Fréttablaðið - 05.04.2007, Side 81
Enska úrvalsdeildin er
búin að skipa þriggja manna nefnd
sem mun skoða mál West Ham og
Argentínumannanna Carlos Tévez
og Javier Mascherano.
Nefndin mun hittast 26. og 27.
apríl og fara yfir gögn í málinu til
að komast að því hvort lög hafa
verið brotin þegar Argentínu-
mennirnir komu til West Ham.
Talið var að þeir væru að hluta
til í eigu Media Sports Invest-
ment en reglur deildarinnar
meina þriðja aðila að eiga í leik-
mönnum.
Ef dæmt yrði gegn West Ham
gæti félagið misst stig.
Mál West Ham
fara að skýrast
Heiner Brand, lands-
liðsþjálfari Þýskalands, segir að
framtíð sín hjá liðinu sé alls óráð-
in. Hann er afar ósáttur við þá
ákvörðun þýsku úrvalsdeildar-
félaganna að samþykkja ekki
reglur sem kveða á um takmark-
aðan fjölda erlendra leikmanna í
deildinni.
„Liðin hugsa bara um sig sjálf.
Þetta mun spila stórt hlutverk í
minni ákvörðun um framtíðina og
þýðir ekki að láta árangur liðsins
blinda mann,“ sagði Brand.
Framtíð Brands
í hættu
Fyrir tíu árum náði ungur
maður að nafni Tiger Woods ein-
hverjum merkilegasta árangri
íþróttasögunnar. Hann vann sitt
fyrsta stórmót þegar hann rúll-
aði upp Masters-mótinu. Þar með
varð hann fyrsti þeldökki kylf-
ingurinn til að vinna stórmót en
einnig sá yngsti. Þar að auki hafði
enginn unnið með jafn miklum
mun. Það var mál manna að með
sigrinum hefði Tiger komið sér
á kortið og breytt golfsögunni.
Hann er nú rétt rúmlega þrítug-
ur og hefur á þessum tíu árum
fjórum sinnum fagnað sigri á
Masters-mótinu.
„Það er eins og það sé óralangt
síðan,“ sagði Woods um þennan
merkilega áfanga. „Það er erfitt
að trúa því að tíu ár séu liðin.“
Tíu ár frá fyrsta
sigri Tigers
Síðustu fyrri leikirnir í
átta liða úrslitum Meistaradeild-
ar Evrópu fóru fram í gær. Roma
vann Man. Utd á Ítalíu, 2-1, og Val-
encia nældi í mikilvægt jafntefli
gegn Chelsea á Stamford Bridge.
Paul Scholes mætti eitthvað illa
stemmdur til leiks í Rómaborg
því hann braut hvað eftir annað
klaufalega af sér í upphafi leiks.
Hann slapp þó við spjald framan
af en dómaranum var nóg boðið
þegar hann tæklaði Svíann Wil-
helmsson aftan frá á miðlínu.
Glórulaust brot sem verðskuldaði
spjald.
Það dugði ekki til að róa miðju-
manninn rauðhærða því á 34. mín-
útu braut hann ákaflega klaufa-
lega á Francesco Totti og var verð-
skuldað rekinn af velli. Fáranleg
frammistöðu hjá eins leikreynd-
um leikmanni og Scholes. Til að
bæta gráu ofan á svart skoraði
Taddei fyrir Roma rétt fyrir leik-
hlé.
United jafnaði leikinn á 60.
mínútu þegar Rooney kom bolt-
anum yfir línuna eftir frábæran
undirbúning Ronaldo og Solskjær.
Fyrsta mark Rooney í 18 leikjum
með Man. Utd í Meistaradeildinni
en hann hafði ekki skorað síðan í
fyrsta leik með liðinu í keppninni
er hann skoraði þrennu.
Varamaðurinn Vucinic kom
Roma yfir á ný sex mínútum síðar
og þar við sat. United undir en
með mikilvægt mark á útivelli.
Sir Alex Ferguson, stjóri United,
var ekki ósáttur við brottrekstur
Scholes þó svo að hann hefði verið
óánægður með dómarann.
„Miðað við að hafa leikið 10
gegn 12 nánast allan leikinn eru
þetta góð úrslit. Það féll ekki einn
dómur með okkur í kvöld en svona
er Evrópuboltinn því miður. Ég
get ekki kvartað yfir rauða spjald-
inu. Paul finnst gaman að tækla en
það er því miður bannað í Evrópu-
keppninni,“ sagði Ferguson, sem
er bjartsýnn fyrir seinni leikinn.
Valencia sýndi styrk sinn með
því að ná jafntefli á Stamford
Bridge. David Silva kom Val-
encia yfir á 30. mínútu en Didier
Drogba jafnaði metin fyrir Chel-
sea á 53. mínútu. Lengra komst
Chelsea ekki og liðsins bíður veru-
lega erfitt verkefni á Mestalla.
„Við skoruðum gott mark og
bráttuandinn var til staðar. Við
höfum sýnt það áður að við getum
farið á útivöll og náð árangri,“
sagði John Terry, fyrirliði Chel-
sea, fullur af eldmóði.. „Við þurf-
um samt að spila góðan leik og
hafa trú á okkur. Ég veit við getum
skorað á útivelli og nú er bara að
halda hreinu.“
Gærkvöldið var ekki gjöfult fyrir ensku liðin Manchester Utd og Chelsea. United
tapaði fyrir Roma á Ítalíu, 2-1, í leik þar sem Paul Scholes var rekinn út af.
Chelsea á erfiðan útileik fyrir höndum eftir 1-1 jafntefli heima gegn Valencia.