren@frett.is
sirkus
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
Þ etta byggir á því að maður sé gangandi auglýsing,“ segir
Aðalheiður Ýr Gestsdóttir, 28 ára
snjóbrettastelpa frá Ísafirði sem bjó í
Austurríki í fjögur ár og starfaði sem
snjóbrettaiðkandi. Veturinn 1999
mættu erlendir blaðamenn á
skíðasvæðið á Ísafirði þar sem þeir
sáu Aðalheiði renna sér í brekkunum.
„Blaðamennirnir komu mér á
byrjandasamning hjá Burton þar sem
ég var þangað til ég fékk atvinnu-
mannasamninga hjá fleiri fyrirtækj-
um. Mig langaði til að ferðast en
ætlaði aldrei að dvelja lengi, dvölin
ílengdist hins vegar eftir því sem
tækifærin urðu fleiri,“ segir Aðalheið-
ur sem hefur ferðast um allan
heiminn og keppt á bretti með
góðum árangri.
„Ég var alltaf á skíðum sem barn
heima á Ísafirði og elskaði að stökkva
á pöllum og renna mér,“ segir hún og
viðurkennir að hún þyki líklega
frekar frökk. „Ég er mikil keppnism-
anneskja og er svolítið óttalaus sem
hefur farið illa með mig og ég á
nokkur meiðsl að baki. Aðallega hef
ég slitið liðbönd í ökkla, rifbeins-
brotnað, rifið liðþófa í hné og slitið
krossband á skíðum þegar ég var að
reyna að sýna mig fyrir litlu skíða-
strákunum. Ég er svolítil ævintýra-
manneskja og lét oft bara vaða á
pallana,“ segir Aðalheiður sem er
komin heim og hætt að keppa. „Þetta
er komið gott. Mig langar að læra
meira og hef sótt um læknisfræði í
skóla í Ungverjalandi þar sem ég
komst inn og held þangað í haust.“
LEGGUR BRETTINU FYRIR LÆKNINN
Á TOPPI SNÆFELLSJÖKULS Flott mynd
af Aðalheiði þar sem hún er að renna
sér á Snæfellsjökli.
ATVINNUMAÐUR Aðalheiður Ýr vann við
að renna sér á bretti og sitja fyrir á
auglýsingum. SIRKUSMYND/HEIÐA
Hvað á að gera um páskana?
1. Hvað hét karakterinn sem Bessi
Bjarnason lék í þáttunum Fastir liðir
eins og venjulega?
2. Í hvaða borg gerast Nip/Tuck
þættirnir?
3. Hverjir eru eftir í
X-Factor?
4. Hvað eru þættir
Spaugstofunnar
orðnir margir?
5. Hvað heitir
breiðskífa Bang Gang
sem gefin hefur verið út í
Bandaríkjunum?
6. Hvað heitir hinn
nýi leikvangur
Liverpool sem
mun leysa hinn
fræga Anfield af
hólmi?
7. Af hvaða bíl
hafa verið smíðuð
flest eintök?
8. Hvaða ungi íslenski
leikari fékk nýlega inngöngu í hina
virtu leiklistardeild
Julliard-skólans í New
York?
9. Hvaða ár
fæddist Laddi?
10. Hver er
bæjarstjóri á
Akureyri?
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. Í ÞETTA SKIPTI KEPPIR MARTA
MARÍA JÓNASDÓTTIR, BLAÐAMAÐUR OG MAMMA, VIÐ JÓHANN HLÍÐAR HARÐAR-
SON, MARKAÐSSTJÓRA HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK.
Rétt svör:1. Hlölli afi. 2. Miami. 3. Jógvan og Hara. 4. 301. 5. Something Wrong. 6. Stanley Park.7. Toyota Corolla.
8.Þorvaldur Davíð Kristjánsson.9. 1947. 10. Sigrún Björk Jakobsdóttir.
Jóhann H. Harðarson
1. Dúddi.
2. LA.
3. Jógvan og Hara.
4. 301.
5. Veit ekki.
6. Anfield.
7. Volkswagen-bjalla.
8. Þorvaldur Davíð Kristjánsson
9. 1947.
10. Sigrún Júlíusdóttir.
Marta María Jónasdóttir
1. Hlölli.
2. Miami.
3. Hara og Jógvan.
4. 300.
5. Bang Gang.
6. Veit ekki.
7. Toyota Corolla.
8. Þorvaldur Davíð Kristjánsson.
9. 1947.
10. Sigrún Björk Jakobsdóttir.
Marta María sigrar með glæsibrag. Hún fékk sjö rétt svör á móti fjórum
réttum svörum Jóhanns. Jóhann Hlíðar skorar á Þór Jónsson í næstu viku sem
mun þá keppa við Mörtu Maríu.