Fréttablaðið - 05.04.2007, Side 70

Fréttablaðið - 05.04.2007, Side 70
Ég hef aldrei verið mein- lætamann- eskja en það er eitt- hvað við föstudaginn langa. Það er ekki svo langt síðan það mátti ekki einu sinni leggja kapal þann dag- inn án þess að gera lítið úr pínu Krists. Þetta var dagur sem í hugum barna bar nafn sitt með rentu og kannski eini dagurinn í dymbil- viku sem allir mundu út á hvað gekk. Sumarsólstöður voru ekki lengsti dagur ársins heldur þessi föstudagur þegar krakkar áttu helst að sitja kyrrir í skárri fötun- um sínum og íhuga píslir, kross- festingu og kærleika. Þessi dagur var í mínum barns- huga álíka þrúgaður af sektar- kennd og sænsku barnamyndirn- ar sem fjölluðu um krakka sem voru sendir út í búð til þess að kaupa mjólk en létu glepjast og keyptu gotterí í staðinn sem þau týndu svo ásamt húslyklum sínum og sjálfsvirðingunni. Það var iðu- lega Wagner-ópera eða Biblíu- mynd í Ríkissjónvarpinu á föstu- daginn langa og alltaf vont veður í minningunni – svona engan veg- inn vetur en samt ekki vor og allt- af var maður dauðslifandi feginn að þessi dagur var búinn og maður gat aftur farið að skammast sín fyrir eitthvað sem maður skildi. Ég held að krakkar viti minnst um út á hvað föstudagurinn langi gengur í trúarlegum skilningi og er ósköp fegin að helginni hefur verið aflétt og það má fara í keilu eða leggja kapal á morgun án þess að móðga neinn. Það er gott og blessað að píslir Krists hafi orðið til þess að allir krakkar í dag fá páskafrí í skólanum og flestir for- eldrar geta verið heima hjá þeim í nokkra daga. En ég sakna samt tilbreytingarinnar við föstudag- inn langalanga sem gerði alla aðra daga svo óheyrilega skemmtilegri í samanburði. Grasætan Sendu SMS JA SOF á 1900 og þú gætir bíómiða! Vinningar eru bíómiðar á Sunshine, DVD myndir, fullt af Pepsi og margt fleira! SMS LEIKUR Frá Danny Boyle, leikstjóra 28 Days Later og Trainspotting FRUMSÝND 4. APRÍL 9. HVER VINNUR! V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum.Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu. Leik lýkur 21. apríl 2007. ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!GEGGJAÐIRAUKA-VINNINGAR! SMSLEIKUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.